Fréttablaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 14. júlí 2009 17
Valbjarnavöllur, áhorf.: Óuppg.
Þróttur Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13–11 (7–9)
Varin skot Sindri 6 – Hannes 6
Horn 6–6
Aukaspyrnur fengnar 10–11
Rangstöður 0–1
FRAM 4–4–2
Hannes Þór Halldórs. 6
Joseph Tillen 5
Kristján Hauksson 5
Auðun Helgason 5
Sam Tillen 5
(60. Ingvar Þór Ólas. 6)
Heiðar Geir Júlíusson 7
Jón Orri Ólafsson 5
(72., Jón Guðni Fjólu. -)
Daði Guðmundsson 7
Paul McShane 7
*Hjálmar Þórarins. 8
(90. Guðm. Magnús. -)
Almarr Ormarsson 7
*Maður leiksins
ÞRÓTTUR 4–4–2
Sindri Snær Jensson 7
Birkir Pálsson 5
(73. Andrés Vilhjálm. -)
Runólfur Sigmunds. 5
Kristján Ómar Björn. 5
Jón Ragnar Jónsson 5
Oddur Guðmundss. 5
(60. Oddur Björns. 5)
Dennis Danry 5
Rafn Andri Haraldss. 5
Magnús Már Lúðvíks. 7
Morten Smidt 7
Davíð Þór Rúnarsson 6
(82., Trausti Eiríks. -)
0-1 Daði Guðmundsson (59.)
0-2 Hjálmar Þórarinsson (77.)
1-2 Morten Smidt (84.)
1-3 Heiðar Geir Júlíusson, víti (90+2)
1-3
Magnús Þórisson (6)
GRINDAVÍK 0-1 BREIÐABLIK
0-1 Kristinn Steindórsson (57.)
Grindavíkurvöllur, áhorf.: 815
Þóroddur Hjaltalín (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–12 (5–5)
Varin skot Óskar 3 – Ingvar 3, Sigmar 2
Horn 4–7
Aukaspyrnur fengnar 9–10
Rangstöður 1–2
Grindavík 4–3–3 Óskar Pétursson 6 - Óli Baldur
Bjarnason 5, Zoran Stamenic 6, Bogi Rafn Einarsson
5, Ray Anthony Jónsson 5 - Orri Freyr Hjaltalín 5,
Jóhann Helgason 5, Scott Ramsey 5 - Gilles Mbang
Ondo 6, Jósef Kristinn Jósefsson 7, Þórarinn Kristj-
ánsson 3 (66. Eysteinn Hauksson 4).
Breiðablik 4–3–3 Ingvar Kale 6 (70. Sigmar Ingi
Sigurðsson 6) - Árni Kristinn Gunnarsson 6, Elfar
Freyr Helgason 7, Kári Ársælsson 7, Kristinn Jónsson
6 - *Finnur Orri Margeirsson 8, Andri Rafn
Yeoman 7, Arnar Grétarsson 7 - Olgeir Sigurgeirsson
5, Kristinn Steindórsson 6, Alfreð Finnbogason 7.
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, hefur ákveðið
að Michael Owen fái að klæðast
hinni eftirsóttu United-treyju
númer sjö á næsta tíma-
bili.
Owen mun því taka
við sjöunni af Cristi-
ano Ronaldo, sem
félagið seldi til
Real Madrid, en margir af fræg-
ustu og vinsælustu leikmönnum
Manchester United hafa spilað
í sjöunni og þar má nefna menn
eins og Bryan Robson, Eric
Cantona og David Beckham.
Michael Owen spilaði
ávallt í treyju númer 10
þegar hann var í herbúð-
um Liverpool. - óój
Michael Owen er kominn með númer hjá United:
Fær að spila í sjöunni
STAÐAN Í DEILDINNI
FH 12 11 0 1 35-8 33
KR 12 6 3 3 23-16 21
Stjarnan 11 6 2 3 26-15 20
Fylkir 11 6 2 3 21-13 20
Keflavík 11 5 4 2 20-17 19
Valur 11 6 1 4 15-19 19
Breiðablik 11 4 3 4 16-17 15
Fram 11 4 2 5 14-14 14
Fjölnir 11 2 2 7 13-23 8
Grindavík 11 2 2 7 11-24 8
ÍBV 11 2 1 8 9-21 7
Þróttur 12 2 1 9 10-24 7
Tilvalið í ferðalagið
Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs!
Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is
Tilboð kr. 23.995*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með
stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.220 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Þú sparar
kr. 9.220
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
*tilboð gildir á meðan birgðir endast.
FÓTBOLTI Carlos Tevez mun færa
sig milli Manchester-liðanna og
spila með City-liðinu næstu fimm
árin. Tevez mun ganga endanlega
frá nýjum samningi ef að hann
stenst læknisskoðun í dag.
Tevez mun spila í treyju númer
32 eða sama númeri og hann hefur
spilað í með Manchester United
undanfarin tvö tímabil. - óój
Tevez áfram í Manchester:
Fer yfir til City
> Stig og hreint mark í fyrsta leik á EM
Nítján ára landslið kvenna gerði markalaust jafntefli við
Noreg í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni EM sem hófst
í Hvíta-Rússlandi í gær. Norska liðið sótti mun meira
í leiknum en vörnin og markvörðurinn Birna Björg
Haraldsdóttir (til hægri) stóðu sig mjög
vel og héldu hreinu. Fyrirliðinn Fanndís
Friðriksdóttir harkaði af sér meiðslin,
spilaði allan leikinn og var nálægt
því að tryggja íslenska liðinu sigur í
blálokin. Næsti leikur íslenska liðsins
er á móti Svíþjóð á fimmtudaginn
en Svíar töpuðu 0-3 á móti
Englendingum í gær.
FÓTBOLTI Breiðablik tók öll stigin
í Grindavík í gær en aðeins eitt
mark leit dagsins ljós, það skor-
aði Kristinn Steindórsson. Heima-
menn voru sterkari í fyrri hálf-
leiknum en í þeim síðari tóku
Blikarnir völdin á miðjunni, náðu
upp góðu spili og þá er erfitt að
stöðva þá.
„Við vorum staðráðnir í að rífa
okkur upp eftir dapran fyrri hálf-
leik. Við byrjuðum hálfleikinn af
krafti og fylgdum því eftir með
góðu marki,“ sagði Finnur Orri
Margeirsson sem átti skínandi
leik á miðjunni. „Þegar við náum
upp okkar besta spili eiga fá lið
möguleika gegn okkur. Við létum
boltann ganga hratt og örugglega
í seinni hálfleiknum og þá opnuð-
ust leiðir.“
Breiðabliki hefur gengið illa á
Grindavíkurvelli og var þetta í
fyrsta sinn í sögunni sem Kópa-
vogsliðinu tekst að ná í sigur þar í
efstu deild. Finnur segir að menn
hafi verið meðvitaðir um þessa töl-
fræði fyrir leikinn.
„Bróðir minn hann tuðaði eitt-
hvað í mér í morgun um þetta. Ég
sagði honum bara að þetta yrði
þá bara leikurinn þar sem þetta
myndi breytast,“ sagði Finnur Orri
sem stóð við stóru orðin.
Það var ekki mikið um færi í
fyrri hálfleiknum en Grindvík-
ingar voru meira með knöttinn og
öllu líflegri. Þó áttu Blikar örfáar
góðar rispur og vildi Arnar Grét-
arsson fá vítaspyrnu þegar Zoran
Stamenic átti tæklingu í teignum
og Arnar féll. Þóroddur Hjaltalín
dæmdi þó ekkert.
Gilles Ondo var nokkuð líflegur
og átti bestu tilraun heimamanna
en fast skot hans fór framhjá. Allt
annað var að sjá til gestaliðsins í
seinni hálfleik. Blikarnir tóku öll
völd á miðjunni, spiluðu vel á milli
sín og komust verðskuldað yfir.
Alfreð Finnbogason átti þá ban-
eitraða sendingu á Kristinn Stein-
dórsson sem kláraði listilega vel.
Ekki fyrsti frábæri samleikskafli
þeirra tveggja í sumar og væntan-
lega ekki sá síðasti.
