Stéttabaráttan - 08.11.1974, Page 2
Leiöaril
STÉTTABARATTAN 10.tbl. 8.111974
Verkalýðsfélögin og vinnustaðastarfið
Byltingarsinnað starf Kommúnistaflokks bolsévíkanna á tímum rússnesku
byltingarhreyfingarinnar 1917 á að vera öllum raunverulegum marxískum-
lenínískum flokkum til leiðsagnar hvernig heyja eigi árangursríka stéttabar-
áttu. I sögu Bolsévíkaflokksins segir um afstöðu hans til starfsins í verka-
lýðsfélögunum og öðrum fjöldahreyfingum verkalýðsins. "A þessu tímabili
var starfsemi bolsjevíkaflokksins til fyrirmyndar um það, hvernig stjórna
ber stéttarbaráttu verkalýðsins, hver form eða gervi sem hún kann að taka
á sig. Flokkurinn stofnaði leynifélög gaf út forboðin flugrit, rak leynilega
byltingarstarfsemi meðal fjöldans. Jafnframt tókst honum að auka áhrif sín
innan þeirra verklýðssamtaka, sem lögleyfð voru. Flokkurinn stefndi að því
að ná stjórn á verklýðsfélögum, alþýðuhúsum, kvöldháskólum, klúbbum og
tryggingarsjóðum. Þessar lögleyfðu félagsstofnanir höfðu um langa hríð ver-
ið skálkaskjól upplausnarsinna. Bolsjevíkar tóku nú upp ósleitilega baráttu
fyrir því, að þeim yrði breytt í áhrifastöðvar flokks vors. "
eiga sér grundvöll. Þar er eini vett-
vangurinn, sem baráttufúsir verka-
menn geta skipulagt sig sjálfstætt og
það mætti jafnvel segja "ómeðvitað."
Því að ekki geta þeir skipulagt sig í
verkalýðsfélögunum og jafnvel í
verkfalls- og baráttunefndunum
á vinnustöðunum mæta þeir sama ó-
vininum - verkalýðsforystunni, sem
reynir að koma í veg fyrir öll afskipti
verkamanna af stjórn verkalýðsfélag-
anna og kæfa niður sjálfstætt starf
þeirra á viimustöðunum.
UMRÆÐUHORNIÐ
Fræðileg umræða og skilgreining er lífsnauðsyn hverjum kommúnískum
flolcki. An skoðanabaráttu og framþróunar fræðikenningarinnar getur
flokkurinn ekki barist fyrir verkefnum sínum og leitt verkalýðinn til sig-
urs yfir borgarastéttinni. Eins og málum er háttað nú kemur fræðilegt
málgagn KSML ekki út nems. ársfjórðungslega, og það hefur sýnt sig að
sá vettvaagur er of takmarkaður fyrir umræðurnar sem eru samtökunum
og framþróun fræðikenningarinnar nauðsynlegar. Ritstjórn Stéttabarátt-
unnar hefur því áliveðið að opna "Umræðuhornið"
Það er von okkar að sem flestir félagar,verkamenn og aðrir sem
vilja vinna að framþróun stefnu KSML, sendi greinar í "hornið".
Sökum plássleysis í blaðinu er æskilegt að greinarnar verði ekki mikið
lengri en 1 1/2 vélrituð örk (A4)
BANDAMENN TROTSKÝS
Byltingarsinnaðir verkamenn starfa
fyrst og fremst innan verkalýðsfélag-
anna í þeim megintilgangi að auka
lýðræðið innan þeirra, virkja sem
flesta félagsmenn í pólitísku og fag-
legu starfi og einnig til að berjast
gegn gagnbyltingaröflum, undanslátt-
arhugmyndum og leiguþýjum borgara-
stéttarinnar, hinum uppkeyptu skrif-
finnum í verkalýðsforystunni. Þetta
eru þau meginverkefni, sem bylt-
ingarsinnaðir verkamenn setja sér
með starfi sínu innan verkalýðsfé-
laganna. Með þessu starfi styrkjum
við hinn kommúníska grundvöll,
vinnum að því að vinna verkamenn
á grundvelli baráttu þeirra sjálfra
gegn borgarastéttinni og útsendurum
hennar, þar sem þeir eru sjálfir
virkir þátttakendur og jafnframt leið-
andi. I upphafi þessarar aldar stóð
baráttan aðallega um tilveru og mót-
un verkalýðsfélaganna í hatrammri
baráttu gegn innlendum auðherrum
og ríkisvaldi þeirra. Þessa baráttu
sigruðu verkamennirnir fyrir atorku
og baráttuvilja flestra verkamanna.
