Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1978, Síða 5

Samvinnan - 01.03.1978, Síða 5
Um þessar mundir eru að koma á markaðinn í kaupfé- lagabúðum og öðrum matvöru- verzlunum um land allt þrjár nýjar tegundir af kexi. Þær eru í ilöngum og kringlóttum pökk- um, bláum, gulum og brúnum. Hinar smekklegu umbúðir um kexið eru hannaðar af Helgu Sveinbjörnsdóttur teiknara. en tegundirnar eru mjólkur- kex, vanillukex og kornkex. Eru þetta fyrstu framleiðsluvörur hinnar nýju iðngreinar, kex- framleiðslunnar, sem sam- vinnuhreyfingin hefur nú haf- ið starfsemi á. Vélarnar í kexverksmiðjuna voru keyptar frá írlandi, og komu þær til landsins í ágúst á síðasta ári. Skömmu síðar var hafizt handa við niðursetningu þeirra, og tók það verk hálfan þriðja mánuð. Verksmiðjan er til húsa í sal, sem liggur með endilangri norðurhlið Holta- garða. Undanfarið hefur verið unnið að prófun vélasamstæð- unnar, en rækilega þurfti að reyna öll tæki og allar upp- skriftir, áður en fyrsta fram- leiðslan var send á markaðinn. Eins og áður hefur verið skýrt frá var verksmiðjunni gefið nafnið Kexverksmiðjan Holt. Örnólfur Örnólfsson bakarameist- ari: — Við erum sem óðast að ná fullum tökum á öllum stigum framleiðslunnar. • 56 metra langur bakarofn Sjálfur verksmiðjusalurinn er 86 metra langur, og er hann málaður í hólf og gólf og allur hinn snyrtilegasti. Eins og gef- ur að skilja veltur á miklu, að þar sé fyllsta hreinlætis gætt í alla staði, þar sem um við- kvæma matvælaframleiðslu er að ræða. Með annarri hlið sal- arins stendur bakarofninn, sem er engin smásmíði, 56 metrar á lengd. í öðrum enda salarins, við enda ofnsins, er deigið hrært, venjulega um 400 kíló í lögun, og er það gert i stórri þar til gerðri hrærivél. Úr hrærivélinni er deig- inu lyft upp og hvolft ofan í sjálfa bökunarvélina. Þar rennur það fyrst á milli nokk- urra valsa, sem jafna úr því og gera það að sléttri samhang- andi lengju. Þessi lengja fer síðan inn í sérstaka vél, sem A þessum svipmyndum úr Kexverksmiðjunni Holt má sjá í stórum drátt- u,u gang framleiðslunnar. Kökurnar renna hægt á færibandi í gegnum bakarofninn og koma siðan að pökkunarvélinni. MYNDIR: EFFECT — S. ÞORGEIRSSON /i a

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.