Neisti - 01.01.1982, Blaðsíða 4

Neisti - 01.01.1982, Blaðsíða 4
Yfirlýsing fulltrúaráðs Fjórða Alþjóðasambandsins: Barátta launafólks gegn hervæðingu og niðurskurði - fyrir friði og sósíalisma. FYRRI HLUTI Vígbúnaður heimsvaldasinna hefur aukist, hröðum skrefum allt frá bvi að Ronald Reagan var kosinn forseti Bandarikjanna. Á sama tima hefur auð- valdið hafið mikla samdráttarherferð sem beinist fyrst og fremst gegn verka- fólki. Þetta eru svör auðvaldsins við kreppunni og þeim byltingarhreyf- ingum sem látið hafa að sér kveða sér- staklegá í hálfnýlendunum. Með auk- inni hervaeðine-u og endurskipulagn- ingu hernaðarmáttar síns ætla heims- valdasinnar að stöðva undanhaldið og hefja nýjar árásir á verkalýðinn. Þeir eru að undirbúa sig undir að ná aftur þeim svæðum sem þeir hafa misst á seinustu árum. Bandarískir heims- valdasinnar leika lykil hlutverkið i þessum hildarleik. Það var að frum- kvæði Bandaríkjastjómar að nýju vig- búnaðarkapphlaupi var hmndið af stað í tíð Carters Bandaríkjaforseta. Þetta vígbúnaðarkapphlaup náði hárnarki þegar ákveðið var þann 12 nóv. 1979 að setja upp nýjar Pershing og Cruise eld- flaugar. Ákvörðun Reagans um að hefia framleiðslu nifteindarsprengjunnar er nýjasta og alvarlegasta skrefið i stríðs- undirbúningi heimsvaldasinna. Án þess að nokkuð sé dregið úr hættunni sem stafar af vígbúnaðarsókn heims- valdasinna á sviði hefðbundins hern- aðar þá stafar aðalhættan af upp- söfnun nýrra birgða kjarnorkuvopna. Eftir að hafa hleypt af stað umfangs- mikilli áróðursherferð gegn svokölluð- um hemaðaryfirburðum Sovétmanna og þá sérstaklega yfirburðum á sviði meðaldrægra eldflauga (SS 20) hófu heimsvaldasinnar áróður sem hentaði striðsmarkmiðum þeirra. Fyrst með þvi að taka upp þá stefnu að eyðileggja hemaðar- og efnaliagsmátt andstæð- inga sinna i stað þess að beina spjótum sinum að þéttbýli. Síðar með þvi að leggja til hliðar stefnu þeirra Nixons og Carters, sem fólst i að festa kraftahlut- föllin á einhverju ákveðnu stigi en taka i þess stað upp stefnu, sem leitar að minnsta mögulega öryggi. Þegar kjarnorkustyrjöld með tilheyr- andi eyðileggingu virðist á næstu grös- um getur markmið verkalýðshreyfing- arinnar ekki verið hugsanlegur sigur i slikri styrjöld. Til að byggja upp komm- únískt þjóðskipulag verður heimurinn að vera til. Markmiðið hlýtur því að vera að koma i veg fyrir kjarnorku- styrjöld. Það eru þó hreinir draumórar að búast við því að slíkt takist í samn- ingaviðræðum, þvi svo lengi sem kapi- talisminn heldur velli er stríðshættan fyrir hendi. Raunsæasta markmiðið er að svipta kapítalistana þeirra helstu virkjum. Þegar öllu er á botninn hvolft er það aðeins sigur verkalýðsstéttar- innar i þróuðustu auðvaldsrikjunum og þó sérstaklega Bandaríkjunum sem getur bjargað mannkyninu úr helgreip- um kjarnorkustyrjaldar. Fjórða Alþjóðasambandið hefur alltaf barist gegn draumórum um «friðsam- < lega sambúð» eða «sigur» í kjamorku- styrjöld og lagt áherslu á hina bylting- arsinnuðu