Upp úr hörðu stéttastríði og hat-
römmum verkföllum sköpuðustverka-
lýðsfélögin, þar sem verkamennirnir
voru sjálfir aflið, sem skapaði þau.
A þessum tfma eignuðust verkamenn
einnig sinn verkalýðsflokk, Kommún-
istaflokk Islands. Samfara faglegri
virkni fór því einnig aukin pólitísk
meðvitund. Það þarf því engan að
undra, að hnignun verkalýðsfélag-
anna helst í hendur við að borgara-
legum öflum tekst að umbreyta Komm
únistaflokknum í borgaralegan verka-
lýðsflokk. Þegar svo hafði farið um
verkalýðsflokkinn var auðvelt fyrir
þessi borgaralegu öfl að brjóta á bak
aftur allan faglegan baráttuvilja alls
fjölda verkamanna og breyta sjálf-
stæðu skipulagi verkamanna í skrif-
finnsku og samningamakk uppkeyptu
verkalýðsforingjanna. Þess vegna
sést í dag hvorki tangur né tetur af
hefðum þess skipulags, sem barátta
hinna byltingarsinnuðu verkamanna
þriðja áratugsins hafði skapað. Það
sem er þvf ráðandi í verkalýðsfé-
lögunum í dag er skrifræði mútaðr-
ar verkalýðsforystu, sem berst hat-
rammlega gegn öllu virku starfi ó-
breyttra verkamanna innan þeirra.
Þessi leiguþý auðvaldsins kjósa í
þess stað að stjórna verkamönnum
ofan frá í samvinnu við atvinnurek-
endur og ríkisvaldið, þeir kjósa
heldur að starfa með kapitalistunum
heldur en verkamönnunum.
Verkalýðsforystan berst gegn allri
sjálfstæðri skipulagningu verkalýðsins
Verkalýðsforystan hefur dregið stór-
lega úr lýðræðinu innan verkalýðsfé-
laganna, brotið á bak aftur allt sjálf-
stætt starf og skipulag verkamannanna
sjálfra. Flestir Dagsbrúnarverka-
menn þekkja hvernig umræður og til-
lögur baráttufúsra verkamanna eru
kæfðar niður á fundum, hvernig skrif-
finnarnir f forystunni skerða ræðu-
tímann og koma í veg fyrir að tillög-
ur um aukið lýðrasði og virkni félags-
manna séu bornar upp. Þannig berst
forystan gegn lýðræðinu í verkalýðs-
félögunum og kæfir allar pólitískar
og faglegar kröfur verkamanna niður
Þó eru til þau tilfelli þar sem verka-
mennirnir hafa tekið frumkvæðið og
hafið sjálfstæða baráttu eins og t.d.
þegar steypukranamenn tóku í sínar
hendur samninga um faglegar sér-
kröfur sfnar síðast liðið vor. Eða
þegar hafnarverkamenn ónýttu kröfur
atvinnurekendanna og Dagsbrúnarfor-
ystunnar um aukið vinnuálag, sem
síðustu samningar gerðu ráð fyrir.
Það væri hægt að nefna fleiri dæmi
um sjálfstæða skipulagningu verka-
manna (eins og baráttu hafnarverka-
manna á Akureyri, eða verkamanna
í Runtal-ofnasmiðjunni). Það sem
er þó mikilvægara, er að gera sér
grein fyrir hvert er einkenni þessar-
ar baráttu.
Það sem fyrst og fremst einkennir
þessa baráttu er vaxandi fagleg með-
vitund en ekki pólitísk og það að bar-
áttan hefst á einstaka vinnustöðum
fyrst, utan verkalýðsfélaganna í
meira eða minna mæli. Það að sjálf-
stæð skipulagning verkamanna er
fyrst og fremst faglegs eðlis er
mjög eðlilegt þar sem ekkert póli-
tískt afl er til, sem getur leitt þessa
baráttu til pólitísks uppgjörs við ó-
vini verkalýðsins innan raða hans.
