Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 03.08.1932, Blaðsíða 4

Verklýðsblaðið - 03.08.1932, Blaðsíða 4
Fangapnir iátnir lausir Frh. af 1. síðu. lýðsins, samfyllíti verkalýðurinn sér betur en nokkru sinni áður, og það svo rækilega, að auðvaldsblöðn steinþögðu um „nokkra óróa- seggi“, „nokkra kommúnista-drengi“ og mint- ust ekki einu orði á þá stærstu kröfugöngu, sem sézt hefir hér. Á laugardagsmorgun var öllum föngunu/n sleppt lausum, þrátt fyrir hótun rannsóknar- dómarans um að svelta þau, „þangað tiLþau fengju málið“. Reynir „réttvísin'* nú að af- saka þessa hneykslanlegu framkomu sína með því, að segja „að þeir geti upplýst(!) málið með öðrum vitnum“. En hversvegna voru þessi „önnur vitni“ ekki leidd áður? Er verið að undirbúa lygar þeirra um bæjarstjórnar- fundinn ? Réttarhneykslið hefir vakið svo megna fyr- irlitningu manna, að frjálslyndum borgurum blöskrar. Og heimslca og ósvífni Ólafs Þor- grímssonar hefir vakið undrun stéttarbræðra hans. Magnús Guðmundsson skammast sín (lengra verður varla komizt) og segir „að þetta mál komi sér ekki við“ og hann þorir ekki annað en lýsa því yfir, að íslandsbanka- málið „vei'ði ekki svæft“. Verkalýðurinn má ekki gleyma því, að þetta hneykslismál er árás á baráttu atvinnuleys- ingjanna, hann má ekki gleyma því, að það eru samtök hans, sem hafa opnað dyr tugt- hússins fyrir félögunum, og umfram allt má verkalýðurinn ekki gleyma því, að slík sam- tök er eina leiðin til þess að breyta hinu óþol- andi ástandi meðal atvinnuleysingjanna, eina leiðin til að leiða baráttuna fyrir atvinnu og brauði til sigurs. Mótmæli verkalýðsins Eftir að tíðindin um fangelsanirnar höfðu borist út um land, efndi verkalýðurinn til mót- mælafunda gegn hinu dæmalaus réttarfari auðvaldsins. ». Frá Siglufirði. Almennur, fjölsóttur verkalýðsfundur hald- inn á Siglufirði þann 27. júlí 1932 móímælir harðlega hinni illmannlegu árás lögreglu Reykjavíkur á verkalýðinn í sambandi við bæjarstjórnarfundinn þar 7. júlí s. 1. Þó vill fundurinn sérstaklega votta þeim valdhöfum fyrirlitningu sína, er þeir nú með fangelsun- um og hungri reyna að koma fram hefnd á verkalýðnum í nafni hinnar svokölluðu rétt- vísi sinnar, er með Magnús Guðmundsson sem æðsta mann er látin Ieggja blessun sína yfir stórþjófnað og aðra glæpi yfirstéttarinnar. Krefst fundurinn þess að þeir, er hafa verið fangelsaðir út af atburðum á bæjarstjórnar- fundinum, er þeir báru fram hinar sjálfsögðu kröfur atvinnuleysingjanna, verði nú þegar látnir lausir. Það skulu valdhafar borgaranna vita, að verði fangarnir píndir áfram með liungri eða öðru eða heilsu þeirra teflt í voða, að þá mun verkalýðurinn á Siglufirði og um allt land, talsa í taumana á viðeigandi hátt. — Eftirfarandi samúðarskeyti samþykkti fund- uiinn og sendir hinum pólitísku föngum í Reykjavík hugheilar baráttukveðjur sínar og lofar að starfa þeim mun betur sem auðvald- ið tekur fleiri frá störfum. Sérstaklega vottar l'undurinn Indiönu Garibaldsdóttir virðingu sína, sem hinni fyrstu verkakonu, er auðvald- ið hneppir í fangelsi fyrir