Verklýðsblaðið - 21.03.1933, Síða 3
„Æðsti dðmur“ eða
„Fimmtardðmur“?
Tveir .Framsóknarmenn' á þingi
þeir Jón í Stóradal og Jónas frá
Hriflu, flytja frumvörp um breyt-
ingar á Hæstarétti, sem hinn fyr-
nefndi vill framvegis kalla „æðsta
dómu, en hinn síðarnefndi „fimmt-
ardómu. Báðir finna þeir sárt til
þess að Hæstiréttur er með öllu
búinn að fyrirgera áliti sínu með-
al alls almennings í landinu. En
þeim kemur ekki saman um það,
með hvaða brögðum eigi að rétta
það við.
Jónas frá Hriflu vill láta kjósa
dómarana í sameinuðu þingi til 6
ára í senn, en það telur Morgun-
blaðsliðið og Jón í Stóradal vera
8ama sem að gera æðsta dómstól
Jandsins pólitiskan. Eins og að dóm-
stóllinn sé ekki alveg eins póli-
tískur, þótt hann sé skipaður af
forsætisráðherra að undangeng-
inni atkvæðagreiðslu á ráðherra-
fundi, eins og Jón í Stóradal og
Morgunblaðið með honum vill vera
láta!
Hverju nafni, sem hann verður
nefndur, verður Hæstiréttur aldrei
annað en pólitískur dómstóll, verk-
færi í höndum yfirstéttarinnar til
þess að hilma yfir lögbrot burgeis-
anna og undiroka verkalýðinn eins
og áþreifanlega hefir sýnt sig á
síðustu árum í sýknunardómunum
yfir bröskurum burgeisastéttarinn-
ar, Magnúsi Guðmundssyni dóms-
málaráðherra, Jóhannesi Jóhannes-
syni fyrv. bæjarfógeta og mörgum
fleiri annarsvegar og í fangelsis-
dómunum yfir kommúnistum, Hauki
Björnssyni, Guðjóni Benediktssyni,
Þorsteini Péturssyni, Isleifi Högna-
syni og Jóni Rafnssyni, hinsvegar.
En bragðarefir yfirstéttarinnar
munu reka sig á það, að það er
léttara að breyta nafni Hæstarétt-
ar og fjölga dómurunum í honum
heldur en að vinna honum aftur
álit meðal almennings í landinu.
Hlutverk „æðsta dómsu eða „fimmt-
ardóm8u yrði nákværolega hið sama
og „Hæstaréttar11, og það yrði varla
léttara að breiða yfir það, þótt
Magnúsi Guðmundssyni yrði bætt
í dómaratölu, eins og Jón i Stóra-
dal og Morgunblaðið hafa í hyggju.
Skipaílotí
Sovétrákjanna
Fyrir byltinguna voru engin
skip byggð í Rússlandi, — en nú
næstu daga hlaupa 3 mótorskip
af stokkunum í skipasmíðastöð-
inni „Marty“ í Leningrad og
hvert þeirra ber 5500 tonn, öll
ætluð til timburflutninga.
1 janúar 1932 áttu Sovétríkin
yfir 300 verzlunarskip, alls 607596
tonn og eykst ílotinn hröðum
skrefum. 1927 var tonnatalan að-
eins 212,624.
Á tímabili 2. 5 ára áætlunar-
innar 1933—37 á að byggja fragt-
skip, er bæri netto 1,84 miljón
tonna. Ennfremur fragt- og far-
þegaskip fyrir 35000 tonn og
405000 farþega.
í auðvaldslöndunum er skipun-
um lagt upp — í Sovétríkjunum
er byggð ný í hundraðatali.
Vopn verkalýðsins móti
ríkislðgreglunni.
Eins dags mótmælaverkfall og allsherjar kröfuganga.
Undanbrögð Alþýðuflokksforingjanna: Undirskriftasöfn-
un undir einskonar bænarskrá til Alþingis(!)
Mótmælabarátta verkalýðsins
móti rikislögreglufrumvarpi sam-
steypustjómarinnar fer dagvax-
andi. En nú duga engin orð leng-
ur. Verkalýðurinn verður að hefj-
ast handa, ef það á að takast að
kæfa í fæðingunni þau blóðugu
ofbeldisáform burgeisastéttarinn-
ar, sem á bak við ríkislögreglu-
frumvarpið búa.