Þess vegna tekst að halda baráttunni
á faglegum grundvelli, sem ekki mið-
ast við að taka upp vígorð, sem
stefna út fyrir hina faglegu baráttu.
Og að hún sé utan verkalýðsfélag-
anna er einnig eðlilegt, því hvar
annars staðar en á vinnustöðunum
ætti líka hin faglega meðvitund að
Nýtt frá LENÍN-STALÍN forlaginu
Ut er kominn nýr bæklingur, Heims-
valdastefnan og klofningur sósfal-
ismans, í útgáfu LENlN-STALlN
forlagsins. Suma lesendur Stétta-
baráttunnar rámar e.t. v. í það,
að nú er liðið á annað ár síðan
þessi bæklingur var fyrst auglýst-
ur "væntanlegur. " En nú er hann
sem sagt kominn, með tveimur
greinum eftir Lenín auk þeirrar,
sem ritlingurinn dregur nafn sitt
af. Þessar tvær viðbótargreinar
eru Marxismi og endurskoðunar-
stefna og Skoðanaágreiningur f evr-
ópskri verkalýðshreyfingu.
Um badilinginn segir m. a. í for-
mála;
"I þeim þremur greinum Leníns,
sem hér eru birtar í fyrsta sinn á
íslensku, fjallar hann á skýran og
nákvæman hátt um uppruna, upphaf
og orsakir endurskoðimarstefnunn-
ar og hinna ýmsu tilbrigða hennar.
Þessar greinar eru sérlega þýð-
ingarmiklar fyrir íslensku bylting-
arhreyfinguna í dag, einmitt þegar
höfuðnauðsyn er á að draga hin
raunverulegu tengsl milli borgara-
stéttarinnar og hentistefnunnar inn-
an raða verkalýðsins fram í dags-
ljósið - tengsl, sem ákvarðast af
efnahagslegum, hugmyndafræðileg-
um og pólitfskum (eða taktískum)
þáttum."
Stéttabaráttan hvetur lesendur sína
til að kynna sér þessar greinar og
læra af hinni marxísku-lenínfsku
aðferð til að greina og berjast gegn
hentistefnunni innan raða verkalýðs-
ins - nokkuð, sem íslenskir marx-
istar-lenínistar verða að tileinka
sér í enn ríkari mæli.
Heimsvaldastefnan
klofningur
sósíalismans
Hvernig berjumst við fyrir þvf að
endurheimta verkalýðsfélögin úr
höndum uppkeyptu verkalýðsforyst-
uxmar.?
Til að breyta ástandi verkalýðsfélag-
anna frá því að vera hemill á sjálf-
stæða skipulagningu og virkt starf
baráttufúsra verkamanna í það að
verða raunveruleg baráttutæki fyrir
verkalýðsstéttina fyrir frelsi undan
kapitalismanum, er langt tímabil,
sem einkennist fyrst og fremst af
baráttu gegn uppkeyptu forystunni,
bæði skipulags.lega og pólitískt. Þessi
barátta verður bæði að fara fram á
VINNUSTÖÐUNUM og í VERKALÝÐS-
FÉLÖGUNUM með stofnun samfylk-
ingarliða. En þau miða starf sitt að
því að berjast fyrir auknu lýðræði
innan verkalýðsfélaganna og baráttu
gegn kapitalismanum. A vinnustöð-
unum verður óhjákvæmilega að
vinna grunnstarfið að meira eða minna
leyti fyrir starfið í verkalýðsfélögun-
um. Þar verða nefndir verkamanna.
að undirbúa þau sameiginlegu sjónar-
mið, sem þeir ætla að berjast fyrir
á fundum í verkalýðsfélögum sínum.
Aðeins á þennan hátt er hægt að berj-
ast fyrir lýðræðinu innan verkalýðs-
félaganna með því að tengja saman
árangurinn af starfinu á vinnustöðun-
um við baráttuna í verkalýðsfélögun-
um. Það er því ekki hægt að vænta
árangurs af starfinu í verkalýðsfé-
lögunum nema að það hafi verið und-
irbúið á vinnustöðunum. Rauð and-
stöðulið innan verkalýðsfélaganna
skapast nefnilega ekki bara með á-
róðri á fundum verkalýðsfélaganna
heldur fyrst og fremst sem árangur
af starfi kommúnistanna á vinnustöð-
unum, þar sem þeir vinna og einnig
annars starfs, þar sem þeir reka
reglubundið áróðursstarf.
