Neisti - 30.01.1979, Side 1

Neisti - 30.01.1979, Side 1
1. tbl. 1979 - 30. janúar. ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIST Verð í lausasölu kr. 200. Eflum samningsrétt BSRB 4 ld AS AFJI 7 Baráttan fyrir víðtækari samnings- rétti BSRB varðar allt launafólk. Frá stofnun BSRB 1942 hefur krafa þess verið: Samnings- og verkfallsrétt til samræmis við annað launafólk, þótt áherslan á þetta baráttumál hafí verið misjöfn. Sá verkfallsréttur sem knúinn var fram í víðtækri baráttu samtak- anna á árunum 73-76 var að ýmsu leyti skertur í samanburði við það sem gildir um annað launafólk og kveðið er á um í vinnumálalöggjöfinni. Vinnumálalöggjöfín frá 1938 var sett af borgarastéttinni í kjölfar langvinnra verkfalla. Hún skyldi vera eins konar rammi fyrir baráttu verkafólks svo hún skaðaði ekki þýðingarmestu máttar- viði þjóðskipulagsins. Hún var þannig sett til að skerða rétt verkafólks til að beita verkfallsvopninu, en til að hún gæti orðið að veruleika varð hún um leið að tryggja verkafólki ákveðin lágmarksréttindi. Á tímum þegar barátta verkalýðsins er veiburða og gagnvart ákveðnum hópum innan stéttarinnar getur vinnumálalöggjöfín þannig orðið mikilvæg trygging. Þessi lágmarksákvæði verður verkalýðs- stéttin að verja um leið og hún má ekki skirrast við að brjóta á bak aftur þau ákvæði laganna, sem beinast gegn hagsmunum verkafólks, þegar hún hefur til þess styrk. Vinnumálalöggjöfín endurspeglar styrkleikahlutföllin milli stéttanna. Atvinnurekendur og ríkisvald hafa í seinni tíð notað hvert tækifæri til að brjóta gegn þessum lögum til hagsbóta fyrir sig eða breytt þeim í sama skyni. Það er tímanna tákn að atvinnu- rekendur og íhaldsöflin hafa á síðustu árum haft í bígerð stórfellda árás á verkfalls- og samningsréttinn. Að mörgu leyti hafa þessi öfl viljað breyta verkfallsréttinum almennt í þá veru sem BSRB býr við nú, t.d. að svipta félögin sjálf samningsréttinum en færa hann með lögum í hendur heildarsam- takanna. Það er ekki síst í Ijósi þessara árása sem baráttan fyrir verkfallsrétti BSRB til samræmis við annað launa- fólk er mikilvæg fyrir alla verkalýðs- stéttina. Skertur réttur svo stórs aðila sem BSRB bætir stöðu borgarastéttar- innar til að ráðast á réttindi launafólks yfirleitt. Krafan um samnings- og verkfallsrétt opinberra starfsmanna til jafns við aðra er krafa allrar verka- lýðshreyfingarinnar. Rangur skilningur margra forystu- manna BSRB á stefnu og leiðum í baráttu fyrir verkfallsrétti hefur mjög hamlað sókninni í þessa máli. Þessi rangi skilningur birtist t.d. í því að talqð er um fullan samnings- og verkfallsrétt og þá átt við sama eða jafnvel enn takmarkaðri rétt en vinnu- málalöggjöfín er einnig er talað um að sá verkfallsréttur sem takmarkar frelsi einstakra félaga til að fara út í sjálf- stæðar aðgerðir geti verið betri en sá sem veitir þeim heimild til þess. Það er enginn verkfallsréttur full- kominn nema sá sem tryggir launa- fólki frelsi til að ákveða sjálft hvenær það selur vinnuafl sitt og hvenær ekki. Slflct frelsi verður ekki til meðan auðvaldsskipulagið er við lýði. Sérhver skerðing á þessum rétti, hvort sem það er lagaákvæði um frest til að heija vinnustöðvun eða ákvæði um hvaða aðili meðal launafólksins skuli fara með samningsvaldið er ekkert annað en yfírlýsing um að einhver annar en verkafólkið sjálft kunni betur að stjórna lífi þess og gerðum. Þeim mun betri er verkfallsrétturinn, sem hann er víðtækari, sem hann kemst nær þvíað tryggja hverjum og einum frelsi um sölu vinnuafls síns. Það hvernig verkfallsvopninu skuli beitt er innra mál þeirra hópa sem verkafólk kýs að skipuleggja sig í. Sérhver takmörkun á verkfallsrétti er ekki annað en yfirlýsing um að einhver annar en verkafólkið sjálft sé færari um að stjórna lífi þess og gerðum. BSRB hefur ekki styrk til að knýja fram víðtækari verkfallsrétt en þann sem aðrir launþegar búa við. Hins vegar getur það náð sama rétti ef