Fréttablaðið - 04.08.2009, Síða 4
4 4. ágúst 2009 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt lána-
yfirliti Kaupþings frá 25. sept-
ember á síðasta ári, eða skömmu
fyrir bankahrunið, þá námu lán
til fimm stærstu lánadrottna
Kaupþings alls 5.270 milljónum
evra sem samsvarar 948 millj-
örðum króna á núverandi gengi.
Lánayfirlitinu var lekið á vefsíð-
una wikileaks.org undir lok síð-
ustu viku.
Stærsti lántaki hjá Kaupþingi
var Exista og tengd félög. Alls
námu lán til Existu og tengdra
félaga um 1.837 milljónum evra
sem samsvarar um 331 milljarði
króna á núverandi gengi. Inni-
falið í fyrrgreindri fjárhæð er
791 milljón evra lán til Existu hf.
þar sem einungis 100 milljónir
voru tryggðar með veði. Því voru
lánaðar um 690 milljónir evra til
félagsins án nokkurra veða.
Jafnframt lánaði Kaupþing
252,5 milljónir evra til félags-
ins Bakkabræður Holding sem
er eignarhaldsfélag um hlut
bræðranna Ágústs og Lýðs Guð-
mundssonar í Existu. Meðal fyrir-
tækja sem eru í eigu Existu og
Bræðranna Lýðs og Ágústs Guð-
mundssona eru Skipti og Bakka-
vör auk þess sem félagið átti hlut
í Kaupþingi.
Næststærsti einstaki lántaki
bankans er Robert Tchenguiz
en lán til hans námu alls 1.374
milljónum evra. Í lánayfirlitinu
kemur fram að veð fyrir lánum
Tchenguiz er meðal annars bréf
í Sommerfield og eignarhalds-
félagi hans Oscatello.
Sá þriðji á listanum er Skúli
Þorvaldsson sem hefur gjarn-
an verið kenndur við Hótel Holt.
Skúli var jafnframt stærsti lán-
taki í Kaupþingi Lúxemborg. Lán
til Skúla námu alls 790,3 milljón-
um evra. Hluti af því láni, 138,6
milljónir, var lánað til kaupa
á hlutabréfum í Kaupþingi og
Existu og var tryggt með veði í
hlutabréfunum. Hlutabréfin eru
verðlaus í dag. Þar að auki skorti
veð fyrir um 170 milljónum evra
af láni hans.
Lán til Kjalar og annarra
félaga tengdum Ólafi Ólafssyni
námu um 636 milljónum evra.
Meðal félaga sem Ólafur á hlut
í eru Samskip, HB Grandi, Ice-
land Seafood International og
Alfesca.
Alls námu lán til Gaums og
tengdra félaga 632 milljónum
evra. Gaumur er í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl-
skyldu. Meðal eigna Gaums
þegar lánayfirlitið var kynnt
voru Hagar og Baugur. Baugur
var tekinn til gjaldþrotaskipta
fyrr á árinu.
Þar að auki var Mosaic
Fashions lánað um 522 milljónir
evra en félagið var að hluta í eigu
Baugs. Mosaic Fashion var tekið
til gjaldþrotaskipta nú í vor.
Önnur félög sem tengjast
Baugi og Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni fengu auk þess umtals-
verð lán. Þar má nefna fasteigna-
félagið Landic Property og Stoðir
(áður FL Group) sem fengu hvort
um sig ríflega 300 milljóna evra
lán.
Því námu lán til félaga sem
voru á einhverjum tímapunkti
í eigu Jóns Ásgeirs og félaga
tengdum Gaumi um 1.800 millj-
ónum evra. bta@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
24°
25°
22°
24°
28°
23°
21°
21°
24°
20°
30°
32°
34°
17°
26°
20°
22°
Á MORGUN
5-10 m/s.
FIMMTUDAGUR
3-8 m/s.
15
16
14
19
17
14
13
12
13
15
13
6
7
5
8
5
5
8
6
10
13
15
15
16
16
15
19 14
18 17
14
13
VÆTUSAMT OG
HVASST SYÐRA
Veðurblíðunni
sunnanlands lýkur
því miður í dag en
víðáttumikil lægð
suður af landi
veldur því að það
hvessir heldur og fer
að rigna núna upp
úr hádegi. Norður-
landið sleppur við
mestu vætuna í
dag en á morgun
verður væta í öllum
landshlutum.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
Kaupþing lánaði milljarða
króna til hluthafa án veða
Kaupþing lánaði háar fjárhæðir til hluthafa til hlutabréfakaupa. Fimm stærstu lántakar bankans fengu
um 950 milljarða króna í lán. Félög tengd Existu fengu mest eða um 330 milljarða króna að láni.
STÆRSTU LÁNTAKAR KAUPÞINGS
Millj. evra Millj. króna
Exista og félög tengd Ágústi og Lýð Guðmundssyni 1.838 330.750
Robert Tcgenguiz 1.374 247.320
Skúli Þorvaldsson gjarnan kenndur við Hótel Holt 790 142.254
Lán til Kjalar og félaga tengd Ólafi Ólafssyni 636 114.480
Gaumur og félög tengd Jóni Ásgeiri 633 113.868
Mosaic Fashions Ltd var í eigu Baugs 522 93.960
Kevin Stanford fjórði stærsti hluthafi í Kaupþingi 519 93.438
Antonios Yerlemou viðskiptafélagi Bakkabræðra 365 65.700
Samkvæmt lánayfirlitinu fengu fjölmörg félög lán hjá Kaupþingi gegn veðum
hlutabréfum Kaupþings og Exista.