Það er því verkefni okkar að skipu-
leggja þá andstöðu, sem nú þegar
hefur komið fram sérstaklega á
vinnustöðunum og einnig í verkalýðs-
félögunum. Þess vegna megum við
ekki neita neinum möguleika á form-
um fyrir kommúnískan áróður og
starf, hvorki skæruverkföllunum né
frambpði til trúnaðarmannastarfs
eða stjórna verkalýðsfélaganna.
4/11
Frá Reykjarvikurdeild KSML
A næstunni mun Reykjavíkurdeild
KSML halda skemmti- og fræðslu-
fundi fyrir félaga og stuðningsmenn
samtakanna. fýrsti fundurinn
verður í nóvember. Þá
verður sýnd kvikmynd, sem gerð
er eftir skáldsögu Gorkís, Móðirin
Annar fundur er fyrirhugaður á
eftir þeim fundi og mun þá verða
fjallað um borgarastyrjöldina á
Spáni. Staður og stund er ekki enn
ákveðin - það verður auglýst síðar.
Þeir sem áhuga hafa á að frétta
meira af þessum fundum geta hringt
í síma 27800 og leitað upplýsinga
hjá deildarstjórn.
Grein ÖHS í 8. tölublaði skýrir
vel út í hverju villur vinstri henti-
stefnunnar eru fólgnar, þ.e. ofmati
á ástandi þjóðfélagsins og baráttu
verkalýðsins. I stað verkalýðsfélag-
anna, sem vegna þróunarástands
síns eru óhjákvæmilega afturhalds-
söm, vilja vinstri-róttæklingarnir
skapa ný og byltingarsinnuð neðan-
jarðarverkalýðsfélög. Þeir vilja
með öðrum orðum hoppa yfir núver-
andi afturhaldsástand verkalýðsfélag-
anna og lága meðvitund verkalýðsins
á íslandi og skapa í þeirra stað önn-
ur, sem í eru ekki venjulegir ís-
lenskir verkamenn, heldur fólk sem
smíðað er f hugum róttæklinganna
sjálfra - hinir fullkomnu byltingar-
sinnar.
Þessar hugmyndir þeirra eru ekkert
nýnæmi, þær eru gamalkunnar í
heimshreyfingu kommúnista. Ekki
einasta vinstri kommúnistarnir
þýsku, sem Lenfn barðist hatramm-
lega gegn, heldur einnig Trotský,
erkifjandmaður sósíalismans, eru
boðberar þessa "barnasjúkdóms"
kommúnismans. Þeir sem fylgst
hafa með deilunum um verkalýðsfél-
ögin, þekkja tal vinstri-róttækling-
anna um að verkalýðsfélögin séu
endanlega unnin úr höndum verka-
lýðsins, að verkalýðsfélagaforystan
sé hemill á þróun byltingarinnar og
því beri verkamönnum að leita út
fyrir verkalýðsfélögin og heyja ólög-
lega verkfallsbaráttu. Sömu skoðun
lætur Trotský í ljós í grein f Pravda,
málgagni bolsévíkkanna 26. maí
1926:
"Gervöll 'yfirbygging'bresku
verkalýðsstéttarinnar, af öllum
gerðum og tegundum án undantekn-
ingar, er tæki til að hindra þróun
byltingarinnar. Þetta mun til
langframa valda þrýstingi hinnar
sjálfsprottnu og hálf-sjálfsprottnu
hreyfingar á ramma gömlu félag-
anna og myndun nyrra, byltingar-
slnnaðra félaga, sem afleiðing
þessa þrýstings. " (Pravda nr. 119,
1926)
J. Stalín svarar þessari kenningu
Trotskýs á eftirfarandi hátt:
Hafió samband
vió KSML
Akureyri: Umboðsmaður fyrir út-
gáfuefni KSML er Birgir Guðmunds-
son, Skipagötu 2.
ísafjörður: Stuðningsdeild KSML,
Agnar Hauksson, Tangagötu 20
sími: 3651.
Húsavík: Umboðsmaður fyrir út-
gáfuefni KSML er Þórarinn Ölafsson,
Uppsalavegi 21.
