Samvinnan - 01.01.1952, Qupperneq 27
Námskeið fræðsludeiltlarhinar i meöferð kvikmyndavcla. Frú vinslri:
Magnús Jóhannsson, kennari; aflari röö: Björgain Jónsson, Alberl Cuö-
niundsson. Hallgrimur Th. Björnsson, Jóhannes Finnsson. Sitjandi: Her-
mann Þorsleinsson, Baldvin Þ. Kristjánsson og Guðlaugur Eyjólfsson.
þegar raflögn er frá skil-
in. Þegar byggingunni var
lokiö, efndi kaupfélagið til
samsætis og sátu það um
40 manns og stóð hófið
langt fram á nótt við veit-
ingar, ræðuhöld, söng og
rabb.
Veður var hið indælasta,
sem hugsazt getur. Hinir
háreistu fjallatindar um-
hverfis skörtuðu með tign
sinni og fegurð í kvöldsól-
skininu og næturkyrrðinni.
En Trékyllisvíkin og Norð-
urfjörðurinn, umlukt af
hinum þrönga fjallahring,
voru sem gáralaus stöðu-
pollur.
í ræðum manna kom
fram trú á samvinnuna
sem réttlátustu og lýðræð-
islegustu leiðina til sjálfs-
hjáipar og sjálfsbjargar, og
sterkur hugur á því að
halda tryggð við ættbyggð
sína og hopa hvergi, þótt
erfitt árferði hafi þrengt
að nú um skeið. Þeim, sem
hóí þetta sátu, munu seint
gleymast hin viturlegu orð
formanns félagsins, Péturs
Guðmundssonar í Ófeigs-
firði, um leit manna að lífs-
hamingjunni, er oft væri
leitað langt yfir skammt,
því ekki stæði slíkt i beinu
sambandi við auðsöfnun
eða yfirborðsvelgengni. Og
um félagsstarfið sagði
hann: Það er auðvelt að
vera góður félagsmaður,
þegar allt leikur í lyndi og
ekkert bjátar á. En það
reynir fyrst á félagsþrosk-
ann, þegar á móti blæs,
erfiðleikarnir steðja að og
eitthvað þarf í sölurnar að
leggja, en því má alltaf
gera ráð fyrir. Þá fyrst
kemur í ljós, hverjir eru
raunverulegir félagsmenn.
Það kom fram í ræðum
manna, hversu sterkan
þátt stofnun og starf kaup-
félagsins hafði átt í að
létta lífsbaráttu þeirra og
feðra þeirra. í því sam-
bandi voru rifjuð upp orð
Valgeirs Jónssonar í Norð-
urfirði, sem var einn af
stofnendum félagsins og
stuðningsmaður þess til
dauðadags, að síðan farið
var að verzla í Norðurfirði,
hefði enginn þurft að þola
neyð eða skort, sem fram
að þeim tíma hefði verið
algengt í þessu byggðar-
lagi.
KVIKMYNDA-
NÁMSKEIÐ
Dagana 16.—18. nóvem-
ber s.l. var haldið námskeið
fyrir kvikmyndasýningar-
menn frá samvinnufélög-
unum í Radíó- og raftækja
stofunni á Óðinsgötu 2,
Reykjavík. Annar meðeig-
andi stofunnar, Magnús
Jóhannsson, var kennari,
en þeir Sveinbjörn Egilsson
og hann eru eftirlits- og
viðgerðarumboðsmenn fyr-
ir Bell & Howell kvik-
myndasýningarvélar hér á
landi, og eru langflestar af
þeim 10—12 vélum, sem
kaupféiögin eiga nú eða
ráða yfir, einmitt þeirrar
tegundar. Baldvin Þ. Krist-
jánsson setti námskeiðið í
nafni fræðsludeildar SÍS.
Gat hann þess, að rétt
meðferð á kvikmyndum og
sýningarvélum væri mjög
þýðingarmikil, því að tæk-
in eru dýr og oft erfitt að
fá í þau varastykki. Áhugi
og jafnvel bein tilmæli um
slíkt námskeið sem þetta
hefði komið fram bæði á
síðasta aðalfundi Sam-
bandsins og landsfundi fé-
lagsmálafulltrúa kaupfé-
laganna.