vel er haldið á spöðunum. Viss upplausn í pólitískum stoðum borgarastéttarinn- ar ogóstöðugleiki íkjörfylgiflokkanna gerir að verkum að enginn þeirra þorir nú sem slíkur að fara í opið strið við svo stór samtök sem BSRB út af þessari jafnréttiskröfu. Möguleikar ríkisstjórnarinnar að verjast kröfum BSRB felast í að einangra umræðuna inni á lokuðum samráðsfundum, að sundra BSRB fólkinu, að skýrskota til hollustu ýmissa BSRB foringja við sig, til að þcir dragi úr kröfugerðinni. Allt þetta hefur gerst í einhverjum mæli. í stað þess að efna þegar í haust til víðtækra fundarherferðar, upplýsingaherferðar til að brýna liðið og efla samstöðuna um kröfuna: verkfallsrétt til jafns við aðra; í stað þess að ógna með valdi Loforð stóru verkalýðsflokkanna annað hvort svikin eða til sölu. Viðskipti BSRB forystunnar við ríkisvaldið í þessu máli eru dæmigerð fyrir hið svonefnda samráð verkalýðs- forystunnar við ríkisstjórnina um þessar mundir. Hvort sem um er að ræða kröfur um verndun kaupmáttar eða annað stillir forystan kröfugerð- inni svo í hóf að ríkisstjórnin þurfí ekki að neita henni á afgerandi og opinber- ann hátt. Stuðningur forystunnar við einhvern rfldsstjórnarflokkanna kem- ur í veg fyrir að þeir beiti sér fyrir opnu stríði gegn ákveðnum aðgerum henn- ar. f stað þess að virkja heildarstyrk hreyfingarinnar til varnar og sóknar beita þeir sterkri stöðu sinni til að halda ijöldastarfsemi niðri en syngja stjórninni þeim mun háværar lof og dýrð sem lausnara á öllum vanda verkafólks. Atvinnurekendur og ríkis- vald ganga á lagið. Smám saman vex þeirri skoðun fískur um hrygg að allt sé þetta sama tóbakið. Það gildir sama um verndun kaupmáttarins sem og um baráttu BSRB fyrir auknum samningsrétti: „Samráðið“ við ríkisstjórnina hefur aðeins leitt til undanhalds. Til að snúa þessu við verður að beita Qöldastyrk verkalýðssamtakanna og stefnu sem einungis tekur mið af hagsmunum verkafólks til skamms og langs tíma. Vilji forysta BSRB sinna skyldum sínum við hagsmuni umbjóðenda sinna og launafólks yfirleitt ber henni nú að blása til víðtækrar funda- og upplýsingaherferðar til að efla með- vitund hvers og eins um kröfuna um samningsrétt til jafns við annað launa- fólk. Henni ber að blása til allsherjar baráttu gegn afstöðu ríkisstjórnarinn- ar í málinu, án málamiðlana. Stilla ríkisstjórnarflokkunum upp við vegg í Ijósi fyrri yfírlýsinga og loforða. Geri hún þetta ekki verða úrslit málsins óhagstæð launafólki og forystan firrir sig trausti stórra hópa opinberra starfs- manna, og vegur flialdsins í BSRB mundi fara vaxandi til stórfells skaða fyrir verkalýðshreyfínguna. Samnings- og verkfallsrétturinn til félaganna. Höfnum kjaranefnd og öðrum gerðardómum. Engin lagaákvæði um gildistíma samninga. Sjá nánar á bls. 4 Víetnam - Kampútsea sjá bls. 8 Verðbólgnir ráðherra- stólar sjá bls. 4 fjöldans, einörðu og upplýstu, var sest inn á lokaða samráðsfundi og makkað um málamiðlunarlausn. Sérhver til- slökun af hálfu BSRB forystunnar hefur svo orðið sundrungarvaldur í röðum samtakanna, og nú er allt komið í hnút. Þáttur ríkisstjórnarinnar í þessu máli væri efni í sérstakan leiðara. Það er ekki nóg með að hún hafí reynt að takmarka réttarbæturnar sem mest, m.a. með því að standa einörð gegn kröfunni um verkfallsrétt til félaganna. Heldur stendur hún fast á því að fyrir þær takmörkuðu réttarbætur sem hún er til í að gefa eftir verði að borga með 3% af launum. Hingað til hafa þessir þrír flokkar komið fram sem einn í þessari afstöðu. Ótal loforð Alþýðu- bandalags og Alþýðuflokks um að beita sér fyrir þessum jafnréttiskröfum eru því nú annað hvort svikin eða til sölu. Viðtal við bandarískan félaga „Verkafólk leitar nú ákaft eftir einhverjum valkosti við núverandi ástandi. Það er þess vegna alls ekki andsnúið sósíalískum hugmyndum.w sjá bls. 6 Efnahagsm álafrumvarp A Iþýðuflokksins sjá bls. 2

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.