Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1952, Page 31

Samvinnan - 01.01.1952, Page 31
i um hjartarætur af þakklæti til hennar. Þegar gest- iinir voru farnir, sneri hann sér til hennar brosandi: „O, ;i'tm mín, en hvað þú varst indæl við þau. Finnst þér kki frekar gaman að þeim? Eg held að Rob sé einhver greindasti maður, sem ég þekki, og konan hans er hrein perla.“ Berta smeygði sér mjúklega úr örmum hans. „Ég veit ekkert um greind hans,“ sagði hún, „en hann kann ekki mannasiði frekar en villimaður, og konan hans ekki held- ur. Eg vona að ég þurfi ekki að bjóða þeim hingað aftur!“ „Þe-ess þarf ekki,“ stamaði Andrés. Honum fannst hann hafa orðið undir hlassi. Áður en hann áttaði sig, gekk Berta mjúkum skrefum yfir stofuna og sagði, um leið og hún sneri sér við í dyrunum: „Ég hélt um tíma, að hann ætlaði að nota fingralaugina fyrir spýtubakka!“ Róbert Dalton ímyndaði sér í öllu sakleysi, að þau hjónin hefðu fallið hinni yndislegu konu Andrésar mjög vel í geð, og Andrés þurfti að upplifa marga óþægilega stund, áður en Róbert skildist, að þeim yrði aldrei boðið aftur og kona Andrésar mundi aldrei stíga fæti inn í hús þeirra. Hann skddi þetta aldrei að fullu. Hann reyndi að átta sig á því, sem gerzt hafði, en árangurinn varð ekki ann- ar en sá, að vinátta þeirra Andrésar kólnaði. Áður en langt var liðið, forðuðust þeir hvor annan þessir menn, sem höfðu fæðzt á sama degi, af mæðrum, sem voru virkta- vinir og höfðu verið óaðskiljanlegir frá barnæsku til há- skólaprófs. Fimm árum síðar lézt Róbert eftir bifreiðar- slys, og Andrés frétti um það í klúbbnum. Hann gekk langa stund um göturnar, áður en hann gat fengið sig til að fara heim. Berta hafði lesið um slysið í blöðunum og var full samúðar í garð hans. Nokkru síðar kom víðfrægt enskt skáld til bæjarins til að flytja þar fyrirlestur. Hann gisti hjá gömlum kenn- ara sínum um helgina. Engin þeirra kvenna, sem sendu honum heimboð, dró í efa rétt Bertu til að bjóða honum til sín fyrst, og hún hélt kvöldverðarveizlu tii heiðurs skáldinu kvöldið fyrir fyrirlesturinn. Gestirnir voru vald- ir með meiri umh}rggju en nokkru sinni. Hún fékk þjónustufólk lánað frá tengdamóður sinni, stúlku til að taka við yfirhöfnum gestanna, og þjón til að bera fram matinn, en hennar eigin ráðskona, Edit, annaðist matreiðsluna, enda var hún snillingur á því sviði. Hún var mjög handgengin Bertu, sern leyfði henni að vinna þriggja manna verk fyrir ein laun. Hið fræga skáld gerði lítið til að gera veizluna ánægju- lega. Hann leit á gestina, þegar sezt var að borðum, rétt eins og þeir væru varl.i verri en hann hafði átt von á. Þegar Berta reyndi að draga hann inn í samræður, brosti hann örlítið og svaraði eúis atkvæðis orðum. Eftir það borðaði hann af góðri lyst og skaut stöku sinnum einu eða tveim orðum tií frúatinnar, sem sat á vinstri hönd honum. Hún varð svo höggdofa, að hún gat ekki svarað orði. Berta sýndi nú hvílík s ■> tk'æmishetja hún var. Hún hélt ein uppi leiknum, en gt..^irnir fóru of mikið hjá sér vegna hinna sýnilegu leiðinda neiðursgestsins til að rétta henni nokkra hjálparhönd. Jafnvel Andrési leið illa. Hon- um þótti hin dónalega framkoma gestsins fyrir neðan all- ar hellur, og hann hryggði't yfir vonbrigðum Bertu með veizluna. Hún hafði eytt inörgum dögum í uridirbúning, og nú var allt að fara ut um þúfur. Og við þetta bættist, að honum til mikillar skelfingar fann hann til kitlandi, illgirnis hlökkunat yfir þessum óförum konunnar. Þetta var í fyrsta sinn á ævi Bertu, sem henni mistókst alvarlega í samkva.mislífinu. Hann velti því fyrir sér, hvort þetta hefði hvarflað að nokkrum öðrum, sein sat við borðið. Og illgirnin óx i honurn, er hann sá á svip hinna kvennarina, að þær kenndu aðeins í brjósti um Bertu og fylltust kvíða um sínar eigin veizlur. Fýlusvipurinn jókst á andliti hins ntikla skálds eftir því sem leið á kvöldverðinn. Þegar staðið var upp frá borðum um muleytið og gengið inn í setustofuna, ríkti alger þögn. Biata tók á óllum sínum kröftum og gerði öt- þrifatilraun til að vekja manninn til lífs. „Ég vona, að þér hafið anægju af tónlist,“ sagði hún. „Ef svo er, get ég lofað yður að heyra dálítið óvænt.“ Gestur hennar leit á ú- sitt. „Því miður má ég til með að fara,“ sagði hann. „Eg ma u! un-.' ,ið ræða við Dorothy Dalton um atriði varðandi fyrirlestui minn annað kvöld. Eg gekk úr skugga um, að hún yrði heima, og það verð- ur of seint að líta til hennar, ef ég verð lengur. Ég hitti hana oft í New York og París áður fyrr.“ Þegar hann kvaddi sást fyrsta lífsmark með honum allt kvöldið. Hugrekki Bertu brást ekki. Hún hélt sam- kvæminu lifandi fram til klukkan ellefu og var ekki að sjá á henni annað en að allt hefði farið prýðilega fram. Þegar síðasti gesturinn var farinn, sneri hún sér að And- rési með svip, sem drap samhryggðarorðin á vörum hans. „Eg á þér að þakka, hvernig fór í kvöld,“ sagði hún ró- lega. „Ég veit ekki hvað komst upp á milli ykkar Róberts Dalton, en nú sérð þú afleiðingarnar, þar sem mér er ókleift að bjóða einu þekktu konunni í þessum bæ.“ Andrés hafði lengi dulið reiði sína, en nú brauzt hún 27

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.