Verklýðsblaðið - 18.07.1931, Blaðsíða 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ISLANDS (DEILD
II. ápg.
Reykjavík 18. júlí 1931
34. tbl.
Verblýðsfnndnr
Atvinnuleysiö rætt og teknar
ákvarðanir
F'irnmtudaginn 16. þ. m. hélt Reykjavíkur-
deild K. F. 1. almennan verkalýðsfund í K. R.
húsinu út af atvinnuleysinu. Fundinn sóttu um
400 manns, mest allt verkamenn, og voru þess
glögg merki að verkamenn eru að vakna til
skilnings á eðli yfirstandandi atvinnuleysis,
vexti þess og þeim voða, er verkalýðurinn er
ofurseldur, ef hann tekur ekki sjálfur í taum-
ana til þess að tryggja sér brýnustu lífsþarfir.
Fundarstjóri var Otto Þorláksson og fundar-
ritari Gísli Indriðason.
Málshefjandi var Guðjón Benediktsson og
auk hans töluðu: Þorsteinn Pétursson, Einar
Olgeirsson, Hannes Guðmundsson, Gísli Ind-
riðason og Erlendur Vilhjálmsson.
Að loknum umræðum voru eftirfarandi
kröfur samþykktar í einu hljóði:
Almennur verklýðsfundur í Reykjavík sam-
þykkir eftirfarandi kröfur út af atvinnuleys-
inu:
I. Greiðsla nú þegar á styrk úr ríkissjóði til
allra atvinnulausra verkamanna og verka-
kvenna í landinu, er nemi minnst 100 krónum
til einhleypra og 200 krónum til fjölskyldu-
fólks og sé þetta ekki talinn fátækrastyrkur.
II. Jafnframt sé komið á föstum atvinnu-
leysisstyrk frá ríki og bæjarfélögum. Greiðsla
allra styrkjanna fari fram undir eftirliti verka-
lýðsins sjálfs.
III. Atvinnulausir verkamenn fái ókeypis
gas, rafmagn og annað, sem hið opinbera sel-
ur almenningi. Einnig séu þeir undanþegnir
útsvörum og sköttum. Ennfremur sé úthlutað
til þeirra ókeypis þeim matvælum, sem landið
framleiðir og óseld liggja, svo sem fiski, síld,
kjöti og öðru, er verða kann. Ennfremur sé
öllum atvinnulausum verkamönnum seld mjólk
við því verði, sem bændur fá fyrir hana, en
allri álagningu mjólkurhringsins sleppt.
IV. Stytting vinnutímans niður í 8 stundir
á dag við alla vinnu án skerðingar á dagkaupi,
til þess að útvega þannig fjölda verkalýðs
vinnu.
V. Atvinnubætur séu hafnar í stórum stíl,
svo sem:
1. Verkamannabústaðir séu byggðir, svo um
muni og húsnæðiskjör verkamanna batni
verulega og þeim sé tryggt að verða ekki
hent út á götuna.
2. Fé sé veitt í veðdeild til þess að byggingar
einstaklinga einnig geti hafizt á ný með
fullum krafti.
3. Öll sjófær vieiðiskip séu látin fara til veiða
nú þegar á síld, ísfisk eða annað.
4. Allar síldarbræðslustöðvamar séu reknar
méð fullum krafti og vilji einstaklingarn-
ir ekki reka þær, séu þær teknar eigna-
námi og- reknar af ríkinu. Eignanámið sé
skaðabótalaust. .
5. Síldarsöltunin sé aukin og framleitt ótak-
markað eftir því sem veíðist, en sjómönnum
á síldarskipum tryggð lágmarkslaun, minnst
640 kr. yfir vertíðina, svo verðfall skelli
ekki á þeim.
6. Opinberar framkvæmdir, svo sem vega-
vinna, símalagning, brúargerð, hafnarmann-
virki o. s. frv. séu auknar að miklum mun
og tryggt að þeim verði haldið áfram næsta
sumar í stórum stíl.
7. Sogsvirkjunin sé hafin nú þegar.
Þá var og samþykkt svohljóðandi tillaga:
„Fundurinn kýs 11 manna nefnd til að skipu-
leggja baráttu atvinnuleysingja, bera fram og
kynna kröfur þeirra, bindast samtökum við
nefndir atvinnulauss verkalýðs annarsstaðar og
fylkja verkalýðnum til baráttu gegn atvinnu-
leysi og neyð auðvaldsþjóðfélagsins“.
I nefndina voru kosnir eingöngu verkamenn.
Með samþykktum þessum hefir allmikill
hluti reykvísks verkalýðs sýnt að hann ber
tkki lengur traust til þeirra, er valdhafar ríkis
og bæjarstjómar kallast; að hann væntir það-
an einkis, sem létt geti af honum því oki, sem
atvinnuleysið leggur honum á herðar.
