Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2009, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 14.07.2009, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur 3.38 13.33 23.26 2.52 13.18 23.41 Í dag er þriðjudagurinn 14. júlí 2009, 195. dagur ársins. Á leið minni til Austfjarða þótti mér við hæfi að taka með mér fróðleg rit um héraðið á borð við Austfirðingaþætti og byggðar- sögur kaupstaðanna þar í kring. Ekki kann ég að rekja ættir mínar austur á firði og áttu því hvorki ég né aðrir fjölskyldumeðlimir fróðleiksrit um svæðið. Ég gerði mér því ferð á bókasafn svo að ekki myndi ég ferðast um svæðið án þess að geta flett upp hluta af þeim sögum sem kynnu að búa í landslaginu. Með í fræðiritunum slæddust svo fróðleiksrit á borð við Íslenskt vættatal, Íslenskar kynjaskepnur og Syndir feðranna – Sagnir af gömlum myrkra verkum en síðarnefndu ritin tengjast þó Austfirðingum ekkert sérstak- lega. SATT best að segja þá fór það svo að kynjaskepnur, drepsóttir og morðingjar fortíðarinnar toguðu meira í mig en austfirskar kempur, að minnsta kosti fyrri part ferðar (ég er enn á flækingi þar eystra). Meðal myrkraverkanna sem ég las um voru þættir um svívirðilega ósanngirni sem viðgekkst á tímum alræmds skeiðs sem nefnt hefur verið einokunarsagan (Sverrir Hermannsson segir reyndar að sagnir af stjórnartíð Davíðs og Halldórs muni slá hryllings sögum af einokuninni við). AUK frásagna af myrkra verkum var einnig að finna lýsingar á ýmsum dreppestum og plágum sem í eina tíð ollu mannfækk- un, ótta og vonleysi meðal Íslend- inga. Ég saknaði umfjöllunar um spænsku veikina í bókinni en gat bætt úr því þar sem nokkur hefti af Læknablaði var að finna í bústaðnum þar sem ég dvaldi og eitt þeirra geymdi úttekt um þá skæðu sótt. ÞAR var einnig að finna áhuga- verða frásögn af framlagi Thors Jensen og konu hans, en þau vildu milda þjáningar fólks í tíð far- sóttarinnar. Þar stóð einnig að þau hefðu verið ófáanleg með öllu til að ræða framlag sitt, höfðu sem sé engan áhuga á að láta ímyndar- sérfræðinga og fjölmiðlafulltrúa skapa þeim ímynd ríkra góðmenna og dugnaðarforka. Heldur kusu þau að vera slíkir í raun og sann. GÓÐUR orðstír deyr þó seint. Þótti mér hegðun þeirra afar ólík þeirri sem sumir afkomendur þeirra hafa sýnt af sér. Gömul myrkraverk Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.