Neskaupsstaður: Ath. Nýtt heimilis-
fang umboðsmannsins: Magnús
Sæmundsson, Urðarteig 21.
STYÐJIÐ UPPBYGGINGU
KOMMUNISTAFLOKKSINS
Gefið í baráttusjód KSML
Póstgíró 42000
"Annaðhvort er hér átt við, að nú
þegar ríki tímaskeið beinnar bylt-
ingarþróunar og að við ættum því
að setja upp sjálfstýrð samtök ör-
eiganna í stað hinna "gömlu", f stað
fagfélaganna - sem auðvitað er al-
rangt og heimskulegt. Eða þá að
hér er átt við, að "til langframa"
ættum við að vinna að því að setja
"ný, byltingarsinnuð félög" í stað
hinna gömlu fagfélaga.
Þetta er ávarp um að skipuleggja,
f stað fagfélaganna sem til eru,
sömu "Byltingarfagfélög verka-
manna" sem "últra-vinstri" komm-
únistar í týskalandi börðust fyrir
fyrir fimm árum, og sem félagi
Lenín barðist harðlega gegn í bækl-
ingi sínum "Vinstri róttækni -
barnasjúkdómar kommúnismans".
Þetta er raunverulega ávarp um að
setja "ný" og vfsast "byltingarsinn-
uð" félög f stað núverandi fagfélaga,
og þar með ávarp um að fara út úr
verkalýðsfélögunum.
Er þessi pólitík rétt? Hún er
grundvallarlega röng, vegna þess
að hún er algerlega andstæð lenín-
ísku aðferðinni við að leiða fjöld-
ann." (Stalín: Works 8. b. bls.
186)
Eins og hér kemur skýrt fram, hafa
vinstri-róttæklingarnir okkar skipað
sér í flokk fjandmanna kommúnism-
ans og gerst bandamenn Trotskýs og
borgaranna, Aðferð þeirra er ekki
samkvæmt lenínismanum, heldur
samkvæmt trotskýismanum. Þó að
vinstri-róttæklingarnir okkar þykist
vilja starfa innan fagfélaganna (lik-
lega af því að Lenín kvað vinstri
kommúnistana í íýskalandi svo eftir-
minnilega í kútinn á sfnum tíma), þá
bera allar kenningar þeirra að sama
brunni - að fara út úr verkalýðsfél-
ögunum og stofna ný, neðanjarðar
byltingarfagfélög, sem starfi ólög-
lega. Þeir hafa hafnað lenínisman-
um og sokkið ofan í fen trotskýism-
ans.
-Ag
Olafevík: Fulltrúi KSML er Matth-
ías Sæmundsson, Hjarðartúni 10.
Siglufjörður: Söluturninn Aðalgötu
er með umboðssölu fyrir Stéttabar-
áttuna og Rauða Fánann.
Suðurnes: Stuðningsdeild KSML,
Einar Jónsson, Sólvallagötu 40e,
Keflavík.
Reykjavfk: KSML Skólastræti 3B
eða pósthólf 1357, sími 27 800.
Fulltrúi samtakanna er til viðtals á
opnunartíma Rauðu Stjörnunnar.
Gerist áskrifendur
aó
RAUÐA FÁNANUM
Rauða Stjarnan
Bókabúð
KSML byggja að öllu leyti á stuðningi verkafólks og þeim framlögum
sem það lætur af hendi rakna. KSML hafa nú látið gera baráttusjóðs-
seðla sem eru til sölu hjá félögum samtakanna.
RAUÐA STJARNAN
Skðlastræti 3B, pósthólf 1357.
Opið mánudaga, fimmtudaga og föstu-
daga kl. 18.00-20.00, laugardaga
kl. 10.00-12.00.
Askorun til allra velunnara Rauðu
stjörnunnar: Ef þið vitið af hentugu
húsnæði, sem bókabúðin gæti tekið
á leigu - hafið samband við bóka-
búðarstjórn á opnunartíma
STÉ TTABARATTAN10. tbl. 3. árg.
8.nóvember 1974.
Utg.Kommúnistasamtökin m-1
Pósthólf 1357 Reykjavík
Sími: 27800
Ritstj, og ábm. -.Hjálmtýr Heiðdal