Neisti - 30.01.1979, Síða 3

Neisti - 30.01.1979, Síða 3
1. tbl. Neista 1979, bls. 3 VIÐ BORGUM EKKI! - VIÐ BORGUM EKKI! - eina raunhœfa lausnin á verð bólgunni leikhússtofnanir og stofnaði leikfélag- ið Nuova Scena í samvinnu við Komm- únistaflokkinn og verkalýðssamtök kommúnista. Upp úr því slitnaði þó vegna ágreinings, en um þetta skref hefur Dario Fo sagt að hann hafi viljað nálgast verkafólk, sem sækir lítið leik- hús á Ítalíu. Þess vegna flutti hann verk sín í verksmiðjum sem voru á valdi verkamanna, á torgum og á mörkuð- um. „ Við höfðum ekki áhuga áað vera leikfang borgaralegrar syndakvittunar lengur. . . . Sá sem vill koma til okkar verður að fara irn í verkamannahverf- in. Og þar situr ekki sjálfumglaður borgari í mjúkum stól með konu sina í brokadekjól sér við hlið heldur aðeins maðurinn sem hefur áhuga ásinni eigin menningu. “ Frá þessum tíma vill hann heldur ekki að verk sín séu sýnd í stórum stofnanaleikhúsum - eins og Þjóðleikhúsinu. Það minnir mig á hversu átakanlegt það er að ganga í björgin við Hverfisgötu til að horfa á td. verk eftir Brecht. Alþýðufólk fer meira í leikhús hér en víðast hvar. Þá klæðir það sig upp og gengur í björg prúðbúið eins og huldufólk á nýárs- nótt, læðist um fín teppi til að setjast í fína stóla og salurinn angar af ilmvatni. Leikhús eins og Þjóðleikhúsið er til að gleyma dagsins önn, gleyma veruleik- anum en ekki reyna að skilja hann - og breyta honum. í slíku leikhúsi verður Brecht - eða Dario Fo - að borgara- legri syndakvittun. takendur í fundunum hvöttu leikhóp- inn til að semja leikrit tengt baráttunni. Úr því varð til þetta leikrit Við borg- um ekki! Við borgum ekki! Það var fyrsta leikritið sem var sýnt í þessu húsi. og Alþýðuleikhúsið Það hefur gengið á ýmsu hjá Dario Fo. Árið 1963 bauðst honum að stjórna útvarpsþáttum í ítalska útvarp- inu. Þar varð hann of pólitískur og var látinn hætta. í pólitíska fjörinu 1968- 69 sagði hann skilið við borgaralegar Dario Fo vill annars konar leikhús. * ryg Alþýðuleikhúsið, sem nú tekur upp þetta verk Dario Fo Við borgum ekki! Við borgum ekki, er leikhús sem ætlar sér annað hlutverk en Þjóðleikhúsið. Með aðdáanlegri þrautseigju hefur það nú fært út kvíarnar og stofnað deild í Reykjavík, þrátt fyrir gífurlega fjár- hagsörðugleika og litla sem enga von um nokkurn opinberan styrk. Og með aðstoð Dario Fo snýr þessi nýja deild sér beint að brýnasta vandamáli verka- lýðsstéttarinnar á Islandi í stað: Meðan hvarvetna glymur kallið „ Verkafólk verður að leggja sitt af mörkum í barát.anni við verðbólguna" er hrópað á móti niðri í leiksalnum í Lindarbæ „ Við borgum ekki! Við borgum ekki!" Það er eina svarið sem verkalýðsstéttin á, hún ber enga ábyrgð á kreppu auð- valdsins, henni ber engin skylda til að borga fyrir óráðsíu auðvaldsins. (Gam- an væri ef þeir sem ráða ríkjum ofan við salinn skryppu einhvern tíma niður). Ég hvet alla til að fara að sjá þetta leikrit, þar sem er bæði hægt að hlæja og læra. Og tökum öll undir: Við borgum ekki! Við borgum ekki! PS. I síðasta hefti tímaritsins Svart á hvítu eru fróðlegar greinar um bæði Alþýðuleikhúsið og Dario Fo, en þaðan er mörgu stolið sem er í þessari grein. Einar Ólafsson. Ráðherrar og þingmenn verkalýðs- flokkanna á íslandi segja þjóðinni að snúa bökum saman í baráttunni við verðbólguna - það þýðir að meðan alþýðufólk snýr bakinu að atvinnu- rekendum og bröskurum læðast þeir í vasa þess og stela aftur þeirri