þátttöku sína í stéttabaráttu verkalýðsins. Frá Akureyri. Almennur verklýðsfundur haldinn 27. júlí að tilhlutun Verkakvennafélags(ns Eining og Verkamannafélags Akureyrar mótmælir harð- lega þeirri fádærna ósvinnu lögregluvaldsins í Reykjavík að ofsækja saklaust verkafólk og forgöngumenn þess, fyrir að það ber fram CfiFÉ HÖFN selur ódýrar en aðrir heit- an og' kaldan mat, kaffi, mjólk, öl og- gosdrykki. Verkamenn og' sjómenn kaupa þar, sem verð og gæði eru hezt. Kaupiélag Verkamanua Vestmanuaeyjum selur ailar nauðsynjavör- ur almennings með lægsta verði. Það hefir nnnið allra félaga mest á móti dýrtiðinni i Eyjum. Allt alþýðufólk verzlar fyrst og' fremst við sina eigin verzlun. Kaupfélag Verkainnnua Vestmanuaeyjum. Allir kaupa nú ESKIMO PANTER hinar viðurkenndu en ódýru, rússn. eldspýtur. C A F É V í F I L L K A UPIB Cignrettur, Viudla, Reyktóbak, Mnuntóbak og Neftóbak hjá A T L A Laugaveg 38 SlMl 2 7 5 Tvímœlalaust bezti matsölustaðurinn í bœnum. Allt framleitt úr fyrsta flokks vöru. Sendurn allt heim. Allir varahlutir til hjólhesta og gramó- fóna fyrirliggjandi. Viðgerðir afgreidd- ar fljótt og ódýrt. P Eitt af skáldum vorum, sem daglega neytir O.-S.- kafii- Q bætis, sendir honum eftirfar- andi ijóölínur: JíTfibæÍ Mf Inn til dala, út við strönd, 'il 'm Islendinga hjörtu kœtir, - gíwj . »G.-S.« vinnurhugoghönd, hann er allra kafflbœtirjj 4 Wt Reiðhjól seld með afborgunum og gömul tekin upp í ef þess er óskað. Ó Ð I N N Bankastræti 2 Til AKUREYRAR föstud.kl.8árd. Odýrfargj. Til Sauðárkróks, Blöndu- óss og Hvammstauga á mánudag kl. 8 árdegis. ö manna bifreiðir alltaf til leigu í skemmtiferðir. Bifr.st. Uringurinn Skólabrú ‘2, sími 1232. KAUKASUBHVEITIÐ blátt I, er eitthvertbeztahveitið, sem tii landsins flyzt. Húsinæður! Biðjið verzlun yðar um þetta hveiti, ef þér viljið fá ágætasta liveiti ódýrt. Kanpmenn og- kaupfélög! Pantið þetta hveiti i tima. Einkaumb. á Islandi: ísl. rúgsn. verslnnarfélagið h.f. Síini 1493. Hafnarstrœti 5. Jftvík. Simnefni: Isruv. Smíðastofan Reynir Vatnsstig 3 Smíðar allskonar húsgögn og innréttingar. Sími 2346 ki'öfur sínar um bót á eymd þeiiri, sem ríkir meðai verkalýðsins, sem afleiðing af atvinnu- leysi því, sem kreppa auðvaldsþjóðskipulags- ins skapar og því réttleysi, að því sé refsað nieð fangelsunum, þótt það færist imdan vitnaleiðslum í tilefni af óeirðum þeim, sem urðu í sambandi við fund bæjarstjórnar Reykjavíkur þ. 7. þ. m. Krefst fundurinn þess, af dómsmálastjórn ríkisins, að hún láti hætta ofsóknunum og að allir þeir, sem fang- elsaðir hafa verið, séu látnir lausir tafarlaust. Frá Eskifirði. Fjölmennur borgarafundur var lialdinn hér í gærkvöldi. