Neisti - 30.01.1979, Side 12
1
Áskriftargjald fyrri hluta '79
- venjuleg áskrift kr. 2.000
- stuðningsáskrift " 3.000
Merktar greinar túlka ekki endi-
lega stefnu Fylkingarinnar.
Útgefandi: Fylking byltingarsinnaðra kommúnista
Aðsetur: Laugavegur S3A, sími 17513
Ábm.: Birna Þórðardóttir
Gírónúmer Neista er 17513-7
<
Frá fétagsfundi Sóknar
Hvert stefnir Sókn?
Sóknarfélagar á AST-þingi 1976
Veður virðast þar válynd innandyra
Þann 25. janúar var haldinn félags-
fundur Sóknar. Fundurinn var aug-
lýstur um kjaramál, enda hefur nokk-
uð lengi staðið til að Sókn hugsaði sér
eitthvað til hreyfings í því skyni að ná
fram sambærilegum launum og félagar
BSRB er vinna við hlið Sóknarfélaga á
sjúkrastofnunum. Ymislegt kom fram
á fundinum er varhugavert verður að
teljast og þykir okkur því rétt að rekja
hér gang fundarins.
Dagskrá fundarins var:
1. Uppsögn samninga.
2. Kröfugerð
3. Samninganefnd
4. Starfið framundan
Er fundur hófst var salurinn í Al-
þýðuhúskjallaranum þéttsetinn, þann-
ig að nokkrir fundarmenn urðu að
standa en aðrir að sitja uppá sviði.
Áður en gengið var til dagskrár var
lesin upp fundargerð frá félagsfundi
16. nóvember sl. Þar hafði komið fram
hjá öllum ræðumönnum, að ekki kæmi
til geina að krefjast minna en 180 þús.
kr. lágmarkslauna. Fundinum hafði
borist áskorun frá 32 konum á Borgar-
spítala þess efnis, að sarnningum yrði
sagt upp strax og farið skyldi í verkfall
yrði ekki samið á uppsagnartímanum.
Á fundinum hafði verið rætt um,
hvenær segja skyldi upp samningum,
úrbætur á námskeiðum höfðu verið
ræddar svo og útgáfa félagsblaðs tilað
miðla upplýsingum milli vinnustaða.
Þegar hafði legið fyrir samþykkt um
þesskonar blað. Formaður talaði gegn
þessari hugmynd, þótt þegar væri búið
að stafesta hana. Samt sem áður var
fyrri samþykkt staðfest og kjörin
ritnefnd. (Eftir þennan fund hafði víst
verið gerð sú „málamiðlun" að rit-
nefndin skyldi verða „rannsóknarrit-
nefnd“, þe. kanna möguleika osfrv. á
útgáfu blaðs, og er töluverður munur
þar á).
önnur fundargerð lá einnig fyrir
fundinum frá 20. des„ en var henni
frestað til loka fundarins og gengið
strax til dagskrár.
Uppsögn samninga
samþykkt
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir hafði
framsögu fyrir 1. málaflokki, einsog
reyndar öllum. Jafnframt því að hafa
framsögu fyrir öllum málum var hún
einnig fundarstjóri á fundinum og
verður það að teljast ámælisvert. Þótt
slíkt fyrirkomulag hafi tíðkast allmjög
á fundum í verkalýðsfélögunum, að
formenn félaganna „eigi“ svotil fund-
ina, er aldrei hægt að mæla því bót.
Aðalheiður mælti með uppsögn
samninga strax, og lagði til að fundur-
inn gæfi heimild til verkfallsboðunar,
þegar vika væri liðin frá samningar
renni út - ekki yrði lengri frestur
gefinn. Fram kom að á fundinum fyrir
jól hafði stjórninni verið falið að kanna
möguleika á inngöngu í BSRB, þarsem
starfsvæði og starf er hið sama, einnig
hafði stjórn verið falið að gera saman-
burð átekjum, réttindum ofl. hjáfélög-
um Sóknar og BSRB. Aðalheiður
kvaðst hafa fengið ASÍ tilað gera
þennan samanburð; hagdeild ASÍ
hefði séð um gerð þessa samanburðar.
Síðan fékk ég „tvo yndælis menn“ tilað
„gera kröfugerðina með mér - með
okkur“, sagði Aðalheiður.
Uppsögn samninga var borin upp og
samþykkt samhljóða, og kvaðst Aðal-
heiður senda hana strax samningsað-
ilum.
Aldrei kom fram á fundinum, hvort
kannaður hefði verið möguleikinn á
því að ganga inní BSRB, eða hvað
hefði komið útúr slíkri könnun, sem
stjórninni hafði verið falið að annast.