smánar- lus sem það fær borgað fyrir vinnu sína. Hafa ekki atvinnurekendur og allra handa braskarar alltaf reynt að hafa af verkafólki eins og þeir geta? Og munu alltaf gera. Og það er orsök verð- bólgunnar. Það vita líka ráðherrar og þingmenn Alþýðubandalagsins. Þeir eru varla alger fífl. Þegar launin hækka knýja kaup- menn og atvinnurekendur á að vörurnar verði hækkaðar. Það gefur auga leið að þá eigum við um tvennt að velja: að láta annað hvort ekki hækka, launin eða vörurnar. Svar verkalýðs- stéttarinnar hlýtur að vera aðeins eitt: Við borgum ekki. Við borgum ekki meir í dag en í gær. Við framleiðum vörurnar, við neytum þeirra, hver á að ráða vöruverðinu ef ekki við? Við borgum ekki! Við borgum ekki! Það var árið 1974 á Ítalíu. Allt fór í klandur. Gengisfelling, atvinnuleysi, verðhækkanir. Með öllum brögðum var launum haldið í lágmarki og vinnu- vikan stytt víða. Það þýddi ekki að grípa til verkfalla þar sem verksmiðjurnar áttu nóg af óseldum vörum, það hefði frekar verið þeim kærkomið tækifæri til að draga úr framleiðslunni. En - eins og ráð- herrar og þingmenn Alþýðubandalags- ins segja - kjarabætur geta verið fólgn- ar í öðru en kauphækkunum: verð- lækkanir koma í sama stað niður. Og á Ítalíu árið 1974 beið verkafólk ekki eftir að ríkisstjórn handéraði tölurnar fyrir sig og byggi til 8-9% kjaraskerð- ingu undir nafninu kjarabætur. Verka- fólkið ákvað einfaldlega sjálft verð- lækkanir. Hver á líka að gera það annar? Fólkið borgaði einfaldlega það sem því fannst sjálfu réttmætt, og þegar allir stóðu saman að því var ekki annað fyrir kaupmennina að gera en taka við því sem að þeim var rétt. Hvorki Kommúnistaflokkurinn né forysta verkalýðsfélaganna hreifst verulega af þessu tiltæki fólksins, en að því kom að verkalýðsfélögin gátu ekki setið með hendur í skauti. Aðgerð- irnar, sem byrjuðu í smáum stíl, breiddust út og náðu loks til mestallrar Norður-ítalíu. Myndaðar voru hverfa- nefndir og haldnir fjölsóttir hverfa- fundir. Þar var ákveðið hversu miklar verðlækkanirnar skyldu vera. Fólkið heldur að sjálfsögðu ekki áfram að ráða vöruverðinu endalaust innan auðvaldssamfélagsins. Þessar aðgerðir höfðu fyrst og fremst tíma- bundna þýðingu, en ekki aðeins það, þær hafa líka skapað reynslu og for- dæmi. Við borgum ekki! Við borgum ekki! er ekki bara ítalskur farsi, það er líka ítalskur raunveruleiki op nauðsyn, og getur orðið raunveruleiki og er nauðsyn á íslandi. En það verður sífellt óraunverulegra fyrir íslenska alþýðu meðan trausti hennar er beint frá eigin afli að ríkisstjórn. Hverju breyta inn- antóm orð Svavars Gestssonar í Þjóð- viljanum 14. jan. sl. ef þau verða aldrei nema orðin tóm: „Flokkurinn á að beina mönnum frá refilsligum að- gerðarleysis yfir í sveit virkrar bar- áttu. “ Dario Fo - Síðan 1952 hefur Dario Fo helgað sig leiklist og ritstörfum tengdum henni. Hann stofnaði þá ásamt fleirum leikhóp, sem fljótlega lognaðist út af vegna ritskoðunarofsókna íhaldsafl- anna. Árið 1958 stofnaði hann aftur leikfélag ásamt konu sinni Franca Rame. Hann fór þá að íhuga í ríkari mæli alþýðuleikhús og kynnti sér meðal annars leikhús fyrri alda. Hann samdi leikritin og sviðsetti í náinni samvinnu við leikarana. Formið hefur hann gjarnan sótt í gömlu ítölsku alþýðufarsana. Hann hefur sagt að vinnan við verkið hefjist fyrst fyrir alvöru þegaræfingar hefjast. Ogstund- um leggja jafnvel tilvonandi áhorf- endur sitt að mörkum, þeir heimsækja leikhúsið