Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1942, Page 4

Samvinnan - 01.07.1942, Page 4
SAMVINNAN 6. HEFTI Frá kaupfélögunum Samvinnuskólinn. Útskrifaðir nemendur. Samvinnuskólanum var sagt upp 30. apríl, eins og venja er til. Að þessu sinni útskrifuðust 25 nem- endur, en 30 tóku próf upp í eldri deild, þar af 7 utanskóla, eða sem verið höfðu stuttan tíma til undir- búnings prófinu. Þeir nemendur, sem útskrifuö- ust voru sem hér segir: Benedikt K. Franklínsson frá Litla-Fjarðarhorni í Strandasýslu. Eiður Bergmann Helgason frá Akureyri. Eyjólfur Thóroddsen frá Vatns- dal í Patreksfirði. Gísli Kristjánsson frá Vest- mannaeyjum. Guðjón Guðjónsson, Reykjavík. Gunnar Steindórsson, Reykjavík. Gunnar Sveinsson, Góustöðum, Skutulsfirði. Gunnlaugur Lárusson, Reykjavík. Hallur Sigurbjörnsson, N.-Þing- eyjarsýslu. Jóhann Björnsson frá Vopna- firði. Jón Óli Elíasson frá Vestmanna- eyjum. Jónas Pálsson frá Beingarði í Skagafirði. Karl Stefánsson frá Neskaupstað. Konráð Axelsson frá Húsavík. Magnús Kristjánsson frá ísafirði. Marteinn Friðriksson frá Hofs- ósi. Ólafur Sigurðsson frá Björk í Grímsnesi. Ólafur Thóroddsen frá Vatnsdal í Patreksfirði. Pétur Pétursson frá Mýrdal í Hnappadalssýslu. Rannveig Þorvaldsdóttir frá Sauðárkróki. Sigurður Sveinsson frá ísafirði. Stefán Árnason frá Akureyri. Steingrímur Þórisson frá Reyk- holti. Þorkell Magnússon frá Borg- arnesi. Þórir Ben. Sigurjónsson frá Akureyri. Hæztu einkunnir hlutu Guðjón Guðjónsson, Rvk.. 8,41, Þorkell Magnússon úr Borgarnesi 8,10 og Eiður Bergmann Helgason 8,02. Margir af þeim nemendum, sem útskrifuðust, fóru strax í föst störf hjá kaupfélögunum og öðrum fyr- irtækjum. Guðjón Guðjónsson fór til „Kron“, Gunnar Steindórsson á pósthúsið í Reykjavík, Gunnlaug- ur Lárusson í Sambandið, Hallur Sigurbjörnsson og Pétur Pétursson til Kaupfélags Héraðsbúa á Reyð- arfirði, Jóhann Björnsson til Kaup- félags Vopnfirðinga í Vopnafirði, Konráð Axelsson til Kaupfél. Lang- nesinga á Þórshöfn, Magnús Kristj- ánsson og Rannveig Þorvaldsdótt- ir til Kaupfélags Árnesinga að Sel- fossi og Benedikt K. Franklínsson að verzlun í Flatey á Breiðafirði. Aðrir nemendur hafa fariö til al- gengra starfa, ýmist á landi eða sjó. Kaupfélag Stykkishólms. Aðalfundur. Aðalfundur Kaupfélags Stykkis- hólms var haldinn í Stykkishólmi dagana 28. og 29. maí. Fundinn sátu 18 fulltrúar frá 10 félagsdeildum, stjórn félagsins, annar endurskoðandinn, fram- kvæmdarstjóri félagsins og nokkr- ir gestir. Framkvæmdastjórinn, Sigurður Steinþórsson, lagði fram reikninga félagsins og gaf yfirlit yfir hag þess og rekstur á liðnu starfsári. Vöruvelta félagsins hafði aukizt mikið á liðnu ári, og nam í heild 21/2 milljón kr. Þar af voru gjald- eyrisvörur li/2 milljón, en aukning veltunnar, miðuð við árið 1940, nam um 500 þúsund krónum. Hagur viðskiptamanna hafði mjög breyzt til batnaðar. Innstæður viðskipta- manna á félagssvæðinu námu um 500 þús. kr. og hagur þeirra hafði batnað gagnvart félaginu á liðnu ári um 318 þúsund kr. — Út á við hafði hagur félagsins minni breyt- ingum tekið, er stafaði af því, að það átti mjög miklar vörubirgðir um áramót, bæði óseldar gjald- eyrisvörur og aðkeyptar vörur. Hreinar tekjur félagsins voru rúmlega 56 þúsund krónur, en auk þess var varið til afskrifta af ýms- um eignum félagsins 23600 krónum. Ákveðið var að verja nettóhagn- aði þannig: 1% af vöruveltu, 25 þús. krónur, var lagt í varasjóð samkvæmt ákvæðum Samvinnu- laganna. Úthlutað var til félags- manna 6% af ágóðaskyldri út- tekt, og er sú upphæð áætluð um 27000 krónur. Skiptist þetta þannig, að 3% eru lögð í stofnsjóð félags- manna, en 3% útborguð eða færð í reikninga. í menningarsjóð K. St. voru lagðar 500 kr. Eftirstöðvar teknanna, um 3500 kr. voru lagðar í verðfallssjóð. Félagið rekur hraðfrystihús, saumastofu og dúnhreinsunarstöð. Líka hefir það 3 bíla í förum og á m.b. Baldur að hálfu. Eru rekst- ursreikningar þessarar starírækslu gerðir sérstaklega. Yfirleitt gekk rekstur þessara fyrirtækja vel, og sum gáfu allverulegan hagnað, sem að mestu var varið til af- skrifta. Úr stjórn félagsins gekk Jón V. Hjaltalín, bóndi í Brokey, og var hann endurkosinn. Stjórnina skipa: Hallur Krist- jánsson, bóndi á Gríshóli, formað- ur, Stefán Jónsson, skólastjóri, Stykkishólmi, varaformaður, sr. Jósef Jónsson, prófastur, Setbergi, Óskar Kristjánsson, bóndi, Hóli, og Jón V. Hjaltalín, bóndi. Brokey. 68

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.