Neisti - 01.01.1982, Blaðsíða 6
Haustið er rautt
Læknirinn, presturinn, lögreglustjórinn og annað sómafólk
safna undirskriftum.
Vandamál skáldsögunnar hafa
lengi verið til umræðu úti í
hinum stóra heimi. Hér á landi
er sjaldgæft að menn hugleiði
þau mál enda margrómuð
«kreppa skáldsögunnar» vart
áþreifanleg í ljósi skáldsagna-
flaums síðustu ára. Raunar hafa
ýmsir bent á að ekki fari alltaf
saman magn og gæði. Á það ef
til vill ekki sist við um þann
félagslega natúralisma sem tröll-
riðið hefur íslenskum bókmennta
heimi að undanförnu og ýmsir
nefna nýraunsæi. Sannast
sagna hefur sú stefna ekki náð að
eflast og þróast sem skyldi. Því
miður virðist mér hún líka byggja
gjarnan á vélrænum skilningi á
mætti orðsins og hugmyndar-
innar en auk þess á einfaldaðri
veruleikasýn.
I bók sinni, Haustið er rautt
tekur Kristján Jóhann Jónssor
einmitt þau atriði bókmennta
sköpunar til umræðu sem ný
raunsæismenn hafa skirrst við
að takast á við. Sem sé svo að
vitnað sé ‘ til sögumanns:
«Veröldin er fleytifull af mann-
lifum sem bíða eftir því að vi?
notum tækni nútimans, fáum
okkur blýant eða bírópenna,
tússara eða sjálfblekung og
skrifum. Vandinn er bara þessi:
Hvað af þvi á að fara inn í þá
sögu sem við erum að skrifa
hverju sinni?»(13).
í meginatriðum segir sagan
okkur frá höfundi sem er að
skrifa bók. Illa gengur og að
hans dómi tekst illa til enda
margur efinn sem stekkur i veg
fyrir hann á laugarvegi skrift-
anna. Persónurnar lúta ekki vilia
hans,skyggja jafnvel á róttæka
heimsp''biikina án þess að veita
af nægtarbrunni einstaklings
sins, skipta sér óþægilega hver
af annarri og hverfa á óliklegustu
stöðum út úr sögunni. Timinn
skreppur saman, sáþamerikan
stæl. Smábær verður að borg á
einni kvöldstund. M.ö.o. er
skáldsagan í brotakenndará lagi
og litill greinarmunur virðist
vera gerður á aðal- og auka-
atriðum. Þar að auki er veruleiki
sögumanns ekki einn um að
vera brotakenndur. Sama finnst
honum um lesanda og af því
mótast sundurleitt verk hans.
Raunar á höfundur þessi til þá
sjálfsvirðingu að neita að aka
miklubraut hefðarinnar. Hann
leitast við að sveigja söguna frá
þvi að vera saga um einhveija
«aðalpersónu sem gengur i gegn
um lærdómsríka þróun og eftir
því sem þessi þróun verður vit-
rænni og snjallari verður sagan
sléttari og felldari og villuljós
sjálfshyggjunnar leiða bæði mig
og þig, kæri lesandi, í burt frá
mannlífinu...»(27) Nei, maður-
inn er hópsál og þess vegna á
bókin að vera um alþýðuna enda
skiptir einstaklingurinn «litlu
sem engu þegar allt kemur til
alls. »(28) Þessi dólgslega al-
þýðudýrkun leiðir svo til þess að
höfundurinn á í stöðugum
vandræðum með sjálfan sig,
tranar sér fram fyrir atburðarás
og persónur sögunnar með
klisjukenndum athugasemdum í
predikunartóni. En ágengastur
verður höfundur þó í átta les-
endabréfum þar sem hann hug-
leiðir skáldsögana og þá stefnu
sem hún tekur.
SAMT ER SAGA
Hægt og með miklu brambolti
og úturdúrum flýtur skáldsagan
útur penna höfundarins. Það
kemur í ljós að hún á sér þrátt
fyrir allt meginstefnu. í henni
eru meira að segja aðalpersónur
sem hefja samleik í þeim mikla
stríðsleik er á sér stað milli stétta
og kynja og svo mjög setur svip
sinn á bókina.
Möndull þessarar sógu er
Rauða félagið. Það tengist
þeim atburðum sem einhverju
skipta i sögunni. Raunar snýst
fyrri hluti sögunnar
um stofnun félagsins í þorpinu
Miðgarði sem breytist á stofn-
fundartíma i borg. I síðari hluta
sögunnar er sagt frá því hvernig
félagið og liðsmenn þess efna til
andófs gegn því að ráðist sé gegn
dagheimili, það lagt i rúst og á
rústunum reist verslun.
Vitanlega er viða komið við.
Persónur eru margar og jafn-
framt gjarnan fulltrúar sinna
stétta. Verkamenn (Gústi), yfir-
stéttarnaglar (læknirinn).
menntamenn (Margrét), hús-
mæður (Soffia), smáborgari (Jó-
hann) o.fl., o.fl. Hér er því á
ferðinni allnokkuð breið þjóðfé-
lagslýsing og víða er skirskotað
til atburða úr raunveruleikanum,
s.s. undirskriftasöfnunar VL og
baráttunnar um friðun Grjóta-
þorps.
Forvitnilegast finnst þó undir-
rituðum að beija augum «þann
skapmikla og mótþróafulla
minnihlutahóp» (102) sem safn-
ast saman i Rauða félagið eða
tengist því með einhverju móti.