Þátttakendur á þessu
fyrsta námskeiði kvik-
myndasýningarmanna sam
vinnuíelaganna voru þess-
ir: Albert Guðmundsson,
kaupfélagsstjóri, Tálkna-
firði, Baldvin Þ. Kristjáns-
son, erindreki SÍS, Reykja-
vík, Björgvin Jónsson, bók-
ari, Selfossi, Guðlaugur
Eyjólfsson, kaupfélagsstj.,
Fáskrúðsfirði, Hallgrímur
Th. Björnsson, kaupfélags-
íormaður, Keflavík, Her-
mann Þorsteinsson, full-
trúi í SÍS, Reykjavík, Jó-
hannes Finnsson, skrif-
stofustjóri, Akranesi og
Vilhjálmur Árnason, skóla-
stjóri Bréfaskóla SÍS, Rvík.
Kennslan fór aðallega
fram í fyrirlestrum Magn-
úsar um gerð kvikmynda
og sýningavéla, en einnig í
verklegum æfingum þátt-
takenda, kvikmyndasýn-
ingu, límingu filmu o. fl.
Á síðastliðnu ári jókst
nokkuð sú starfsemi
í'ræðsludeildar SÍS að út-
vega sambandsfélögunum
mjóíiimur til sýninga. Hef-
ir deildin nú á sínum veg-
um nokkrar góðar, leiknar
myndir af „fullri lengd“ og
allmarga styttri þætti, auk
þess sem oft eru útvegaðar
kvikmyndir frá öðrum að-
ilum. Af þessu sést, að
möguleikar til talsverðr-
ar notkunar sýningarvéla
sambandsíélaganna eru
þegar fyrir hendi, enda
þótt langt sé i land með
að kvikmyndasýningamál-
um kaupfélaganna sé kom-
ið í viðunandi horf. En von
ir standa til bóta, þótt hægt
fari af ýmsum ástæðum.
HÚ SMÆÐR AFUND-
IR ÁRNESINGA
Kaupfélag Árnesinga hef-
ur undanfarin 4 ár haldið
reglubundna húsmæðra-
fundi fyrir konur úr öllum
hreppum sýslunnar. Hefur
félagið gert þetta af mikl-
um myndarskap og einskis
látið ófreistað til þess að
samkomurnar yrðu sem á-
nægjulegastar. Nú síðast
voru húsmæðrafundir KÁ
haldnir á tímabilinu 26.
nóv. til 4. des. Fundarstað-
ir voru 7, í þeirri röð sem
hér segir: Hveragerði,
Stokkseyri, Laugarvatn,
Brautarholt á Skeiðum,
Eyrarbakki, Félagslundur í
Gaulverjabæ og Selfoss.
Samtals sótti 820 manns
þessa fundi og hafa þeir
aldrei verið fjölmennari.
Samkomutilhögun að þessu
sinni var sú, að fyrst var
komið saman í fundar-
formi. Þar flutti kaupfé-
lagsstjórinn, Egill Thorar-
ensen í Sigtúnum, ávarp.
Baldvin Þ. Kristjánsson,
forstöðumaður fræðslu- og
félagsmála SÍS, hélt stutta
ræðu og svaraði spurning-
unni um það, hvers vegna
fólk gerðist félagsmenn
samvinnusamtakanna. Þá
las hinn víðkunni rithöf.
Kristmann Guðmundsson
upp úr skáldritum sínum,
ýmist smásögur eða kafla
úr stærri verkum. Enn-
fremur sýndi Baldvin ýmsa
kvikmyndaþætti, aðallega
tónmyndir, þ. á. m. hina
vinsælu Toscanini-mynd.
Að þessu loknu var sam-
komunni snúið upp í sam-
sæti, sameiginlega kaffi-'
drykkju, sem kaupfélagið
bauð til. Var þar jafnan
glatt á hjalla og lengi set-
ið við upplestur, ræður og
almennan söng. — Egill
stiórnaði samkomunum.
Ekki er ofmælt, að fund-
ir þessir hafi tekizt hið
bezta, enda eru þeir þegar
orðnir miög vinsælir í hér-
aðinu. Telur kaupfélags-
stjórinn að þessum árlegu
húsmæðrafundum Kaupfé-
lags Árnesinga muni hald-
ið áfram framvegis í ein-
hverri mynd, þar eð reynsl-
an hafi sýnt, að þeir eigi
vissulega fullan rétt á sér.
Mættu fleiri kaupfélög taka
KÁ til fyrirmyndar, hvað
23