Síðastliðinn þriðjudag var í
Verklýðsblaðinu sagt frá mót-
mælasamþykkt fjölmenns verka-
lýðsfundar, sem haldipn var hér
í Reykjavík að tilhlutun Komm-
únistaflokksins, Sambands ungra
kommúnista og Alþjóðasamhjálp-
ar verkalýðsins þ. 9. þ. m., þar
sem skorað var á verkalýðinn á
vinnustöðvunum og öll verkalýðs-
félög í Reykjavík að búa sig
undir eins dags mótmælaverkfall
og allsherjarkröfugöngu til Al-
þingis til þess að kæfa ríkislög-
regluna þegar í fæðingunni.
Nú hefir blaðinu borist eftir-
farandi símskeyti frá Isafirði,
sem sýnir að verkalýðurinn þar
hefir einnig gert þessar kröfur
að sínum kröfum:
Á fundi sínum 19. þ. m. sam-
þykkti Verkalýðsfélagið „Baldur“
á ísafirði eftirfarandi í einu
hljóði
1. Verkalýðsfélagið „Baldur“ á
ísafirði mótmælir enn harðlega
frumvarpi því um stofnun ríkis-
lögTeglu, sem stjórnin hefir nxi
lagt fyrir Alþingi. Stimplar fé-
lagið þetta sem tilraun til að
stofna yfirstéttarher í landinu og
brennimerkir hvern þann, sem
ljær þessu frumv. atkvæði sitt
eða aðstoð á annan hátt við stofn-
un ríkislögreglunnar, sem opin-
beran fjandmann verkalýðsins.
Einnig mótmælir félagið öllum
afskiptum ríkisvaldsins af launa-
deilum verkalýðsins. Jafnframt
lýsir félagið samþykki sínu og
fyllstu samúð með því að verka-
lýðurinn hefji að minnsta kosti
eins dags verkfall og fari í kröfu-
göngu til mótmæla gegn frumv.
þegar bað er til annarar umræðu
á Alþingi.
2. Fjölmennur fundur í verka-
lýðsfélaginu „Baldur“ á ísafirði
skorar á Alþýðusamband íslands
að beita allsherjarátökum sam-
takanna til þess að koma í veg
fyrir lögfestingu ríkislögreglunn-
ar og norska samningsins, jafn-
vel með allsherjarverkfalli innan-
lands, þar til Alþingi hefir synj-
að báðum þessum friunv. um
samþykki sitt. Þó vill félagið at-
huga gaumgæfilega framkvæmd
þessara tilþrifa áður en sporið er
stigið.
Fyrri tillagan flutt af Komm-
únistaflokknum, síðari af Hanni-
bal Valdimarssyni.
Þessar kröfur munu fara sig-
urför meðal verkalýðsins um allt
land. En það nægir ekki. Þær
verða að framkvæmast. Og þá
veltur framar öllu öðru á verka-
lýðnum hér í Reykjavík. Alþýðu-
flokksforingjamir, sem bæði
efnahagslega og pólitískt eru
flæktir burgeisastéttinni, ætla
bersýnilega að gera allt, sem í
þeirra valdi stendur til þess að
hindra það að verkalýðsfélögin
hér í Reykjavík hefjist handa.
Þeir hindruðu það á fundi þeim,
sem þeir héldu í K.R.-húsinu þ.
11. þ. m., að kröfurnar um mót-
mælaverkfall og allsherjar kröfu-
göngu móti ríkislögreglunni væru
svo mikið sem ræddar, hvað þá
heldur bornar undir atkvæði. Og
eins var þvi neitað að bera þær
undir atkvæði á síðasta fundi
Verkakvennafélagsins Framtíðin,
enda þótt þær fengju þar ágætar
undirtektir. 1 stað þess hafa Al-
þýðuflokksforingjamir gengizt
fyrir undirskriftasöfnun undir
einskonar bænarskrá til Alþingis
um að láta ríkislögreglufrum-
varpið ekki ná fram að ganga(!).
Verkamenn! Þannig líta fram-
kvæmdimar út á þeim hótunum,
sem Héðinn Valdimarsson hefir
skrifað í Alþýðublaðið á möti
ríkislögreglunni! Undirskrifta-
söfnunin er alls ekki gerð í þeim
tilgangi að hindra samþykkt
ríkislögreglunnar á Alþingi, því
að Alþýðuflokksforingjamir vita
ofur vel að til þess nægja engar
undirskriftir, heldur aðeins at-
hafnir. Undirskriftasöfnunin er
gerð í þeim einum tilgangi að
hindra það, að þið sjálfir hefjist
handa á móti ríkislögreglunni.