Lýsingin á þessu fólki speglar
óneitanlega þá nöturlegu veru-
leikasýn höfundar að í auðvalds-
samfélaginu fái mannlegar til-
finningar ekki notið sín. Þær eru
bældar niður til að viðhalda kúg-
un fólksins, jafnt á vinnustöðum
sem á heimilum. Harðast verður
fjölskyldan úti i gagnrýni hans
enda segir hann: «Þessi saga
segir frá sifelldu veseni i hjóna-
böndum.» (59)
Raunar er það ekki alþýðan ein
sem stynur undir kúgunarhæl
auðvaldsins. Hin steingerfða
ímynd yfirstéttarinnar, læknir
inn drykkfelldi, er einnig undir
sama «margra ára ofurálag og
ótta einstaklingsins i auðvalds-
samfélagi» (55) seld.
Það er þvi ekki fögur þjóðfé-
lagsmynd sem höfunduur dregur
upp. Þessi veruleikaskynjun er
að sjálfsögðu einnig að miklu
leyti veruleikamynd Kristjáns
þrátt fyrir hina irónisku fjarlægð
á milli hans og höfundar. Eini
sjáanlegi vonartónninn virðist
vera herskátt tistið i Rauða félag-
inu sem af vanmætti sinum setur
sér það markmið að brjóta kapi-
talismann niður.
Þessi flokkspatríótíska niður-
staða er þó engan veginn sett
fram á kauðskan hátt heldur með
mátulegum skammti af sjálfs-
gagnrýnu háði.
MIKLIDÓMUR
Þrátt fyrir svartmálaða veru-
leikamynd er fremur létt yfir
þessari bók. Stafar þetta sjálf-
sagt af kímnigáfu höfundar og
írónískri umfjöllun hans um allt
og alla. Frásagnargleðin er líka
mikil. Hins vegar er spurning
hvort margbrotin bygging sög-
unnar dragi ekki óþarfa athygli
frá efninu. Svo furðulega sem
það má hljóma sýnist mér hún
jafnvel gera það að verkum að
bókin verði meira i ætt við laus-
tengdar smásögur. Auk þess
festir maður aldrei almennilega
augun á nokkurri persónu. Þetta
er sjálfsagt stefna Kristjáns og ef
til vill er það íhaldssemi hjá mér
að krefjast sterkari tilfinningar
fyrir einstaklingnum. Leiftur af
lífi einstaklings getur hugsan-
lega verið nóg. Það verður þó að
hitta á það eina sanna leiftur.
Svo er að sjá sem mönnum hafi
reynst erfitt að átta sig á um-
ræðu sögumanns og talið óstjóm
hans á efninu og vúlgerisma til
eiginda Kristjáns. Kristján hef-
ur þannig með framferði sínu
komið því til leiðar að nokkrir
valinkunnir gagnrýnendur hafa
orðið sér til skammar. Mátti
hafa af þvi kvikindislegt gaman.
I augnablikinu minnist ég ein-
ungis einnar íslenskrar bókar
sem tekur á svipuðum vanda
skáldsagnaritunar og þessi, þ.e.
Vikivaki Gunnars Gunnarssonar.
Bók Kristjáns er því nokkuð ein-
Undirtektir við Neistasöfnunina
hafa verið góðar, þótt menn eigi
okkí digra sjóði um þessar
mundir. Staðan er að visu mjög
óljós, þar sem margir vildu
greiða sitt framlag eftir áramót,
þegar þess var vænst, að fjár-
hagurinn yrði betri. Það er þó
augljóst, að eitthvað vantar enn
á, að markið, 30 þúsund krónur
náist.
Tilgangur söfnunarinnar'var
að kaupa setningarvél og tilheyr-
andi tæki til að auðvelda útgáfu
Neista. Þessi tæki hafa nú
verið keypt, á lánum að mestu.
Þau kosta um 70 þúsund og
með breytingum og innrétting-
um á húsnæði vegna þessa,
verður kostnaður ekki minni en
80 þúsund. Ætlunin var og er,
að söfnunin gefi 30 þúsund, en
50 þúsund borgi Fylkingin sjálf.
Það var aldrei gert ráð fyrir, að
gróði yrði á sjálfri Neistavik-
unni. Reyndin varð sú, að af
henni varð talsvert tap. Kost-
stæð hvað þetta snertir. Á viss-
an hátt er hún Iíka þarft innlegg í
umræður um bókmenntir og
þjóðfélagsmál. Það verður sann-
arlega að leita leiða úr þvi öng-
stræti smekkleysu og vélrænnar
efnishyggju sem nýja raunsæið
virðist hafa leitt helstu höfunda
sínaí. Tæpast verður svaKKrist-
jáns þó öðrum til fyrirmyndar.
Til.þess er það of bókmenntalegt
og sérfræðilegt.
SÞH
naður við vikuna var mikill, ekki
síst af þvi, að við buðum hingað
manni erlendis frá til að fjalla
um E1 Salvador (sem við sjáum
auðvitað alls ekki eftir, því
koma hans hingað og fram-
ganga á fundum og i sjónvarpi
hafði geysileg áhrif til að vekja
athygli á þróun mála og kúgun
Bandaríkjanna í Mið-Ameriku.)
Talsverður kostnaður var
einnig af öðrum mikilvægum
dagskráratriðum Neistaviku.
Dansleikur í Hreyfilshúsinu í
lok vikunnar átti að gefa tekjur
til að endar næðu saman, en
hann gerði nú ekki betur en að
standa á sléttu.
Pólitískt var Neistavikan
mikils virði. Við vonum, að þið,
velunnarar Neista, séuð sam-
mála okkur um það, og að það
mat ykkar og gott álit á Neista
komi í ljós með hressilegum
framlögum, svo söfnunin nái
markmiði sinu næstu tvær
vikur:
verslunarhúsnæði.
Framlög í
Neistasöf nunina.