Verklýðsblaðið

Issue

Verklýðsblaðið - 30.04.1934, Page 1

Verklýðsblaðið - 30.04.1934, Page 1
UTG5FANDI: HOMNÚNISTAFLOKKURISLANDS (DEILD ÚR A.K.) V. árg. Reykjavílc 30. apríl 1934 19. tbl. Verkalýður Reykjavíkur! Úi á göíuna 1. maí! Til baváiiu fyrir hagsmunum verkalýðsins gegn auðvaldi, /as* isma og kraiaforingjum! Verkamenn! Verkakonur! Verklýðssinnar! Heima hjá ykkur sverfur at- vinnuleysið og neyðin stöðugt fastar að. Á vinnustöðvunum eykst vinnuhraðinn, auðvaldið pínir út úr ykkur vinnukraftinn miskunnarlausar en nokkru sinni áður. Hungurárásir og fasistisk- ar ofsóknir auðvaldsins færast í aukana. Nýtt tímabil byltinga og styrj- alda stendur f.vrir dyrum. Alstað- ar skerpast átökin milli hinna undirokuðu stétta og þjóða ann- arsvegar, og- kúgandi heimsauð- valdsins hinsvegar. Undir forustu Kommúnistaflokkanna heyir bylt- ingasinnaður verkalýður hetju- leg’a samfylkingarbaráttu gegn fasismanum, jafnt í Þýzkalandi og' Austurríki, ]?ar sem fasisminn í bráðina hefir sigrað með aðstoð krataforingjanna sem í Frakk- landi og Spáni, þar sem framrás hans er heft með allsherj arverk- föllum og voldugri stéttabaráttu fjöldans. I Sovétríkj unum skapar hinn sigrandi verkalýður sósíalismann og leggur grundvöllinn að stétt- lausu hjóðfélagi. Islenzka burgeisastéttin býr sig til stöðugt skarpari fasistiskrar kúgunarstjórnar gegn verkalýðn- um. Hungurársirnar, aukið at- vinnuleysi, aukin vinnuhraði og vélanotkun, vaxandi dýrtíð, launa- lækkanir, taxtabrot, þrælameð- ferð á fátæklingum — allt þetta lielst í hendur við vaxandi of- "beldisstjórn hennar, stéttardóma, afnám lýðræðisréttinda, fasistiskt ofbeldi kratabroddanna í verk- lýðsfélögunum, lögre'gluógnir o. s. frv. Leið burgeisastéttarinnar stefnir að fasistiskri ógnarstjórn. Leið verkalýðsins verður að vera: Byltingarsinnuð dægurbar- átta gegn hverri árás af hendi auðvaldsins á lífskjör hans og Kröfuganga samfylkingarinnar 1. maí í fyrra. réttindi, þrátt fyrir sprengingar- tilraunir kratabroddanna. Það er leiðin til að hindra framrás fas- ismans, og brjóta hann á bak aftur. Það er leiðin, sem skapar skilyrðin fyrir sigri verklýðsbylt- ingarinnar og sósíalismans. Gegn atvinnuleysi, launalækk- unum og auknum vinnuhraða. Fyrir atvinnu og atvinnuleysis- tryggingum. Gegn auðvaldinu, ríkislögreglu þess og fasisma. Fyrir verndun Sovétríkjanna. Fyrir sigri verklýðsbyltingar- innar og sósíalismans, fyrir sovét- stjórn. Sýnum einingu okkar í sam- fylkingarkröfugöngunni 1. maí. KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍSLANDS. S. U. K. A. S. V. S AMF YLKIN G ARS AMTÖK HAFNARVERKAMANNA. 1. mai: Dagur verkailýðsixts Dagrurúm: Kl. 1 safnast verkalýðurinn saman á eftirfarandi stöðum í bænum, verða þar haldnar stut.tar ræður. Óðinstorg: Ræðumaður: Gunnar Benediktsson. Hafnarskýlið: Ræðum.: Guðbrandur Guðmundsson og Skúli Magnússon. Brunastöðin við Framnesveg: Ræðum.: Erling Ellingsen. Hólabrekka, Grímsstaðaholti: Ræðum.: Eðvarð Sigurðsson. Kl. 1,20 verður haldið frá þessum stöðum niður í LÆKJARGÖTU, þar sem aðalútifundirnir verða haldnir. Kl. 1,30 byrjar hljómsveit að leika, Karlakór verkamanna syngur og Brynjólfur Bjarnason heldur ræðu. Kl. 2 hefst kröfuganga samfylkingarinnar um bæinn. Lúðrasveitin Svanur verður með í förinni. Kl. 3 hefst svo útifundurinn í Lækjargötu. Þar tala fulltrúar hinna ýmsu félaga verkalýðsins, fiokksins og S. U. K. Karlakór verkamanna syngur og Lúðrasveitin Svanur leikur. Kvöldið I K.-R-húsinu kl. 8Í2 e. h.: 1. Lúðraflokkur: Internationale. 2. Ræða: Hjalti Árnason. 3. Karlakór verkamanna syngur. 4. Ræða: Skúli Magnússon. 5. Leikhópar verkamanna. 6. Upplestur: Magnús Árnason 7. Ungherji: Listdans. 8. Karlakór verkamanna syngur. DANS á eftir. fimm manna hljómsveit spilar. Aðgöngumiðar seldir í Bröttugötu og- í K.-R.-húsinu eftir kl. 5 síðd. 1. maí og kosta kr. 2,50. I Bröttugötusalnum kl. 8 e. h.: 1. Ræða: Aðalbjörn Pétursson. 2. Karlakór verkamanna syngur. 3. Leikhópar verkamanna. 4. Ræða: Katrín Pálsdóttir. 5. Upplestur. 6. Ungherjarnir skemmta. 7. Ræða: Hallgr. Hallgrímsson. Aðgöngumiðar seldir allan daginn í Bröttugötu og kosta kr. 0,75. 1. maí-merki samfylkingarinnar, rauðar slaufur með hamar og Mætumst öll á götunní 1. maí? sigð, verða seld á götunni allan daginn. Ennfremur önnur merki, bækur, blöð og annað.

x

Verklýðsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.