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt í einu hljóði: Almennur borgarafundur á Eskifirði mótmælir harðíega fangelsunum þeirrji Indíönu Garibaldadóttur, Stefáns Pét- urssonar, Jens Figved, Einars Olgeirssonar og allra annara verklýðsforingja, sem ekkert ann- að hafa af sér brotið en að krefjast atvinnu og brauðs handa svangri og allslausri alþýðu. Fundurinn mótmælir yfirleitt öllum pólitískum fangelsunum. Jafnframt krefst fundurinn þess að sakamálunum gegn Magnúsi Guðmunds- syni og íslandsbankastjórunum verði tafar- laust haldið áfram og fullvissar landsstjórn- ina um að íslenzk alþýða mun virða öll lög borgaranna að vettugi, ef glæpamönnum verð- ur hlíft við refsivendi þeirra. Frá Vestmannaéyjum. Fjölmennur verklýðsfundur haldinn í gær- kvöldi mótmælir harðlega ofbeldisverkum lög- reglunnar í Reykjavík, sem síðustu daga hefir lýst sér í fangelsunum verklýðsforingja. — Krefst fundurinn þess að þeim Indíönu Gari- baldadóttur, Stefáni Péturssyni, Jens Figved og Einari Olgeirssyni verði tafarlaust sleppt úr í’angelsi. Fundinum er það ljóst, að þessu fólki hefir íslenzka yfirstéttin varpað í fang- elsi vegna baráttu þess fyrir aðþrengdan verkalýð Reykjavíkur. Ennfremur að núver- andi dómsmálaráðherra og fyrverandi banka- sljórar Islandsbanka liggja undir sakamálaá- kærum vegna fjárglæfra, en eru látnir leika lausum hala án þess að mál þeirra séu rann- sökuð. Fundurinn skorar því á alla alþýðu til sjávar og sveita að tryggja sem bezt baráttu- samtök sín og linna ekki baráttunni fyr en stéttastjórn íslenzks auðvalds er hrundið af stóli. Frá ísafirði Almennur verklýðsfundur haldinn á ísafirði 29. júlí 1932, að tilhlutun ísafjarðardeildar K. F. í. og S. U. K., lýsir fyllstu samúð sinni með þeim Indíönu Garibaldadóttur, Þóroddi Þóroddssyni, Hirti B. Helgasyni, Stefáni Pét- urssyni, Einari Olgeirssyni og Jens Figved, fyrir ötula baráttu fyrir kröfum verkalýðsins um atvinnubætur og brauð og krefst þess, að ]>au þeirra, sem eru enn í fangelsi, séu tafar- laust látin laus. Jafnframt lýsir fundurinn andstygð sinni á því réttarfari, sem dæmir sakíaust fólk í pyndingar, en lætur stórglæpa- menn yfirstéttarinnar ganga lausa. Sjúklingar og starfsfólk á Ki'istneshæli samþyktu harðorð mótmæli og verkalýðsfé- lögin á Akureyri héldu mótmælafund. þar sem samþykkt var tillaga er kemur í næsta tbl. Verklýðsblaðsins. Auk þess samþykkti manna vinnustöðvarfundur á Akureyri mótmæli. Þessi eru svör verkalýðsins við ofsóknum burgeisanna gegn baráttu atvinuleysingj anna í Reykjavík. ......................................... Magnús Guðmundeson yfirtrompar Nikulás annan. Rússneski verkamaðurinn A. Schapovaloff segir frá því í endurminningum sínum: „Leið mín til Marxismans“, að hann hafi árið 1896 verið tekinn fastur fyrir þátttöku í vefara- verkfalli í Pétursborg og úrskurðaður í varð- hald upp á vatn og brauð í þrjá daga. Stjóm Nikulásar annárs Rússakeisara, sem þá sat við völd, var viðurkennd sem það versta böðuls- veldi, sem til væri í heiminum. En Magnús Guðmundsson hefir bersýnilega ekki viljað standa henni að baki. Því að hann lét Ólaf Þorgrímsson úrskurða kommúnista árið 1932 í varðhald upp á.vatn og brauð í fimm daga! VERKLÝÐSBLAÐIÐ. Abyrgðarm.: Brynjólfur Bjamason. — Árg. 6 kr., í lausasölu 15 aura eintakiö. — Utanáskrift blaðs- ins: Verklýösblaðið, P. O. Box 761, Reykjavik. Afgreiðsla Aðalstræti 9 B. Sími 2184. Prentsmiðjan Acta.

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.