Verklýðsblaðið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verklýðsblaðið - 30.04.1934, Qupperneq 2

Verklýðsblaðið - 30.04.1934, Qupperneq 2
Tveir heimar; ,Nýir kaupsamiiingar‘ á Isafirði „Sigur“ kratanna: 7. nóvember afnuminn sem frídagur verkamanna. í marz sagði verkalýðsfélagið á ísafirði upp kaupgjaldssamn- ingi við atvinnurekendur, en hann liafði staðið óbreyttur í nokkur undanfarin ár. Strax á fundinum, sem samningunum var sagt upp, komu kratabroddamir fram með tillögu um örlitla styttingu vinnu- dagsins, en um leið hækkað dag- kaup. Kommúnistar stilltu aftur á móti upp þeirri kröfu, að vinnu- dagur styttist, dagkaup héldist ó- bre.vtt og tímakaup hækkaði hlut- fallslega. Eftir þétta héldu kratabrodd- arnir í verkl.fél. ekki fund í því á annan mánuð, báru því við, að þeir fengju ekki atvinnurekendur til viðtals og samningagerða, en ástæðan var, eins og líka kom vel í ljós síðar, að hindra það, að verkafólk ræddi kauptaxtann og leggja fram á síðustu stundu þann taxta, sem' atvinnurekendur væru ánægðir méð og hamra í gegn, að hann yrði samþykktur. Atvinnurekendur börðust fyrir því, að kauptaxti yrði óbreyttur. En kratabroddamir, sem í fyrstu höfðu barizt fyrir tillögum sínum, sem kauphækkun, fóru þá strax að reikna út hversu mikil hækkun tillögur þeirra væru fyrir at- vinnurekendur og þar af leiðandi hagkvæmár fyrir þá. Og urðu þeir afar skapillir þegar það sýndi sig, að atvinnurekendur skildu ekki að fullu þessa viðleitni þeirra og þeir voru orðnir þetta á undan húsbændum sínum í kauplækkun- arárásum á hendur verkalýðnum. Til þess að ota sjómönnum gegn verkamönnum í sambandi við kaupgjaldssamningana, hótuðu þeir lækkun fiskverðs, ef taxti héldist ekki óbreyttur. Kratabrodd amir, bæði í sjómannafélaginu og verklýðsféíaginu, börðust af al- efli og með góðum árangri fyrir því, að atvinnurekendum tækizt þetta, að sjómenn og verkamenn stæðu ekki sameinaðir. Endirinn varð sá, að kaupgjaid er óbreytt. Greiddu kommúnistar í verkl.fél. atkvæði með því, eftir að breytingatillögur þeirra höfðu verið felldar,- en með því voru einnig lækkunartillögur krata- broddanna felldar. Kratabroddarnir gorta samt af unnum stórsigri í blaði sínu „Skutli“. Og þeir telja þá upp: Atvinnurekendur eiga að hita upp vatnið fyrir fiskþvottakon- urnar strax og þeir sjá sér fært að koma því í framkvæmd. 7. nóvember er afnuminn sem frídagur, en 1. apríl gerður að frí- degi í hans stað. Þeir sögðust vilja spara verka- mönnum að hlaupa frá þriggjá króna kaupinu á hátíðahöld kom- múnista. En það var auðvitað sjálfsagt að þeir hlypu 1. apríl frá þessu sama kaupi á hundleið- inlegar og háborgaralegar af- mælisskemmtanir kratanna. En orsökin fyrir þessari breyt- ingu er augljós. 7. nóv. — minn- ingardagurinn í Rússlandi — er Heimur auðvaldsins: Hvað er auðvaldsskipulag? Það skipulag, þar sem meiri hluti manna sveltur, af því að „of mikið“ er til af mat. En eru þetta þá ekki öfugmæli? Geta menn soltið í nokkru landi, þar sem „of mikið“ er til að mat- vælum ? Við skulum láta staðreyndirnar svara þeirri spumingu. / í Bandaríkjunum og Canada hefir að undanfömu verið brennt miljónum tonna af hveiti. Það er nú orðið ódýrara eldsneyti þar í löndum en kol. Ríkið heitir fram- leiðendunum verðlaunum fyrir það hveiti, sem þeir brenna og hvetur bændur til að hætta að sá í mikinn hluta af ökrum sínum. 