Samvinnan


Samvinnan - 01.07.1942, Qupperneq 10

Samvinnan - 01.07.1942, Qupperneq 10
SAMVINNAN 6. HEFTI Finnur F. Kristjánss Björn I. Stefánsson Björn Stefánsson Sveinn Guðmundsson menn kaupfélaganna og Sambandsins og margir þeirra í þýðingarmiklum ábyrgðarstöðum. Auk þeirra kaupfélagsstjóra, sem að framan eru nefndir og útskrifaðir eru úr Samvinnuskólanum, eru nokkrir kaupfélagsstjórar útskrifaðir fyrir 1930, svo sem Sigurður Steinþórsson kaupfélagsstjóri í Stykk- ishólmi, útskrifaður 1921, Eiríkur Þorsteinsson kaup- félagsstjóri á Þingeyri, útskrifaður 1926, Sigurður Tómasson kaupfélagsstjóri á Siglufirði, útskrifaður 1930, Karl Hjálmarsson kaupfélagsstjóri á Þórshöfn, útskrifaður 1924, Guðröður Jónsson kaupfélagsstjóri á Norðfirði, útskrifaður 1930 og Sigfús Bergmann kaupfélagsstjóri í Flatey, útskrifaður 1920. Samtals eru því 20 kaupfélagsstjórar á landinu, sem útskrif- aðir eru úr Samvinnuskólanum og auk þess nokkrir, sem verið hafa tíma í skólanum, en ekki tekið próf. Eins og gefur að skilja, er það næsta þýðingarmikið hverja menntun, hvern undirbúning og fyrir hvaða áhrifum þeir menn verða, sem í framtíðinni eiga að hafa forustuna í samvinnumálum okkar íslendinga, því að svo þýðingarmikil er starfsemi samvinnufélag- anna í landinu. Það er því ein höfuðnauðsyn að búa þá menn vel undir störf sín, sem eiga að taka við for- ustu eða framkvæmdum í kaupfélögum landsins. Því fé er því áreiðanlega ekki á glæ kastað, sem varið er til þess að efla menntun og félagsþroska ungra sam- vinnumanna. Þeir nemendur, sem ekki hafa orðið starfsmenn kaupfélaganna, en stundað hafa áfram þau störf, er þeir unnu áður en þeir fóru í skólann, svo sem bú- skap, iðnað, sjómennsku eða daglaunavinnu, hafa í langflestum tilfellum orðið nýtir félagsmenn, sem unnið hafa félagsskapnum mikið gagn. Og það er al- veg áberandi, hve mikinn virkan þátt nemendur Sam- vinnuskólans taka í starfsemi ýmissa félaga víðs- vegar á landinu, er horfa til heilla og menningar al- Framhald af bls. 67. menntunin ekkert aukaatriði, sem altaf megi sitja á hakanum fyrir afhendingu og úthlutun mat- vara, því félagsmenn með þekkingu og trú á mál- efnið, er undirstaðan, sem félagsskapurinn byggist á. Því fé, sem varið er til aukinnar menntunar, til auk- menningi, og margir þeirra hafa tekið forustuna í þeim félögum. Aftur á móti er mjög sjaldgæft að þeir gerist kaupmenn, þótt slíkt sé til, og þá sjaldan þeir hafa gerzt kaupmenn, hafa þeir flestir átt aðeins vinsamleg viðskipti við samvinnufélögin og sam- vinnumenn. Ástæðan til þess, að þeir hafa gengið í þjónustu einkafyrirtækja eða sjálfir orðið kaupmenn og keppinautar kaupfélaga, hefur oft verið sú, að þeir hafa ekki getað fengið atvinnu hjá samvinnufélög- unum og þess vegna hafið kaupmennsku sjálfir, þótt þeir hafi ekki í upphafi ætlað sér það. Það er reynsla mín og annarra kennara, sem kenna við Samvinnuskólann, að þangað koma tæpast aðrir en þeir, sem eingöngu koma þangað til þess að læra, en ekki aðeins til þess að vera í skóla. Þeir koma af áhuga fyrir að menntast, enda afla þeir líka flestir sjálfir þeirra fjármuna, sem þeir.þurfa til þess að geta stundað þar nám og verða margir að leggja hart að sér bæði við öflun fjármunanna og við námið sjálft, til þess að geta náð sæmilegum árangri. Og það ánægjulega er, að árangurinn hefur hjá flestum orð- ið góður. En með bættum skilyrðum fyrir skólann gæti árangurinn þó orðið miklu meiri. Það er því tvímælalaust eitt af hinum nauðsynleg- ustu og mest aðkallandi verkefnum, sem samvinnu- menn í landinu þurfa að leysa alveg á næstunni, að byggja hentugt og nægilega stórt hús yfir skól- ann. Það á að gera Samvinnuskólann vel úr garði og veita sem allra flestum ungum og efnilegum sam- vinnumönnum tækifæri til þess að leita sér þar mennt- unar, og skapa með því öruggan grundvöll undir aukinn vöxt og öryggi samvinnunnar í landinu á kom- andi árum, því á félagslegum þroska og þekkingu félagsmanna og starfsmanna byggist viðgangur sam- vinnuhreyfingarinnar, eins og annara félagsmálasam- taka í lýðfrjálsu landi. Guðl. Rósinkranz. ins félagsþroska og eflingar raunverulegs samvinnu- anda, er áreiðanlega ekki á glæ kastað. íslenzkir sam- vinnumenn, við megum ekki vera alltof sparsamir, þegar hin andlega starfsemi á í hlut. Við höfum ekki efni á því. Gl. R. 74

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.