Þegar tuttugu mínútur voru til
leiksloka þurfti Ingvar Kale, mark-
vörður Blika, að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla á nára. Varamark-
vörðurinn Sigmar Ingi Sigurðar-
son fór þá í markið og átti hann
eina virkilega góða markvörslu
þegar Scott Ramsey náði hörku-
skoti rétt fyrir leikslok.
„Við vorum miklu betri í fyrri
hálfleiknum og mér finnst þessi
úrslit ekki vera sanngjörn. Við
áttum skilið að fá eitthvað úr
þessum leik,“ sagði Lúkas Kostic,
þjálfari Grindavíkur. „Við feng-
um ágætis möguleika til að setja
mark en eftir að hafa yfirspilað þá
í fyrri hálfleik náðu þeir völdum á
miðjunni í þeim síðari.“
Lúkas Kostic sagði sína menn
hafa spilað sinn besta hálfleik í
sumar en gefið Blikum of mikið
pláss í þeim síðari. „Blikar eru eitt
best spilandi lið landsins og það má
ekki gefa þeim þetta pláss,“ sagði
hann að lokum.
elvargeir@365.is
Tóku völdin á miðjunni
Breiðablik vann sinn fyrsta sigur í sögunni í Grindavík í gær. Kristinn
Steindórsson skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.
KLÁR Á NÝ Alfreð Finnboga-
son sneri aftur inn í lið Blika
og lagði upp sigurmarkið í
Grindavík í gær.
Framarar unnu 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Þrótti á Valbjarnarvelli
í gær. Fyrri hálfleikurinn fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtun og
gerðist fátt framan af. Frammarar áttu þó skot í stöng í lok hálfleiks-
ins. Seinni hálfleikur var hinsvegar bráðfjörugur og voru bæði lið
staðráðin í að bæta upp fyrir slappan fyrri hálfleikinn. Fyrsta markið
kom eftir tæpan klukkutíma leik. Þá datt boltinn fyrir fætur Daða
Guðmundssonar sem kláraði vel með föstu skoti fyrir
utan teiginn. Hjálmar Þórarinsson skoraði síðan annað
mark Fram á 77. mínútu þegar hann
komst einn inn fyrir eftir frábæra
sendingu frá Paul McShane.
Þróttarar minnkuðu svo
muninn á 84. mínútu en þar
var Daninn Morten Smidt að
verki. Leikurinn var nokkuð í
járnum eftir það og settu Þróttarar
góða pressu en náðu ekki að skora. Heiðar
Geir Júlíusson innsiglaði síðan sigurinn þegar
tvær mínútur voru komnar fram yfir venju-
legan leiktíma úr vítaspyrnu en brotið hafði verið á Paul McShane.
„Það var þungt yfir þessu í fyrri hálfleik og við náðum ekki að fylla
teiginn þegar við komumst upp völlinn, það lagaðist sem betur fer í
seinni hálfleik,“ sagði Daði Guðmundsson sem skoraði fyrsta mark
Fram. „Við vissum að þetta yrði hörkuleikur og það varð raun-
in. Þeir lágu vel á okkur síðustu tíu mínúturnar og því var
gott að frá þriðja markið,” sagði Daði ennfremur.
Daði var nokkuð sáttur við markið sem hann setti í leikn-
um enda stórglæsilegt.
„Ég er mjög sáttur en boltinn datt þarna fyrir
fæturna á mér og ég var bara fyrstur á hann,
hitti hann líka vel.”
Framarar fljúga síðan út til Tékklands í
dag þar sem þeir taka þátt í Evrópu-
keppninni. Það er því þétt spilað hjá
þeim þessa dagana. „Þetta er mjög
skemmtilegt og við æfum bara minna
og spilum meira, það er flott,” sagði
Daði að lokum.
DAÐI GUÐMUNDSSON KOM FRAM Á BRAGÐIÐ Í 3-1 SIGRI Á ÞRÓTTI: NÓG AF LEIKJUM HJÁ FRAM ÞESSA DAGANA
Við æfum bara minna og spilum meira
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
sport@frettabladid.is