1 Brasilíu mátti sjá langar jám- brautarlestir leggja af stað frá ýmsum borgum. Þær staðnæmd- ust einhversstaðar úti á auðri sléttu, og úr vögnunum var hellt smálest eftir smálest af kaffi. Þegar komnir voru mílna langir garðar af kaffibaunum báðu meg- in við brautarteinana, var hellt olíu yfir og kveikt í öllu saman. í New York, þar sem tugir þús- unda af bömum veslast upp af hungri eða leggjast út á flakk, hefir miljónum lítra af mjólk ver- ið hellt í sjóinn. í Hollandi voru í fyrra 200000 svín rekin til bæjanna og brend til ösku. Þá er „verkamannastjórn" krat- anna í Danmörku heldur ekki ráð- alaus gagnvart kreppunni. Hún hefir nú komið á fót sannkölluð- um stóriðnaði, sem! þolir fyllilega samanburð við hveiti- og kaffi- brennslustöðvamar í Bandaríkj- unum og Brasilíu. í ýmsum lands- hlutum hafa verið stofnsettar 3 stöðvar, til þess að eyðileggja sláturfé, svo að framboðið minnki og verðið hækki. Þetta er gert á ríkisins kostnað. Ríkið kaupir af stórbændunum þær skepnur sem' þeir treysta sér ekki til að koma í nógu hátt verð, og lætur bræða úr þeim áburð og beinamjöl. En í Danmörku eru, eins og kunnugt er, 200000 atvinnuleysingjar, sem svelta af því að þeir geta ekki keypt sér kjöt og aðrar land- búnaðarafurðir! Þetta er hinn danski „sósíalismi“ Stauningskrat- anna. Það er von að Alþýðublað- ið sé montið af þessum „sósíal- isma“. mesti hátíðisdagur verkalýðsins um allan heim og merkasti dagur í veraldarsögunni. 7. nóv. er leið- arljós verkalýðsins í öllum heim- inum á byltingarbrautinni — af- námi auðvaldsskipulagsins og valdatöku veikalýðsins og fátækra bænda, með verklýðsbyltingunni. Kratarnir á ísafirði hafa með þessu auglýst betur en með flest- um öðrum dæmum fullan fjand- skáp sinn til Sovétlýðveldanna og uppbyggingu sósíalismans þar og baráttu verkalýðsins í öllum heim. inum. Heimur sósíalismans: Hvað er sósíalistiskt skipulag? Það skipulag, þar sem fram- leiðslan er eingöngu miðuð við þarfir hins vinnandi lýðs. Sovjet-ríkin þekkja engakreppu Offramleiðslan er hugtak sem á sér engan stað í sósíalistisku ríki. Þar getur aldrei orðið og mikið af mat, aldrei of mikið af lífsnauð- synjum, því að þarfir manna eru ótakmarkaðar. Sovétríkin eru nú orðin eitt hið mesta iðnaðarland heimsins. 84,5 % af sáðfleti landsins tilheyrir nú samyrkju- og sovjetbúunum: Sós— alisminn hefir nú sigrað endan- lega í iðnaði og landbúnaði, grund- völlur sósíalismans hefir að fullu verið lagður með framkvæmd fyrstu fimmáraáætlunarinnar. Nú er liðið meira en eitt ár af annari fimmáraáætluninni. Hlut verk hennar er að byggja ofan á þennan grundvöll, að veita hinni vinnandi alþýðu nægtir allra lífs- nauðsynja og fullnægja öllum menningarþörfum hennar. Aðalhlutverk annarar fimmára- áæt’unarinnar evu þessi: Fyrst og fremst. að útrýma síð- ustu leifum auðvaldsstéttarinnar í sovjetlýðveldunum og þar með allri stéttaskiftingu yfirleitt, að útrýma þeim orsökum er leiða til stéttaskiftingar. í öðru lagi að efla efnalega vel- gengni verkalýðs og bænda, að tvöfalda eða þrefalda þjóðarneyzl- una. I þriðja lagi að ljúka við hina skipulagslegu nýb.vggingu þjóðar- búskaparins í heild sinni. Framkvæmd þessara verkefna mun gera ráðstjórnarríkin að al- gerlega stéttlausu þjóðfélagi. í annari fimmáraáætluninni er gert ráð fyrir ennþá stórfelldari framkvæmdum en í þeirri fyrstu. Fjármagn það, sem