lausn. Einmitt þess vegna leggjum við áherslu á mikilvægi friðar- hreyfingarinnar, sem nú sópar að sér fylgi í Evrópu, Norður-Ameríku og Japan. Virkjun fjöldahreyfingarinnar er þvi mikilvægari sem flest bendir til að við séum ekki alveg á síðasta snún- ing að upphafi þriðju heimsstyrjald- arinnar. Helstu pólitisku og félagslegu forsendur þess að okkur sé hrundið út i slík ósköp eru alls ekki fyrir hendi. Verkalýður á Vesturlöndum hefur alls ekki verið sigraður og er þvi fær um að grípa til gagnaðgerða. Verkalýðurinn myndi aldrei leyfa valdastéttunum að leggja útí slíkt sjálfsmorðsævintýri. Fólk sem talar um að þriðja heims- styrjöldin sé óumflýjanleg vanmetur hvað er í húfi fyrir mannkynið Og gen'r á óábyrgan hátt ráð fyrir þvi að orrustan sé töpuð fyrirfram. Markmið Fjórða Al- þjóðasambandsins með þvi að taka þátt í friðarhreyfingunni er að auka and- heimsvalaasinnaða og andkapítalíska vitund fjöldans og styrkja og breikka virkni hans til að auðvelda árás á ríkis- vald borgarastéttarinnar. Aðeins af- vopnun og ósigur borgarastéttarinnar getur í eitt skipti fyrir öll bundið enda á stríðshættuna. HEIMSVALDASINNAR VÍG- BÚAST Á NÝ. Leiðtogar Bandaríkjanna ætla sér að endurheimta stjórmmálalega, hemað- arlega og efnahagslega yfirburði sina sem helsta herveldi heimsvaldasinna. TJm þetta vitnar hin nýja stefna Banda- ríkjastjórnar, sem hefur nú orðið æ skýrari eftir að Reagan tók við völdum. Þetta kemur fram í tilhneigingum til að efla hergagnaiðnaðinn innan efnahags- kerfa auðvaldsins. Hernaðarlegar rann- sóknir hafa verið auknar meir en nokkru sinni fyrr og viðskipti með ýmiss konar drápstól færast i aukana. Þeir hópar, sem gera sér grein fyrir þvi að efna- hagskerfi auðvaldsins hefur tilhneyg- ingu til að þjappast saman i risavaxnar auðmagns- og hernaðar blokkir, en gera sér hins vegar ekki grein fyrir þeim pólitisku ákvörðunum sem þarna liggja að baki skilja ekki nema hluta af því sem liggur til grundvallar hervæðingar- sóknar auðvaldsins. Þeir skilja ekki að bandarískir heimsvaldasinnar og bandamenn þeirra eru í raun og vem að bregðast við kreppunni andheims- valdabaráttunni og stéttarbaráttu verkalýðsins. Þetta em líka viðbrögð" við þvi að um tima hálflamaðist afl Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi i kjöl- far Viet Nam striðsins. Leiðtogarnir i Washington gerðu sér fulla grein fyrii þvi að atburðimir í íran og Nicaragua ógnuðu «lifshagsmunum» þeirra. Þvi var t.ekin upp að nýju árásar- stefna sem miðaði að þvi að vernda hagsmuni heimsvaldastefnunnar viðs- vegar um heim. Til að framkvæma þessa árásárstefnu hafa bandarísk stjórnvöld hafið endurskipulagningu hersins svo hann verði fær um að gripa inní hvar sem er i heiminum. Þetta út- skýrir m.a. hvers vegna nú er ákveðið að hefja framleiðslu á nifteinda- sprengjum, sem reyndar eru alls ekki nýtt vopn heldur hefur það hingað tií ekki komist á dagskrá vegna þess að gagnbyltingin hefur hingað til ekki þurft að nota það. Nuna er annað upp á teningnum. Her- fræðingar