Fréttablaðið - 10.07.2009, Síða 24
4 föstudagur 10. júlí
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
M
onitor er nýr
skemmtiþátt-
ur fyrir ungt fólk
sem hóf fyrir
s t u t t u g ö n g u
sína á SkjáEinum. Erna Bergmann
fatahönnuður er stjórnandi þátt-
arins. „Það er svolítið fyndið
hvernig það kom til að ég varð
stjórnandi þáttarins. Ég bjó í Berl-
ín í haust, þar sem ég var í skipt-
inámi í fatahönnun, og er búin að
búa heima hjá mömmu og pabba
frá því að ég kom heim. Þetta var
glataður morgunn, ég á ekki bíl
og var í strætó á leiðinni í vinn-
una sem var fullur af tveimur leik-
skólahópum. Þá fékk ég símtal frá
Hrefnu Björk Sverrisdóttur, fram-
kvæmdastjóra Media, sem er með
Monitor. Hún spurði mig strax þá,
klukkan níu um morguninn, hvort
ég vildi vera með sjónvarpsþátt,“
segir Erna sem stakk upp á að þær
myndu hittast í kaffi í vikunni,
en Hrefna Björk gat ekki beðið.
„Þannig að tveimur tímum seinna
fórum við og fengum okkur kaffi
og allt í einu var ég að byrja með
sjónvarpsþátt, átti að mæta á fund
um kvöldið og í myndatöku dag-
inn eftir.“
Erna segir Hrefnu Björk hafa
gert henni tilboð sem erfitt var að
hafna en fundur þeirra átti sér stað
fyrir um mánuði. „Það var alltaf í
deiglunni að Monitor byrjaði með
sjónvarpsþátt. Svo var einhvern
veginn ekkert að gerast í sjónvarp-
inu í sumar og þeim fannst þetta
akkúrat tíminn fyrir dægurmála-
þátt fyrir ungt fólk, svona á þess-
um síðustu og verstu þegar menn
vilja sjá smá ljós í lífinu, fá stuð og
hætta að tala um kreppuna,“ segir
Erna og bætir við að ráðgert sé að
gera átta þætti og fer sá síðasti í
loftið um miðjan ágúst.
LAS DALAI LAMA
Erna er þó ekki alveg ný í sjón-
varpsgeiranum þar sem hún
stjórnaði tónlistarþættinum Á
bak við böndin á sjónvarpsstöð-
inni Sirkus fyrir nokkrum árum.
„Ég var með þann þátt með vin-
konu minni, Ellen Loftsdóttur, og
það er einhvern veginn allt öðru-
vísi þegar það eru tveir saman að
stjórna en ég var alveg sjúklega
stressuð að byrja með Monitor-
þáttinn og las einhverjar Dalai
Lama-sjálfshjálparbækur,“ upp-
lýsir Erna hlæjandi. „Svo þegar ég
byrjaði var þetta ekkert mál. Þetta
er ótrúlega skemmtilegt og ég
hlakka alltaf til að gera þættina en
tíminn mun leiða það í ljós hvort
vinna við sjónvarp verður eitthvað
sem ég legg fyrir mig.“
SLEIT GÍTARSTRENG
Aðspurð segir Erna að Monitor sé
tónlistartengdur og að lokaliður
þáttarins sé tónlistarvænn. „Mér
finnst það mjög skemmtilegt því
ég hef mikinn áhuga á tónlist. Ég
hef alltaf hlustað mjög mikið á
tónlist og verið að plötusnúðast í
gegnum tíðina. Hvernig væri lífið
án tónlistar?“ spyr Erna brosandi.
En hefur hún þá líka æft á hljóð-
færi? „Nei, ekki neitt. Mig langaði
að læra á gítar og hef alltaf vilj-
að vera í hljómsveit. Ég fékk einu
sinni gítar frá vini mínum, lærði
tvö lög og sleit streng. Gítarinn er
óhreyfður síðan.“
En hver er Erna Bergmann? „Ég
ólst upp í Hafnarfirði og er Gafl-
ari. Ég gekk í Öldutúnsskóla og
Flensborg. Ég byrjaði í lögfræði í
Háskólanum í Reykjavík, var þar í
eina önn, og varð hálfþunglynd af
því,“ segir Erna, sem virðist frek-
ar vera fyrir listir en lögfræði á
bók, þar sem hún er nýútskrif-
aður fatahönnuður og byrjaði að
eigin sögn í dansi tveggja ára með
bleyju. „Ég býst við því að ég hafi
verið að reyna að ganga í augun
á pabba mínum þegar ég ákvað
að fara í lögfræðina því hann er
mikið á bókina. Hann sýnir mér
samt mikinn stuðning en skilur
ekkert í mér að hafa farið í fata-
hönnun.“
Eftir önnina í lögfræðinni ákvað
Erna að leggja fatabransann fyrir
sig og fór að vinna hjá NTC, sem
meðal annars rekur 17 og GS skó.