varið verður til þessara framkvæmda, verður tvöfalt eða þrefalt á við það, sem varið var til framkvæmda fyrstu fimmáraáætlunarinnar. Hin fjar- lægu lönd Síberíu, sem voru hund- ruðum ára á eftir tímanum, munu breytast í auðug og blómleg iðnað- arlönd. Geisilegum fjárhæðum verður varið til þess að hækka menning- arstig hins vinnandi lýðs, til þess að reisa skóla, vísindastofnanir, bókasöfn, leikhús o. s. frv1. Á með- an auðvaldsheimurinn siglir hrað- biri til eilífrar glötunar, stefnir heimur sósíalismans fram til æ g'læsilegri framtíðar. Hlutleysi Útvarpsins í fyrra sumar lét Útvarpið j nokkra karlakóra og söngmenn : syngja á Grammófónplötur til að auka fjölbreytni í „Grammófón- tónleikum“ sínum. Karlakór verka manna söng tvö lög. Nú hefi ég hlustað á útvarpið í hlutlausri andagt mánuðum saman og aldrei heyrt þessi lög verkamannakórs- ins leikin. Skýringin hlýtur að liggja í hinu óviðjafnanlega hlut- leysi Útvarpsins. Útvarpsnotandi. Verkamanna -sendí' nefndin til Sovét- ríkjanna, Á sumardaginn fyrsta lagði 1 nefndin af stað. Hún er að þessu sinni skipuð 5 mönnum. Frá Rvík f fóru þeir Bjarni Bentsson tré- smíðasveinn, sem fulltrúi iðn- nema, og Jón Erlendsson verka- maður, sem fulltrúi hafnarverka- manna. Frá Isafirði Vilh. Jónsson verkamaður og frá Vestmanna- eyjum Karl Sigurhansson iðnaðar- maður. Sem fimmti maður nefnd- ; arinnar fór formaður Sovétvina- ! félagsins, Kristinn Andrésson, í erindum félagsins. Kveðjufundur sá, sem Sovét- vinafélagið boðaði til í Bröttugötu kl. 5 um daginn, var mjög vel sóttur. Nefndarmenn komu þar | fram og lýstu í stuttu máli póli- tískri afstöðu sinni og viðhorfi gagnvart förinni. Kváðust þeir allir mundu gera sér far um að afla sér sem fyllstra kynna af ný- v byggingu sósíalismans í verka- lýðsríkinu og hétu því, að þeir myndu að fararlokum segja ís- lenzkum verkalýð sem sannast og réttast frá öllu, er fyrir augun bæri. Að fundinum loknum, var sendi nefndarmönnum fylgt til skips. Var það mikill fjöldi Sovétvina, sem þar var saman kominn á hafnarbakkanum til að kveðja sendinefndina og óska henni far- arheilla. Eggert Þorbjamarson á- varpaði - mannfjöldann frá skips- hliðinni, og að lokum söng Karla- kór verkamanna Alþjóðasöng verkalýðsins. Frá Bergen barst Sovjetvinafé- laginu eftirfarandi skeyti frá nefndinni: í kvöld áleiðis ti’ Gaut- aborgar. Góð líðan. Kristinn. Hvar á að taka peningana? (Verkamannabréf). Þannig tala burgeisamir þegar verkalýðurinn krefst atvinnu eða , betri lífskjara. Fjöldi verkamanna ,j hlustar á þetta þvaður um að 1 engir peningar séu til, og táka það <| jafnvel sem góða og gilda afsök- l un auðvaldinu til handa. Peningamir eru til, þeir eru hjá eignamönnunum, skuldaeig- endunum. Haldið þið kannske að allar miljónirnar, sem sjómenn, verkamenn og bændur „skulda", hafi gufað upp? Nei, þær eru vel geymdar og ennþá betur ávaxt- aðar. Eitt dæmi úr fasteignamatinu: Jón Þorláksson á í eigin persónu fasteignir hér í Reykjavík, sem eru 500 þús. kr. virði, auk lausa- fjár, hlutabréfa í fjölda arðber- andi fyrirtækja. Þess utan er Jón á framfæri bæjarins, með 16 þús. króna árslaunum. Það eru nógir peningar til. Til þess að framkvæma kröfur verkalýðsins vantar ekki pen- inga. Það sem til þess þarf er ^ byltingasinnuð, samtaka barátta verkalýðsins-

x

Verklýðsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.