Fréttablaðið - 14.07.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
3.38 13.33 23.26
2.52 13.18 23.41
Í dag er þriðjudagurinn 14. júlí
2009, 195. dagur ársins.
Á leið minni til Austfjarða þótti mér við hæfi að taka með mér
fróðleg rit um héraðið á borð við
Austfirðingaþætti og byggðar-
sögur kaupstaðanna þar í kring.
Ekki kann ég að rekja ættir mínar
austur á firði og áttu því hvorki
ég né aðrir fjölskyldumeðlimir
fróðleiksrit um svæðið. Ég gerði
mér því ferð á bókasafn svo að
ekki myndi ég ferðast um svæðið
án þess að geta flett upp hluta af
þeim sögum sem kynnu að búa í
landslaginu. Með í fræðiritunum
slæddust svo fróðleiksrit á borð
við Íslenskt vættatal, Íslenskar
kynjaskepnur og Syndir feðranna –
Sagnir af gömlum myrkra verkum
en síðarnefndu ritin tengjast þó
Austfirðingum ekkert sérstak-
lega.
SATT best að segja þá fór það svo
að kynjaskepnur, drepsóttir og
morðingjar fortíðarinnar toguðu
meira í mig en austfirskar kempur,
að minnsta kosti fyrri part ferðar
(ég er enn á flækingi þar eystra).
Meðal myrkraverkanna sem ég las
um voru þættir um svívirðilega
ósanngirni sem viðgekkst á tímum
alræmds skeiðs sem nefnt hefur
verið einokunarsagan (Sverrir
Hermannsson segir reyndar að
sagnir af stjórnartíð Davíðs og
Halldórs muni slá hryllings sögum
af einokuninni við).
AUK frásagna af myrkra verkum
var einnig að finna lýsingar á
ýmsum dreppestum og plágum
sem í eina tíð ollu mannfækk-
un, ótta og vonleysi meðal Íslend-
inga. Ég saknaði umfjöllunar um
spænsku veikina í bókinni en
gat bætt úr því þar sem nokkur
hefti af Læknablaði var að finna
í bústaðnum þar sem ég dvaldi og
eitt þeirra geymdi úttekt um þá
skæðu sótt.
ÞAR var einnig að finna áhuga-
verða frásögn af framlagi Thors
Jensen og konu hans, en þau vildu
milda þjáningar fólks í tíð far-
sóttarinnar. Þar stóð einnig að
þau hefðu verið ófáanleg með öllu
til að ræða framlag sitt, höfðu sem
sé engan áhuga á að láta ímyndar-
sérfræðinga og fjölmiðlafulltrúa
skapa þeim ímynd ríkra góðmenna
og dugnaðarforka. Heldur kusu
þau að vera slíkir í raun og sann.
GÓÐUR orðstír deyr þó seint.
Þótti mér hegðun þeirra afar ólík
þeirri sem sumir afkomendur
þeirra hafa sýnt af sér.
Gömul
myrkraverk
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%