Fréttablaðið - 10.07.2009, Blaðsíða 22
2 föstudagur 10. júlí
núna
✽ ræktum vinina
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson Ritstjórn Roald Eyvindsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga
900 - 1800
Fá fjölskylduna í heimsókn
Íslenski hópurinn
á Feneyjartvíær-
ingnum, með lista-
manninn Ragnar
Kjartansson í farar-
broddi, hefur verið
óþreytandi við
vinnu sína síðan komið var á stað-
inn. Þorlákur Einarsson, kynningar-
fulltrúi hópsins, segir að hóp-
urinn njóti þó hverrar mín-
útu í borginni enda sé hún
með eindæmum fögur. Von
er á heimsóknum frá vinum
og vandamönnum nú í mánuð-
inum og ríkir mikil tilhlökkun vegna
þessa.
Komin í hóp foreldra
Árni Einar Birg-
isson plötusnúð-
ur og sambýliskona
hans, stílistinn Agn-
ieszka Baranowska
eignuðust sitt fyrsta
barn í vikunni sem
leið. Foreldrarnir tjáðu sig á Face-
book þar sem þau sögðu barni og
móður heilsist vel. Tónlistarkonan
Tanya Pollock og sambýlismaður
hennar eignuðust einnig lítinn
dreng í vikunni sem hefur fengið
nafnið Francis Mosi.
Fyrstu tónleikar Krooks
Hljómsveitin Krooks heldur sína
fyrstu tónleika á Jacobsen þann
18. júlí næstkomandi. Hljómsveitin
er meðal annars skipuð systkinun-
um Ívari Erni og Rebekku,
sem gerði það gott með
hljómsveitinni Merzedes
Club. Hljómsveitin spilar
svokallaða dubstep-
tónlist og má fólk
búast við skemmti-
legum tónleikum.
helgin
MÍN
FÁGUÐ Ofurfyrirsætan Kate Moss
mætti í þessum látlausa og fallega
svarta kjól á forsýningu nýrrar fatalínu
sögnkonunnar Beth Ditto.
K læðskeraneminn Arndís Ey Ei-ríksdóttir hefur verið að hanna
flíkur undir nafninu Ey Design í
tæp tvö ár og selt við góðar undir-
tektir í gegnum tengslanetið Face-
book. Arndís segir klæðskeranámið
hafa orðið fyrir valinu vegna þess
að henni þótti það hönnunarnám
sem í boði var hér heima ekki nógu
spennandi. Meðal þess sem Arndís
er að hanna eru fallegir sparikjól-
ar, leggings og slár sem hægt er að
nota á tvenna vegu. „Slárnar eru
vinsælastar enda eru þær í raun
tvær flíkur í einni og því hægt að
nota þær við ýmis tækifæri. Flík-
urnar seljast nokkuð hratt hjá mér
en ég reyni að hafa alltaf eitthvað
til á lager fyrir fólk til að skoða eða
máta. Ég hef líka stundum saum-
að eftir pöntun, þá biður fólk mig
um að sauma flík, til dæmis slá
eða kjól, í ákveðnum lit eða efni.“
Hugmyndirnar að flíkunum segir
Arndís koma víða að. „Hugmynd-
irnar koma mjög auðveldlega, það
getur aftur á móti stundum verið
erfitt að framkvæma þær. Ég fæ
yfirleitt hugmyndina fyrst og fer
síðan að skoða efni og vinn svo
flíkina strax í efnið. Í mínu námi
er ekki verið að skissa og teikna
flíkurnar upp fyrst heldur vinna
þær beint á efnið.“
Áhugasamir geta skoðað fötin á
Facebook-síðu Arndísar. - sm
Arndís Ey, klæðskeranemi, hannar fallegar slár og fína partýkjóla:
FÆR HUGMYNDIR VÍÐA
AÐ OG AUÐVELDLEGA
Ey Design Arndís Ey hannar undir nafninu Ey Design og selur flíkur sínar í gegnum tengslanetið Facebook. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Falleg slá Arndís segir slárnar vera vin-
sælar, enda séu þær í raun tvær flík-
ur í einni.
Myndlistarneminn Bryndís Björnsdóttir mun opna sýn-
inguna Tombóla í Kaffistofu Nem-
endagalleríi í dag. Sýningin verð-
ur opnuð klukkan 17 og verður að-
eins opið þennan eina dag. Bryndís
segir sýninguna vera endalok á
ákveðnu ferli sem hófst þegar hún
byrjaði að safna dóti fyrir tomból-
una, sem hún hefur síðan endur-
unnið á mismunandi vegu. „Ferlið
byrjaði með því að ég gekk á milli
húsa í hverfinu og bað um dót á
tombólu og vann svo ýmis verk
úr dótinu, til dæmis teikningar,
skúlptúra, vídeóverk og ýmislegt
annað. Ég vona bara að fólkið sem
gaf mér dótið kíki við og láti reyna
á heppnina,“ segir hún. Bryndís
segist hafa fengið ólík viðbrögð
frá fólki þegar hún bar upp erindið
þó að flestir hafi tekið vel í uppá-
tækið. „Mörgum fannst fyndið að
hálf fullorðin manneskja væri að
biðja um dót á tombólu.“ Hver
tombólumiði mun kosta tíu krón-
ur og rennur allur ágóði óskiptur
til Kaffistofu Nemendagallerís.
- sm
Bryndís Björnsdóttir listnemi:
Tombóla til styrktar
Nemendagalleríi
Heldur tombólu Bryndís, sem er nem-
andi við Listaháskóla Íslands, heldur sýn-
ingu í Nemendagalleríinu á Hverfisgötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
þetta
HELST
ÞÓRHALLUR SKÚLASON TÓNLISTARMAÐUR
Á föstudaginn ætla ég að fara á skemmtistaðinn Jacobsen og dansa, dansa og dansa og
hita mig svolítið upp fyrir Boston þar sem ég er að spila kvöldið eftir. Á laugardaginn fer
ég í brúðkaup og um kvöldið er ég eins og fyrr sagði að þeyta skífum á Boston, þar sem ég
spila reglulega um helgar. Á sunnudaginn ætla ég svo að koma mér vel fyrir uppi í sófa og
horfa á góðar heimildarmyndir í rólegheitunum.