NATO hafa sett fram kenn- ingu um «hreyfanleg viðbrögð» sem byggjast á því að hægt sé að svara öll- um tegundum hugsanlegra ógnana á viðeigandi hátt. Því þarf að minnka muninn á hefðbundnum vopnum og kjarnorkuvopnum, þannig að stigsmun- ur sé á notkun Jjeirra, en ekki eðlismun- ur. Einnig eru kojr:.c.r fram áætlanir uin staðbundin stríð, td. sem hefndar- ráðstafanir. Þetta hvortveggja miðar að þvi, að koma í veg fyrir að stórveldin standi frammi fyrir því að hefja slór- styrjöld strax, með öllum tiltækum vopnum, en geti í staðinn beitt mið- lungsdrægum og skammdrægum kj arnorkuvopnum. Nifteindasprengjan er afsprengi til- rauna til að minnka kjarnorkuvopn og ásamt nýjum og nákvæmum eldflauga- stjórnkerfum eru þetta hlutar af áætl unum heimsvaldasinna um að geta beitt kjarnorkuvopnum til að viðhalda veldi sínu. AÐ LOKNUM SALT VIÐ- RÆÐUM: BEINNI ÁREK- STRAR VIÐ SOVÉTRÍKIN. Áðurnefndar breytingar á stefnu Bandaríkjastjómar hafa jafnt áhrif á sambúð austurs og_ vesturs sem sam- búð heimsvaldarikjanna innbyrðis og viðbrögð heimsvaldasinna við nýlendu- byltingunni. Á síðustu áratugum hefur sambúðin við Sovétrikin einkennst af viðræðum þeim sem kenndar hafa verið við SALT og miða að því að takmarka fjölda langdrægra kjarnorkuvopna. Þetta tímabil hófst með SALT viðræð- um 1968 og lauk með þvi að öldunga- deild Bandaríkjaþings neitaði að sam- þykkja SALTII samninginn 1979. SALT samningarnir voru þó engan veginn þróun i átt tiT afvopnunar heldur hafa þeir leitt til aukins vigbúnaðar vegna þess hve ríkin, sem að samningnum stóðu máttu eiga mikið af kjarnorku- vopnum, skv. samningnum. Þetta á enn frekar við um «gæði» vopnanna en magn þeirra en einmitt á þvi sviði standa Bandaríkin Sovétríkjunum enn framar. Jafnt heimsvaldasinnarnir og Kreml- skrifræðið hafa tímabundna hagsmuni af því að setja einhver takmörk á vig- búnaðarkapphlaupið einkum vegna þeirra byrða, sem það leggur á efna- hagslifið sérstaklega í Sovétríkjunum, sem eru veikari efnahagslega. Samningurinn gaf lika Bandaríkjunum svigrúm til að hefja tilraunir og fram- leiðslu á smærri vopnum. Þeirri tálsýn var jafnframt haldið á lofti að varanleg- ur friður gæti komist á með samningum milli risanna tveggja. Friður sem væri tryggður með ógnarjafnvæginu og frið- sámlegum átökum i vopnakapphlaup- inu. Bandaríkjamenn byggðu stefnu sina á þessu vegna þess að þeir álitu að áframhaldandi óbreytt ástand í sam- vinnu við Sovétmenn færi saman við þeirra eigin hagsmuni. Þegar hins vegar í ljós kom að ógerningur var að halda aftur af byltingarhreyfingum með viðræðum st.órveldanna, breyttu Bandaríkjamenn um stefnu og hófu gagnsókn. Nú var reynt að sveigja samningana inná braut endurhervæð- ingar. Þvi var efnt til beinna árekstra við Sovétrikin til þess að veikja þau efnahagslega með því að neyða þau út i stórfellda endurhervæðingu. Jafnframt var horfið aftur til kaldastríðsæsinga sem áttu að gera heimsvaldasinnum

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.