Svo færði hún sig yfir í Spúútn-
ik og eftir tvö ár þar lá leið henn-
ar í verslunina Kronkron þar sem
hún er enn og reynir að samræma
þáttastjórnunina verslunaraf-
greiðslunni. „Ég er í rauninni að
vinna alla daga. Hugrún og Magni
sem eiga Kronkron eru svo æðis-
leg þannig að það gengur ágæt-
lega að samræma vinnurnar tvær.
Ég er að vinna þrjá til fjóra daga
inni í búð og svo er ég í þættinum
hina dagana þannig að mér leið-
ist aldrei,“ segir Erna sem gefur
sér þó tíma fyrir sjálfa sig inn á
milli anna.
LIFÐI Í PRAKTÍSKUM HEIMI
Þegar Erna byrjaði í Kronkron hóf
hún nám í fatahönnun í Lista-
háskóla Íslands og útskrifaðist
í vor. „Ég hef alltaf haft áhuga á
tísku. Ég vildi stjórna því hverju
ég klæddist og fann aldrei kjól
fyrir böllin þannig að mamma
þurfti alltaf að sauma nýjan. Ég
fattaði samt ekki fyrr en miklu
seinna hvað mig langaði til að
gera. Ég ætlaði aldrei að verða
fatahönnuður þegar ég var ungl-
ingur því þá var ég að reyna að
vera praktísk í hinum heiminum.
Svo fattaði ég að mér finnst ekk-
ert gaman að vera praktísk og þá
gaf það augaleið að fara í fata-
hönnun,“ segir Erna sem ákvað
það tveimur vikum áður en um-
sóknarfresturinn í Listaháskólann
rann út að sækja um. „Ég var ekki
með neina möppu þá en bjó hana
til úr teikningum og ljósmyndum,
skilaði henni svo og komst inn,“
segir Erna.
„Mamma hefur alltaf stutt mig í
öllu því sem ég hef tekið mér fyrir
hendur,“ segir Erna þegar hún er
innt eftir því hvort mamma henn-
ar hafi hvatt hana áfram í listum
eftir að hún hætti að sauma kjóla
á Ernu fyrir böll. „Þegar ég var lítil
Erna Bergmann
birtist aftur á sjónvarps-
skjám landsmanna
fyrir stuttu í þættinum
Monitor á SkjáEinum.
Hún er ekki alls ókunnug
sjónvarpsvinnu því hún
stjórnaði tónlistarþætt-
inum Á bak við böndin á
sjónvarpsstöðinni Sirkus
fyrir nokkrum árum
ásamt vinkonu sinni
Ellen Loftsdóttur.
Viðtal: Marta María Friðriksdóttir
Ljósmyndir: Arnþór Birkisson
STARFSTILBOÐ Í STRÆTÓ
Leiðist aldrei Erna segist alltaf hlakka til að vinna að Monitorþáttunum en veit ekki hvort hún ætlar að leggja störf í sjónvarpi fyrir sig í framtíðinni.
Stjörnumerki:
Naut.
Besti staðurinn á Íslandi?
Þeir eru margir guðdómlega falleg-
ir en fátt finnst mér toppa stemn-
inguna sem blossar upp í miðbæ
Reykjavíkur á virkilega góðum
sumardegi.
Uppáhaldsflíkin?
„Blazer“-jakkinn sem ég hannaði
fyrir lokalínuna frá LHÍ.
Besti tími dagsins?
Get ekki valið á milli þess að kúra
á morgnana eða seint á kvöldin í
huggulegheitum.
Uppáhaldsmatur?
Hvítlauksleginn humar.
Draumaferðalagið?
Mig hefur alltaf langað til
Afríku að skoða dýra-
lífið. En þessa stund-
ina þrái ég ekkert meira en sól
og strönd með kokteil í hönd.
Uppáhaldshlutur?
Gæti ekki lifað án tölvunnar
minnar.
Kostir:
Vinur vina minna.
Gallar:
Óþolinmóður þrjóskupúki.
Ég lít mest upp til:
Köddi Hristbjörns hefur
kennt mér margt.
- Lifið heil
www.lyfja.is
2 fyrir 1
DUREX. Ef þú kaupir Play-O unaðskremið frá Durex þá færðu Play
nuddfroðuna frítt með, tvær frábærar nýjungar frá Durex.
Durex og Lyfja
- Allt sem þú þarft