Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 11

Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 11
Kaupfélag Hafnfirðinga f rir út k viarnar Opnaði tvær nýjar Það er ótrúlegt en satt, að í svo miklum útgerðarbæ, sem Hafnar- fjörður er, skuli ekki hafa verið til veiðarfærabúð fyrr en í síðastliðn- um mánuði. En nú hefur Kaupfélag Hafnfirðinga opnað slíka búð rétt við höfnina, og þar er á boðstólum bvað- eina, sem sjómenn kann að vanhaga um, frá heilum línum uppsettum til beitingar, niður í smæstu áhöld. Verzlun þessi er nú til húsa í hinu gamla gistihúsi, Hótel Þresti, á horni Strandgötu og Reykjavíkurvegar, en í því sama húsi opnaði KfH einnig skóbúð skömmu fyrir hátíðar. Eru báðar búðirnar sérlega smekklega innréttaðar, samkvæmt uppdráttum frá Teiknistofu SIS, og eru þar tekn- ar upp ýmsar nýjungar, sem stefna að auknum þægindum fyrir við- skiptamenn. Með opnun þessara tveggja deilda sötubúðir í desember hefur Kaupfélag Hafnfirðinga fært rnjög út kvíarnar, og hefur það nú átta deildir. Matvörubúðir félagsins eru fjórar, en auk þess rekur það vefnaðar- og búsáhaldadeild, bygg- ingavöruverzlun, veiðarfæraverzlun og skóbúð. Þá er verið að undirbúa stofnun pöntunardeildar, að því er kaupfélagsstjórinn, Ragnar Péturs- son, skýrði Samvinnunni nýlega frá. Félagar í KfH eru nú hátt á tí- unda hundrað, og er það mikið, þeg- ar þess er gætt, að fjölskyldur geta varla verið mikið yfir 1000 í Hafnar- firði. Var kaupfélagið stofnað 1945, og er því aðeins á sjöunda starfsári, en áður hafði starfað í bænum deild úr KRON. I stjórn félagsins eiga nú sæti þessir: Ölafur Þ. Kristjánsson, formaður; Öskar Jónsson, frkv.stj.; Guðjón Guðjónsson, skólastjóri; Þórður Þórðarson, verkstjóri og Ur vciðarfœrageymslu Kaupfélags HafnfirÖinga. FélagiÖ selur fjölda bdta öll veiÖarfceri peirra. Guðjón Gunnarsson, framfærslufull- trúi. NÝJU DEILDIRNAR. Hin nýja skó- og karlmannafata- verzlun KfH er sérlega snyrtilega innréttuð, með óvenjulegri litasam- setningu og ýmsum nýjungum. Sýn- ingaskápar úr gleri eru á gólfi búðar- innar, og gefst viðskiptamönnum þar tækifæri til að skoða sýnishorn (Frh. á hls. 14) Til instri er skó- og karlmannafataverzlunin, en til hœgri veiöarftrradeildin, sem Kaupfélag Hafnfirðinga opnaði i siðastliðnum mánuði. 7

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.