Kröfugerð með
stimpli ASÍ
Kröfugerðin, sem Aðalheiður hafði
útbúið með aðstoð hagdeildar ASÍ, lá
ekki fjölrituð fyrir fundinum, var hún
því einungis lesin upp. Fimmtudaginn
1. febrúar á hún hinsvegar að liggja
frammi, íjölrituð, ásamt með saman-
burðinum við BSRB, á Opnu húsi í
húsnæði Sóknar á Freyjugötunni, fyrir
trúnaðarmenn og alla sem áhuga hafa.
Tillagan sem Aðalheiður las upp var
svohljóðandi:
- Byrjunarlaun 168.815; eftir 6mán.
175.636; eftir 1 ár 182.681; eftir 3 ár
189.936; eftir 4 ár 200.985; eftir 5 ár
207.934.
í þessari kröfugerð, sagði Aðal-
heiður að áhersla væri lögð á „stabíla"
vinnukraftinn og ekki væri stílað uppá
þá sem „grípa inní“.
Vaktaálagið yrði sama krónutala og
BSRB hefur núna, og væri sú krónu-
tala föst: 475 kr. frá kl. 17-24; 642 kr.
frá kl. 24-08.
Veikindadagar yrðu óbreyttir á 1 ári
(sennilega þar sem þaðerekki „stabíll"
vinnukraftur), eftir 1 ár 10 vikur á ári;
eftir 3 ár 15 vikur á ári; eftir 5 ár 20
vikur á ári.
Þetta nær ekki BSRB, en er þó spor í
áttina, sagði Aðalheiður. Þess má geta
að hjá BSRB eru veikindadagar: fyrstu
6 mán. 1 mán. á fullum launum og 1
mán. á hálfum; eftir 6 mán. 3 mán. á
fullum launum og 3 á hálfum; eftir 10
ár 4 mán; eftir 15 ár 6 mán. og eftir 20
ár 1 ár á fullum launum og 1 ár á hálf-
um.
Oriof yrði að nokkru leyti óbreytt,
fyrstu 5 árin eða meðan félagsmaður er
undir 32 ára aldri væri það 24 dagar
(laugardagar meðtaldir); eftir 5 ár eða
eftir 32 ára aldur 25 dagar; eftir 7 ár 27
dagar og eftir 15 ár 30 dagar.
Aðalheiður ræddi nokkuð um kröfu-
gerðina, kvað enda lausa ennþá enda
ekkert gagntilboð komið fram. Þetta
væri gert „með samþykki hagdeildar
ASÍ“ og ASÍ væri með stimpilinn á
þessu. „Þeir ættu jafn mikinn heiður
að þessu og við.“
Fyrirspurn kom um það, hvort
fæðingarorlof hefði ekki verið tekið
inní, en það er nú mjög stutt hjá
Sóknarfélögum. Aðalheiður sagði að
það yrði kannski tekið uppí samnings-
gerð - hægt væri að versla með það
fyrir annað! Ekki er okkur ljóst með
hvað ætlunin er að versla með úr þess-
ari kröfugerð, enda er hún ekki til þess
að fara að gefa eitthvað eftir.
Eftir þetta var orðið gefið laust. Stóð
einn fundarmaður upp og ganrýndi
hvernig kröfugerðin væri framsett.
Kröfurnar væru einnig alltof lágar.
Lýsti hún yfir ánægju með frumkvæði
Akraneskvenna, þar sem því miður
væri það alltof almenn skoðun að ekki
væri hægt að fara í verkfall á spítulun-
um. Lagði hún til að Akraneskonum
yrðu sendar kveðjur fundarins.
Aðalheiður kom upp á eftir. Rakti
hvað komið hefði útúr Akranesdeil-
unni. Ekki sagði hún ástæðu til að
draga önnur verkalýðsfélög inní um-
ræðuna. Hingað til hefði Sókn gengið
á undan, því væri sjálfsagt að einhver
annar gerði það núna.
Ólögmæt afgreiðsla
Ekki ítrekaði Aðalheiður að orðið
væri laust, en spurði þess í stað:
„Hverjir greiða atkvæði með.“ Var
fundarmönnum alls ekki ljóst um hvað
greiða ætti atkvæði.
Óskaði einn fundarmanna eftir aðfá
að gera fyrirspurn og fékk það.
Spurði hún hvort ekki væri grund-
vallaratriði að stefna beint ásömu laun
og réttindi og BSRB hefði. Einnigtaldi
hún að ekki væri forsvaranlegt að bera
kröfugerðina undir atkvæði þarsem
ekkert lægi fjölritað fyrir fundinum.
Aðalheiður tók til máls enn og sagði
að það virtist „prinsippmál" hjá „sum-
um“ að vera bara á móti öllu. Spurði
svo á ný: „Hverjar eru með?“ Nokkur
hópur fundarmanna rétti upp hönd, en
fjöldinn allur kallaði á ný: „Um hvað
er verið að greiða atkvæði?" „Hvað er
á seyði?“ Þá segir Aðalheiður: „Mótat-
kvæði 3.“ Ekki hafði þó verið beðið um
mótatkvæði.