Meðal þeirra félaga eru Gift fjárfestingafélag sem fékk 168,8 milljón evra lán
með veð í hlutabréfum í Kaupþingi. Kaupfélag Skagfirðinga fékk jafnframt lán
gegn veði í hlutabréfum. Lánið til félagsins nam 26 milljónum evra sem var að
stórum hluta tryggt með veði í hlutabréfum í Kaupþingi.
Lán til Kevins Stanford, sem var fjórði stærsti hluthafi bankans, námu 375
milljónum evra og var rúmlega helmingur þeirrar fjárhæðar tryggður með veðum
í hlutabréfum bankans. Kevin Stanford var næststærsti lántaki hjá Kaupþingi í
Lúxemborg. Skúli Þorvaldsson, sem var stærsti lántaki Kaupþings í Lúxemborg,
fékk 138 milljón evra lán með veði í hlutabréfum bankans. Þar að auki skorti veð
fyrir um 170 milljónum evra af öðru láni til Skúla.
LÁNUÐU TIL HLUTABRÉFAKAUPA
BANDARÍKIN Tuttugu og sex farþeg-
ar slösuðust þegar þota frá banda-
ríska flugfélaginu Continental
Airlines lenti í mikilli ókyrrð á leið
sinni frá Rio De Janeiro í Brasilíu
til Houston í Texas í gær.
Þotunni var nauðlent á alþjóða-
flugvellinum í Miami og voru
fjórtán færðir á sjúkrahús, þar af
fjórir með alvarleg bak- og höfuð-
meiðsli. Að sögn farþega tók vélin
skyndilega dýfu með þeim afleið-
ingum að þeir hentust upp í loft.
Um borð í vélinni voru 179
manns, þar af ellefu manna áhöfn.
- ve
Farþegaþota Continental:
Farþegar slös-
uðust í ókyrrð
BÓLIVÍA, AP Samkvæmt nýjum
lögum í Bólivíu er bannað að nota
dýr í fjölleikahúsum. Í nokkrum
öðrum löndum er bannað að
nota villt dýr í fjölleikahúsum,
en bannið í Bólivíu nær til allra
dýra.
Í lögunum, sem tóku gildi 1.
júlí, segir að notkun dýra í fjöl-
leikahúsum sé grimmdarverk og
þar af leiðandi óleyfileg.
Um fimmtíu dýr eru nú í
notkun fjölleikahúsa í Bólivíu, en
eigendur þeirra hafa árs frest til
að verða við kröfu laganna.
Sektir liggja við brotum og
stjórnvöldum er heimilt að gera
dýr upptæk. - gb
Bólivíustjórn sinnir dýravernd:
Bannar notkun
dýra í sirkusum
ÍRAN, AP Ali Khameini, æðsti leið-
togi Írans, afhenti í gær Mahmoud
Ahmadinejad opinbera skjalfest-
ingu þess að hann hafi sigrað í for-
setakosningunum í júní.
Stemmningin var þó býsna ólík
því þegar Ahmadinejad tók við
sambærilegu skjali fyrir fjórum
árum, þegar hann vann glæsilegan
sigur í forsetakosningum. Þá föðm-
uðust leiðtogarnir og kysstust,
en í þetta sinn vék Khameini sér
kurteislega undan þegar Ahmad-
inejad hugðist kyssa á hönd hans.
Úrslit kosninganna í júní hafa
verið umdeild og stjórnarandstað-
an sakað valdhafa um svindl. - gb
Kosningaúrslit staðfest:
Engin faðmlög
í þetta skiptið
STAÐFESTINGIN AFHENT Ahmadinejad
tekur við skjalinu úr hendi Khameinis.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Blaðamannafélag Íslands
og Félag fréttamanna á Ríkis-
útvarpinu mótmæla í sameiginlegri
ályktun lögbanni á fréttir Ríkisút-
varpsins sem byggja á gögnum frá
lánanefnd Kaupþings í aðdraganda
efnahagshrunsins.
„Lögbannið er fráleitt, gengur
gegn hagsmunum almennings og
hefur þann eina tilgang að þagga
niður fréttaflutning um hrunið,
aðdraganda þess og eftir atvik-
um ábyrgðarmenn,“ segir í álykt-
uninni.
„Félagið telur að ef lögbannið
verður staðfest af dómstólum þurfi
Alþingi að breyta lögum um banka-
leynd tafarlaust til að tryggja eðli-
lega og lýðræðislega umræðu.“
Steinar Þór Guðgeirsson, for-
maður skilanefndar Kaupþings,
segir hins vegar viðbrögð við lög-
bannskröfunni hafa komið nefnd-
inni á óvart. Ástæða þess að
nefndin fór fram á lögbann á frétta-
flutning Ríkisútvarpsins hafi ein-
göngu verið sú, að fréttastofan hafi
á föstudag boðað frekari frétta-
flutning upp úr gögnunum sem birt
hafa verið á Wikileaks.org.
Ótti hafi þá vaknað hjá
almennum viðskiptavinum bank-
ans, meðal annars bankanum FIH
í Danmörku, um að upplýsingar úr
skjalinu um þeirra viðskipti yrði
umfjöllunarefni fjölmiðla. - gb
Sameiginleg ályktun blaðamanna og fréttamanna:
Lögbanni á RÚV mótmælt
STEINAR ÞÓR GUÐGEIRSSON Segir
skilanefnd Kaupþings undrandi á við-
brögðum við lögbanni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GENGIÐ 31.07.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,7495
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,75 128,35
211,41 212,43
180,31 181,31
24,212 24,354
20,617 20,739
17,416 17,518
1,3354 1,3432
198,25 199,43
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...