Samvinnan - 01.07.1942, Page 11
6. HEFTI
SAMVINNAN
Heimilið — Kvenfólkið — Börnin
Húsmæðrafræðslan þarf
að aukast.
Áður fyrr var það almenn skoðun, að
matartilbúning og önnur heimilisstörf
þyrftu stúlkur ekki að læra beinlínis,
það lærðu þær óafvitandi af því að vera
með þeim eldri við heimilisstörfin. Það
mun líka hafa verið rétt. Áður unnu
ungar stúlkur meira á heimilunum en
þær gera nú eða hafa gert hina síðari
áratugi.
Á fyrri stríðsárunum 1914—’18 kom
breytingin. Þá byrjuðu stúlkur, í fjar-
veru karlmannanna, sem voru á vígvöll-
unum, að vinna utan heimilisins, á skrif-
stofum, í búðum, veitingahúsum og í
verksmiðjum. Síðan hefur það haldizt að
stúlkur ynnu utan heimilisins, líkt og
piltar, og þar af leiðandi fá þær ekki
sömu æfingu í því að vinna heimilis-
störf og áður, og læra þau þess vegna
ekki, nema að mjög litlu leyti, nema þær
fari í skóla til þess, en það gera ekki
nema tiltölulega mjög fáar stúlkur. Ekki
eru heldur nægilega margir skólar til þess.
Þess vegna er það svo nú orðið, að fjölda
margar stúlkur kunna ekki einföldustu
húsverk og að búa til algengan mat. Það
er því mikil nauðsyn á því, að til séu
ódýrir skólar fyrir stúlkur til þess að læra
að annast um heimili og búa til mat.
Nú orðið læra telpur lítilsháttar mat-
artilbúning í efstu bekkjum barnaskól-
anna í Reykjavík. Einnig læra þær að
sauma dálítið og prjóna, og það munu
þær læra í flestum barnaskólum. En þetta
er eðlilega lítið og ófullnægjandi, og stúlk-
ur gleyma því brátt, ef þær snerta ekki á
þessum verkum á heimilunum. Ef þær eiga
svo að vinna í húsi eða stofna sjálfar
heimili, kunna þær lítt til verka. Þess
vegna er það mjög nauðsynlegt, að stofn-
aðir verði ódýrir skólar. En til þess að
skólarnir geti verið ódýrir, verður náms-
tíminn að vera stuttur. í skólum þessum
þarf að kenna að búa til allan algengan
mat. það er aðalatriðið, og jafnframt öll
önnur algeng heimilisstörf.
Að vísu eru nokkrir húsmæðraskólar til
Og sjálfsagt ágætir, en þeir eru fyrst og
fremst alltof fáir til þess að stúlkur al-
mennt geti haft tækifæri til þess að
stunda þar nám, og í öðru lagi eru þeir
of langir og þess vegna dýrir.
Gott lag kemst tæpast á þessi mál nema
því aðeins að hússtjórnarnám verði skyldu-
námsgrein í framhaldsskólunum, fyrir
stúlkur, og að þær, sem ekki fara í neina
framhaldsskóla, gangi á einhver nám-
skeið, sem sé skylduframhaldsnám eftir
barnaskólana.
Menntun hinna væntanlegu húsmæðra
er áreiðanlega meira nauðsynjamál, en
margur hyggur. Þaö er áreiðanlegt, að
það eru mikil verðmæti, sem nú fara til
spillis á heimilum landsins af kunnáttu-
leysi, bæði húsmæðra og vinnustúlkna.
Það eru engar smáræðis upphæðir, sem
fara gegnum hendurnar á öllum hús-
mæðrum landsins, svo það þarf ekki að
vera svo mikið, sem fer til spillis hjá
hverri þeirra, sökum vanþekkingar og
athugaleysis, til þess að það verði stórar
upphæðir samanlagt á öllu landinu. Ef
heimilin á öllu landinu eru um 25 þús-
und, sem láta mun nærri, þá fer ekki
fjarri, með þeim tekjum, sem fólk
hefur nú, að húsmæður landsins ráð-
stafi um 145—160 miljónum króna á ári.
Þó ekki færi nú nema eins og eitt pro-
cent af þessari upphæð til spillis, sökum
vankunnáttu húsmæðranna, sem sjálfsagt
er alltof lág áætlun, þá næmi sú upphæð
um 1,5 milljónum króna.
Af þessu verður ljóst, hve geysiþýðing-
armikið það er, að húsmóðirin hafi góða
þekkingu til að bera á öllu því er snertir
rekstur heimilisins. Húsmæðraskólar, hag-
kvæmir og ódýrir, eru því án efa ein-
hverjir þörfustu skólar landsins, frá þjóð_
hagslegu sjónarmiði.
Nokkur skriður er nú, að því er virðist,
að komast á húsmæðrafræðsluna. Sveit-
irnar hafa komið upp fjórum myndar-
legum húsmæðraskólum. Einn húsmæðra-
skóli, sá fyrsti hér í Reykjavík, svo tal-
ist geti, var stofnaður í vetur. Og nú
fyiir skömmu var Helga Sigurðardóttir,
matreiðslukennslukona, að auglýsa að í
haust ætlaði hún að stofna matreiðslu-
kennaraskóla. En allir þessir skólar eiga
það sameiginlegt, að þeir ná ekki til
fjöldans, til þess eru þeir í fyrsta lagi of
litlir, en í öðru lagi of dýrir og þess vegna
þarf húsmæðrafræðslan bæði að aukast
og breytast.
Stúlkur í nýtízku verksmiðju.
75