Margítrekaðar voru beiðnir um
endurtekningu á atkvæðagreiðslu, en
því var ekki sinnt. Engin atkvæðataln-
ing fór fram, og aldrei var mælenda-
skrá lokað fyrir þessa furðulegu „at-
kvæðagreiðslu". Þess vegna er alls ekki
hægt að líta á þessa atkvæðagreiðslu
sem lögmæta, þótt formaður félagsins
hafi ítrekað það eftir fundinn að kröfu-
gerðin hafi verið samþykkt.
Gömul samninganefnd
Formaður og fundarstjóri vatt sér
strax í afgreiðslu samninganefndar.
Stakk hún uppá samninganefnd sem
setið hafði áður. Skrifleg tillaga barst
um nýja samninganefnd sem kjörin
yrði af hinum ýmsu vinnustaðadeild-
um Sóknar. Sú tillaga var aldrei borin
upp.
Einn fundarmanna stóð upp og
kvað langt síðan þessi samninganefnd
hefði verið kjörin. Margar konur væru
reiðubúnar að vinna fyrir félagið og því
væri alls ekki óeðlilegt að gera ein-
hverjar breytingar á nefndinni. Aðal-
heiður kvað þetta ágætisnefnd og þetta
væri gott fyrirkomulag. Nefndin væri
kosin með tilliti til vinnustaða og erfitt
væri að kjósa nýja. Vildi hún láta
greiða atkvæði strax um nefndina.
Stóðu þá 2 fundarmenn uppvið pontu
og báðu um orðið, því var ekki sinnt
heldur vaðið í atkvæðagreiðslu. Ekki
sást sjónarmunur á atkvæðum greidd-
um með og móti samninganefndinni,
og var krafist talningar. Aðalheiður
neitaði því og sagði: „Ef þið eruð með
þessi læti þá neyðist ég til að slíta
fundi.“
Við þessi orð gekk fjöldi fundar-
manna af fundi og virtist hreinlega í
sjokki útaf framferði Aðalheiðar. Hún
lét ekki deigan síga, heldur var lesin
upp fundargerðin frá fundinum 20.
des. Kom þar fram sem reyndar annars
staðar, að eingöngu hafði verið rætt
um að krefjast sömu launa og kjara og
BSRB, eða þá lágmarkslauna 180 þús.
króna.
Ekki var farið inná 4 dagskrárlið um
starfið framundan, en fundi slitið. ■
Getum við ekki séð annað en á þess-
um Sóknarfundi hafi öll fundarsköp
verið brotin. Gengið hafi verið þvert
gegn vilja félagsmanna er fram hafði
komið á fyrri fundum, og málin knúin í
gegn með frekju og yfirgangi. Hljóta
allir Sóknarfélagar að líta ástandið
alvarlegum augum og velta þvífyrirsér
um leið, hvað það eigi að þýða að
krefjast annars en sömu launa fyrir
sömu vinnu og þá um leið, hver framtíð
Sóknar eigi að verða.
h/b
Til asknfenda -
áskriftargjald kr. 2000
fyrir fyrri árshelming 1979
Áskriftargjald fyrir Neista fyrri
árshelming 1979 hefur verið ákveðið
kr. 2000.
Áskriftargjaldið fyrir árið 1978 var
kr. 1700 fyrir hvorn árshelming og er
þessi hækkun - krl. 300 -sú alminnsta
sem við getum komist af með.
Hingað til höfum við haft sérstakt
gjald til áskrifenda erlendis, vegna
mikils sendingarkostnaðar, en munum
nú hætta því. Ástæðan er sú, að flestir
áskrifendur Neista erlendis eru náms-
menn, sem ekki hafa alltof rúm íjárráð.
Mun áskriftargjald verða hið sama til
jteirra og áskrifenda innanlands.
Það sparar okkur gífurlega vinnu og
kostnað, ef áskrifendur væru svo
eiskulegir að greiða áskriftargjöld sín,
án rukkunar.
Gírónúmer Neista (Fylkingarinnar)
er 17513-7, ættu gírógreiðslur að vera
öllum handhægar.
Að auki er skrifstofa Fylkingarinn-
ar, að Laugavegi 53A (rautt bakhús)
opin alla virka daga frá kl. 5-7, laugar-
daga frá 2-4. Áskrifendur í Reykjavík
ættu að kíkja við og borga, eigi þeir leið
um Laugaveginn á þessum tíma.
Ritnefnd. ,
" *
Skrifstofa Fylkingarinnar er
opin frá 5-7 alla virka daga,
2-4 laugardaga
<
4