meðan á æfingum stendur. Svo var td. þegar það leikrit varð til sem er tilefni þessarar greinar, Við borgum ekki! Við borgum ekki! Um það leyti sem fólkið á Norður- Ítalíu tók verðlagsmálin í sínar hendur fékk leikflokkur Dario Fo húsnæði í Mílanó, reyndar með aðstoð áhorf- enda sinna, verkamanna og stúdenta. Þeir tóku á sitt vald litla höll sem átti að rífa og svo fór að borgarstjórnin viðurkenndi umráðarétt leikhópsins á höllinni. Þarna voru svo haldnir hverfafundir í verðlagsstríðinu. Þátt- Endanleg afgreiðsla fjárlaga Afgreiðsla fjárlaganna einkenndist af upphlaupi Alþ.fl. Breytingarnar frá frumvarpinu einkenndust af eftirköst- um aðgerðanna 1. desember og þeirri reglu núverandi ríkisstjórnar að kaup- rán sé þegar kaupmáttur launa er lækkaður án þess að neitt komi í stað- inn, en það sé alls ekki kauprán þegar kaupmáttur launa er lækkaður um 8% og 3%, eða „ígildi" þess sé látið í stað- inn. Breytingarnar fólust að verulegu leyti í því að nokkuð var gengið til móts við kröfur verkalýðshreyfingarinnar í sambandi við aðgerðirnar 1. desember og minnkun niðurskurðar á opinber- um framkvæmdum. (Úr 16% í 12%). Skattvísitalan varhækkuðúr ! 43 í 150, sjúkratryggingagjaldið lækkað um 0,5% á lágum tekjum og 50% hátekju- skattþrep sett á. Þar eð laun voru um 52% hærri 1978 en 1977, þá merkir þetta að skattar verða ívið þyngri hjá almennu verkafólki í ár en í fyrra. (Þegar þetta er skrifað er óvíst um hækkun útsvarsins. Það er einnig ljóst að þótt hækkun fyrirframgreiðslunnar úr 70% í 75% jafni skattgreiðslur fólks yfír árið í krónum talið, þá verður skattbyrðin ekki þar með jafnari og raungildi skattanna hækkar.) En hækkun skattvísitölunnar leiðir vissu- lega til mikillar lækkunar skatta, eink- um hjá lágtekjufólki, miðað við það sem lagt var til í fjárlagafrumvarpinu! Til að mæta þessari lækkun skatta og hækkun útgjalda vegna hækkunar fjárfestinga, framlaga til verkalýðs- hreyfingarinnar (ASI fékk innan við 80 milljónir af rúmlega 200 milljónum, sem það fór fram á) ofi. þá voru tekju- og eignaskattar atvinnufyrirtækja hækkaðir nokkuð. Alls mun þessi skattahækkun fela í sér útgjöld fyrir at- vinnurekendur sem nemur um 7,5 milljörðum króna á ári. Við höfum bent á það áður í Neista að þetta möndl með visitölubætur, niðurgreiðslur og ríkisfjármálin sé ákafiega sérkennilegur bissness. Við- brögð þeirra sem taka þátt í honum eru ekki síður undarleg. Sarna dág og fjár- málafrumvarpið var samþykkt eftir mikið þref, birti Morgunblaðið álykt- un frá stjórn og varastjórn Verslunar- ráðs íslands sem bar yfirskriftina: „Hcfjum virka baráttu til varnar framtíð íslenskra fyrirtækja". Þessir virðulegu herramenn áttu ekki orð til að lýsa þeirri hættu sem steðjaði að lífsafkomu þjóðarinnar vegna þessara 7,5 milljarða. Auðvitað nefndu þeir ekki á nafn að atvinnurekendur höfðu fengið 30 milljarða frá ríkisstjórninni 1. desember (báðar tölurnar eru miðaðar við heilt ár. Þær eru „á ársgrundvelli".) Niðurstaða þeirra verður hinn margþvældi frasi um að „ekki er lengur um að ræða skattlagn- ingu tekna heldur hreina upptöku eigna". Undir þetta skrifuðu „öreigar" á borð við Hjalta Geir Kristjánsson, Þorvald Guðmundsson, Gunnar Pet- ersen o.fi. Viðbrögð sambandsstjórnar ASÍ við aðgerðunum 1. desember voru aftur á móti að hún hefði „íullan skilning á nauðsyn aðgerðanna". Hver sagði að sælla væri að gefa en þigfija! Á.D.

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.