Verklýðsblaðið


Verklýðsblaðið - 01.12.1932, Side 1

Verklýðsblaðið - 01.12.1932, Side 1
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.) III. árg. Reykjavík 1. des. 1932 50. tbl. Flokksþingið Framtíðaráætl anir yíirstéttarinnar: Launalækkanir, fangelsanir og blóðsúthellingar Fréttaskeyti Skúla Skúlasonar til danska burgeisablaðsins ,.Politikenu daginn eftir bæjarstjórnarslaginn 1 danska burgeisablaðinu „Politiken“ birtist 11. þ. m. á fyrstu síðu fréttaskeyti frá Reykja- vík um götubardagann í sambandi við síðasta bæjarstjórnarfund, undirskrifað af Skúla Skúlasyni blaðamanni, sem bregður skýru ljósi yfir það, hvernig yfirstéttin í Reykjavík hyggst að halda við yfirráðum sínum og arðránsmögu- leikum í framtíðinni. Skeytið er dagsett 10. þ. m. og fara hér á eftir þýðingarmestu kaflamir úr því með letur- breytingum Verklýðsblaðsins: „í gær lenti í blóðugum götubardaga í Reykjavík. Kommúnistar og sósíaldemókratar sprengdu bæjarstjórnarfund, þar sem launin í atvinnubótavinnunni voru til umræðu, og réð- ust á bæjarfulltrúana. Lögreglan skarst í leikinn og það lenti í bar- daga þar sem um 20 manns hlutu alvarlega áverka“. „í bráðina hefir bæjarstjómarmeirihlutinn beygt sig----------að því er ætla má af ótta við hótunina um allsherjarverkfall. Enn hafa óróaseggimir frá því í gær ekki verið teknir fastir, þar eð á augnablikinu er verið að stofna 2—300 manna varalögreglu til þess að hafa til taks, ef til götubardaga kæmi eins og vænta má í sambandi við fangelsan- irnar4'. Þetta skeyti, sem sent var af einum blaða- snáp yfirstéttarinnar til Kaupmannahafnar daginn éftir bæjarstjórnarslaginn, er ekki ætl- að fyrir almenning á íslandi og því töluvert meira á því að græða heldur en á venjulegum Eins og getið var um í síðasta tbl. „Vkl.bl.“ hafa krataforingjarnir ákveðið að stofna vam- arlið innan verkalýðsfélaganna í Reykjavík til þess að verja „samtökin" ,gegn árásum hvíta hersins. Út af fyrir sig er ekki nema gott og sjálfsagt að verkalýðurinn skipi sér í vamar- samtök gegn auðvaldinu. Iíitt verður verkalýð- urinn að gera sér ljóst að hálaunabroddar „Al- þýðuflokksins“ hugsa sér tilgang þessara varnarsamtaka allt annan en verkalýðurinn. Þeir vilja í fyrsta lagi hindra samfylkingu verkamanna í eitt varnarfélag verkalýðsins í Rvik, og í öðru lagi ætla þeir með því að taka að sér forustuna í þessum væntanlegu varnarsamtökum að vera undirbúnir að geta beitt þeim á móti samfylkingu verkalýðsins — þegar mest á ríður. íhalds- og Framsóknarblöðin hafa undanfar- ið reynt að klóra yfir hinn sanna tilgang hvíta hersins — að kæfa í blóði baráttu verkalýðs- ins gegn atvinnuleysi og launalækkunum — með því að segja, að hann eigi að halda uppi „röð og reglu“, „verja líf og eignir borgar- Morgunblaðs- og Vísis-greinum, sem fyrst og fremst eru ætlaðar til að hræsna fyrir al- menningi. Skeytið viðurkennir hreinskilnis- lega, að íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjóm Reykjavíkur hafi tekið launalækkunarsam- þykkt sína aftur af ótta við allsherjarverkfall. En það segir jafnframt að bæjarstjómarmeiri- hlutinn hafi ekki beygt sig nema í bráðina. Og það þýðir- að yfirstéttin, sem á bak við bæjar- stjómarmeirihlutann stendur, ætlar sér að hefja launalækkunarárásina í atvinnubótavinn- unni aftur undir eins og hún þykizt nógu sterk til þess. Það er einnig tekið fram í skeytinu, að fang- elsunum „óróaseggjanna“, eins og yfirstéttin kallar foringja verkalýðsins, sé aðeins frestað þangað til búið sé að koma varalögreglu á fót. Burgeisastéttin gerir ráð fyrir því, að verka- lýðurinn muni rísa upp á móti slíkum ráðstöf- unum, en dregur enga dul á það, að hún ætli sér að nota varalögregluna til að bæla niður irótspymu verkalýðsins, ef til þarf í blóðug- mn götubardögum. Skeyti Skúla Skúlasonar í „Politiken", sem eins og allir vita, er runnið undan rifjum burgeisabroddanna hér í Reykjavík, inniheld- ur stefnuskrána fyrir framtíðarstjóm yfir- stéttarinnar í Reykjavík. Launalækkanir, fangelsanir og blóðsúthellingar eiga að tryggja henni áframhaldandi yfirráð og sníkjudýrslíf á baki hinna vinnandi stétta. En skeytið sýnir líka, að verkalýðurinn ræður yfir voldugu ! vopni, sem engin böðulstjóm burgeisastéttar- innar fær staðizt ef því er beitt með festu. Það vopn er allsherjarverkfall. anna“ o. s. frv., enda þótt hver maður viti, að til þessa starfa nægði helmingur hins fasta lögregluliðs í Reykjavík. Verkalýðurinn um land allt verður þegar að hefja öfluga mótmælabaráttu gegn hvíta yfir- stéttarhernum. Hann verður að mótmæla því glæpsamlega framferði auðvaldsins að stela of f jár af almenningi til þess að stofna til blóðs- úthellinga og ofsókna gegn verkalýðnum á sama tíma sem ríkið og bæjavfélagið neitar atvinnulausum verkalýð um hin allra frum- stæðustu lífsskilyrði — vinnu og brauð. — Á laugardaginn kemur kl. verður hald- inn opinber mótmælafundur gegn hvíta hem- um. Verkamenn verða að fjölmenna á þennan fund og ganga í „Varnarlið verkalýðsins“ og sýna með því, að þeir hafi skilning á nauð- syn vamarsamtakanna. „Varnarliðið“ er eitt óhjákvæmilegt skilyrði fyrir árangri í baráttu verkalýðsins fyrir atvinnu og brauði og gegn launaárásum atvinnurekenda. Á föstudaginn var lauk þingi Kommúnista- flokks Islands og hafði þá staðið frá 15 þ. m. Á þinginu voru mættir fulltrúar frá öllum deildum flokksins, að undanskildum 3 smá- deildum á Austurlandi — yfir 40 fulltrúar samtals. Þingið gerði sér fyllilega ljóst að hlutverk þess var að marka tímamót í sögu flokksins. Aldrei hefir verið jafnbrýn þörf fyrir íslensk- an verkalýð að eiga sterkan kommúnistaflokk og nú. Og aldrei hefir verkalýðurinn gert aðrar eins kröfur og tengt aðrar eins vonir við Kommúnistaflokkinn og nú. Á dagskrá þingsins voru eftirfarandi aðal- mál: 1. skýrsla miðstjómar og pólitísk og fagleg verktefni flokksins. 2. Skipulagsmál. 3. Starfið í fjöldafélögunum (A. S. V., Sóvét- vinafélaginu, íþróttafélögunum o. s. frv.). 4. Starfið meðal verklýðsæskunnar. 5. Fjármál og útgáfustarfsemi. 6. Kosningar. Fyrsta málið á dagskránni var höfuðvið- fangsefni þingsins, og urðu um það afarmikl- ar og víðtækar umræður áður en þingið komst að sameiginlegri niðurstöðu, senti eðli- legt er um okkar unga flokk, sem á þessu þingi hefir kafað dýpra í viðfangsefnin og tekið þau fastari tökum en nokkru sinni fyr. Pólitíska ályktunin, sem áður hefir verið rædd gaumgæfilega í deildunum, var umsköp- uð og endurbætt allverulega. Gmndvöllur hennar eru ályktanir 12. fundar framkvæmd- arstjórnar Alþjóðarsambands kommúnista. Við erum að komast inn í nýtt tímabil styrjalda og þjóðfélagsbyltinga. Allt skraf um að kreppunni sé að slota, eru blekkingar ein- ar. Þetta á jafnt við um ísland og önnur lönd. Iíér á landi stendur fyrir dyrum harðvítugri stéttabarátta en nokkru sinni fyr á dögum auðvaldsskipulagsins. Ályktunin gerir skýrari grein fyrir þeim verkefnum, sem fyrir liggja, en nokkurt plagg, sem áður hefir verið samþykkt af flokknum, jafnframt því, sem mistök og vill- ur flokksins era vægðarlaust gagnrýndar og leiðréttar. Sá þáttur í undirbúningi þjóðfé- lagsbyltingarinnar á íslandi, sem Kommún- istaflokkurinn verður nú að leysa af hendi á svo skömmum tíma sem auðið er, er að vinna meirihluta hins þýðingarmesta hluta verka- lýðsins (hafnarverkamenn, sjóníenn, iðnaðar- menn) til fylgis við hina byltingarsinnuðu stéttabaráttu, með því að taka á sig forust- una í hinni daglegu hagsmunabaráttu hans. Þetta verður að vera þungamiðjan í starfsemi flokksins. Allt veltur á því að .verkalýðnum auðnist að stjóma sjálfur launa- og atvinnu- leysisbaráttunni, undir forustu Kommún- istaflokksins, jafnframt því sem treysta verð- ur bandalagið milli verkalýðsins annarsvegar og millistéttanna, smábænda og smáútvegs- manna hinsvegar. En nauðsjmlegasta skilyrði þess að það takist að leiða millistéttimar út í baráttu fyrir hagsmunum sínum, er að þær finni þann styrk, sem þær þarfnast í sterkri verkalýðshreyfingu undir kommúnistiskri forustu. Pólitíska ályktunin vísar kröftuglega á bug því vanmati, sem hefir stundum komið allgreinilega í ljós í starfsemi flokksins — á forustuhlutverki flokksins í hinni daglegu hagsmunabaráttu verkalýðsins, jafnframt því Mófmælabarátta gegn varaiögreglunni Gangið í »Varnarlið verkalýðsins«!

x

Verklýðsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.