Því að Alþýðuflokksbroddarnir,
Jón Baldvinsson, Héðinn Valdi-
marsson og Ólafur Friðriksson
vilja enga baráttu á móti ríkis-
lögreglunni. Þeir eru undir niðri
ekki frekar á móti ríkislögregl-
unni heldur en flokksbróðir
þeirra, Erlingur Friðjónsson, sem
nýlega krafðist varalögreglu á
Akureyri til þess að slá niður
með blóðugu, ofbeldi mótspyrnu
verkalýðsins þar móti launalækk-
unarsamþykkt bæjarstjórnar-
innar.
Verkamenn! Sjáið þið nú, hvav
Alþýðul'lokksbroddamir standa í
baráttunni milli stéttanna? Þeir
eru agentar auðvaldsins í ykkar
herbúðum! Lærið af reynslu síð-
ustu daganna! Látið þeim ekki
lengur haldast uppi að vega aftan
að baráttu ykkar móti ríkislög-
reglunni, þessu fyrirhugaða, blóð-
uga kúgunartæki burgeisastéttar-
innar móti verkalýðshreyfing-
unni! Heimtið að kallaður verði
saman fundur í Dagsbrún, Sjó-
mannafélaginu og öllum öðrum
verkalýðsfélögum í Reykjavík til
þess að undirbúa eins dags mót-
mælaverkfall og allsherjarkröfu-
göngu inn á Austurvöll þegar
ríkislögreglufrumvarpið verður
til annarar umræðu á Alþingi!
Kolasalan s.f.
Sími 4514
Kvöldskemtun
heldur K. F. 1. á laugardagskvöld-
ið kl. 9 í fundarsal flokksins.
DAGSKRÁ:
1. Söngur.
2. Upplestur: Saga frá himnaríki.
3. Ræða (H. B. H.).
4. Upplestur á ræðu, er Fr.
Engels hélt við gröf Marx
17. marz 1883.
5. Söngur.
6. DANS.
Sú nýbreytni verður að þessu
sinni, að það verða eingöngu
æskulýðsfélagar sem skemmta og
verður vel til þess vandað. Ættu
félagarnir því að sækja vel þessa
skemmtun og þó sérstaklega
æskulýðsfélagamir.
Skemmtinefndin.
Hefir Hitler gert Göbbels
að útvarpsstjóra -
einnig á Islandi?
Skömmu eftir að foringi Naz-
ista, Hitler, varð kanzlari á
Þýzkalandi, gaf hann út fyrir-
skipun um það, að flokksmaður
hans, Göbbels, ein auðvirðileg-
asta sprauta fassismans á Þýzka-
i landi, skyldi vera yfirútvarps-
stjóri þar í landi. Kom slíkt eng-
um á óvart. Hitt er einkenni-
legra, að ekki verður betur séð
en að hið „hlutlausa“ íslenzka
ríkisútvarp hafi tekið þessa skip-
un þannig, að Göbbels ætti einn-
ig að vera útvarpsstjóri á ís-
i landi. Því að alla tíð síðan hefir
| íslenzka útvarpið flutt athuga-
! semdalaust agítasjónslygar hins
i fassistiska þýzka ’ útvarps svo
sem það, að kommúnistar hafi
kveikt 1 ríkisþingsbyggingunni í
Berlín, að Hitler hafi á fimm
dögum. gert meira en Bismarck
á fjörutíu árum og fleira álíka
viturlegt. Væri fróðlegt að fá að
heyra frá útvarpsráðinu hér,
hvernig þessu víkur við.
Kommúiiistar myrtir í
fangelsiiiiiim í Þýzkalandi
Frá Þýzkalandi koma í útvai-p-
inu öðruhvoru fréttir um það, að
verið sé að skjóta kommúnista,
sem gert hafi tilraun til þess að
flýja úr fangelsum Hitlersstjóm-
arinnar. Það er sama sagan og
sömu lygarnar eins og þegar Karl
Liebknecht og Rosa Luxemburg
voru „skotin á flóttanum“ árið
1919. í raun og veru voru þau
myrt í höndum lögreglunnar, með
hennar vitund og vilja, og sann-
þessar nýjustu útvarpsfréttir, er
sá, að Hitlersstjórnin lætur með
ráðnum hug myrða foringja
verkalýðsins í fangelsunum.
lýðsins í fangelsunum.
Þýzka ríkisþingið hefir til mála-
mynda verið kallað saman 1 dag.
Fulltrúar kommúnista, þriðja
stærsta þingflokksins, hafa verið
útilokaðir frá þingsetu. •— Nánari
fréttir í næsta blaði.
l