Með fundi þessum hefir reykvískur verkalýð-
ur lagt grundvöll að sínu eiginlega og sjálf-
sagða baráttuliði, er með krafti stéttarsam-
takanna geti skelft svo mörvambar íslenzkrar
auðstéttar og áhangendur þeirra, sem auðæf-
unum halda, og nú vísa verkalýðnum á guð
og gaddinn, — að þeir af ótta hundskist til að
sleppa úr greipum sér því, sem nægir til
þess að forða verkalýðnum frá sulti á komandi
vetri. En til þess þarf allur verkalýður að
fylkja sér saman, fylkja sér um sitt eigið
baráttulið, fyrst og fremst, svo hinar brýn-
ustu stundarkröfur fáist uppfylltar, en jafn-
framt til þess að festa stéttarbaráttu sinni
svo fast form að dæmi verkalýðsins í Ráð-
stj órnarríkj unum, að fullnaðarsigur náist, og
hin fegursta hugsjón mannkynsins verði hér
sem fyrst að veruleika.
Verkamenn og konur! Stöndum saman um
kröfur okkar, bægjum skortinum frá börnun-
um okkar, því þeirra á að bíða annað og göf-
ugra en að verða fórn á altari auðvaldsins.
Fundarmaður.
„Réttur"
Félagar! Hafið þið gert skyldu ykkar við
flokkinn í því að utbreiða „Rétt“?
Takmarkið var minst 100 áskrifendur fyrir
I. ágúst. 54 eru komnir.
En betur má, ef duga skal. Það eru að mestu
2 félagar, sem útvegað hafa þessa kaupendur.
Hver einasti kommúnisti og sannur verk-
lýðssinni verður að hefjast handa!
Kreppan
og ráð kratanna
Neyðin, atvinnuleysið ' og sulturinn sverfa
harðar að vei'kalýðnum með degi hverjum.
íhaldsflokkamir tveir taka höndum saman um
að vernda nú auðvaldsþjóðfélagið, sem veldur
vandræðum og hörmungum, gegn öllum árás-
um alþýðunnar. En þriðji borgaraflokkurinn
—kratarnir — lýsa því yfir, að þeir vilji ekki
vernda þjóðfélag þetta. Það er því bezt að at-
huga nú þeirra ráð við kreppunni og neyð
verkalýðsins.
Ráð kratanna birtist mjög áþreifanlega í
grein Alþbl. 15. júlí, „Alþingi kemur saman“.
Er þar ritað af fjálgleik miklum um krepp-
una og hið illa auðvald, um neyðarástand
verkalýðsins og að lokum kemur ráðið við öllu
þessu böli og hljóðar á þessa leið:
„Og frá Alþingi, meðan það er skipað sem
nú, er engra verulegra bóta að vænta. Fjrrst
þegar þjónar verklýðsfélaganna skipa þar
meiri hluta, kemur breytingin“.
Þetta er þá bjargráð íslenzku sósíaldemó-
kratanna, sem þeir gefa alþýðunni á hinum!
verstu neyðartímum, þegar atvinnuleysið
heimtar úrlausn undir eins, eða örbyrgðin vof-
ir yfir ella. Til næstu kosninga geta vel orðið
4 ár og efasamt um nokkrar breytingar þá.
Yerkamenn! Þið, sem hafið verið atvinnu-
lausir í vetur og sjáið fram á skort og atvinnu-
leysi framvegis! Bíðið þið minnsta kosti næstu
4 ár og líklega lengur!
Verkakonur og mæður af alþýðustétt! Þið,
sem horfið upp á böm ykkar svöng og þjáð
af skorti! Bíðið þið og látið þau hrópa á brauð
næstu 4 ár og líklega lengur.
Sjómenn, sem togaravaldið fleygir frá fram-
leiðslunni, þegar brezku bankarnir skipa!
Sveltið rólega, uns „þjónar verklýðsfélaganna"
skipa meirihluta Alþingis!
Allir þið, sem fátækir eruð og þjáðir af
óréttlæti og kúgun auðvaldsins! Berið alla
kúgun og’ réttindarán, sult og esryu með þögn
og þolinmæði, uns alþýðusambandsstjórnin, er
glatáði Hafnarfirði frá verkalýðnum fyrir of-
stopa og kastaði Akureyrarkjördæmi í gin
ihaldsins af illvilja, hefir fengið meirihluta á
þingi!
Það verður vafalaust ekki langt að bíða. Síð-
asta kjörtímabil hafði Alþýðusambandsstjórn-
in 5 þingmenn, nú hefir hún 4, og við næsta
landkjör missir hún líklega Jón Bald. og hefir
þá 3, svo haldi það áfram eins 'og hingað til,
þá er auðséð hve lengi þai’f að bíða!
Þetta eru þá ráð Alþýðusambandsstjórnar-
innar til alþýðu. Verkamenn! Finnst ykkur
ekki auðsjeð að það eru menn, sern ekki þurfa
að svelta sjálfir næstu 4 ár, sem svona ráð-
leggja, hvað svo sem yfir okkur dynur.
Séu „ráðin“ krufin enn betur til mergjar
sést live ósvífinn blekkingavaðall hér er á ferð-
inni. Alþbl. viðurkennir sjálft og öllum er vit-
anlegt, að „engra verulegra bóta“ sé að vænta
frá Alþingi og þá auðvitað síst á kjördæma-
skipuninni. Við næstu kosningar eru því engin
líkindi til að Framsókn tapi nokkru þingsætí,
I svo breyting gæti fengist. En ki-atarnir hafa
' sarnt eina veika von, sem þeir grípa í sem