Verklýðsblaðið

Tölublað

Verklýðsblaðið - 14.05.1934, Blaðsíða 2

Verklýðsblaðið - 14.05.1934, Blaðsíða 2
Nánar frá bardögimum á Sigluflrði Hvítliðaskrillinn vopnaður með trékylíum slökkvitœkjum, grjóti og skotvopnum. taka opinbera afstöðu með bur- geisunum, gegn hagsmunamálum ▼erkalýðsins. Þessvegna er það lífsspursmál fyrir verkalýðinn að eiga í þess- ari baráttu dagblað, sem ekki sé edns og Alþýðublaðið og ekki sé eftir hugmyndumí tækifærissinn- anna, heldur blað sem skipulegg- ur og leiðir verkalýðinn í daglegri baráttu hans gegn öllum auðvalds- árásum, fyrir hagsbótum, blað, sem sameinar og samfylkir hon- um á grundvelli stéttabaráttunn- ar. Þetta blað er Verklýðsblaðið, sem ennþá getur aðeins að litlu leyti uppfyllt þetta hlutverk sitt, þar sem það kemur aðeins viku- lega út. Þessvegna er næsta skrefið, að Verklýðsblaðið komi út tvisvar í viku. Allur flokkurinn verður að leggjast á eitt með að fram- kvæma þet.ta kjörorð. Allar sellur hans og stjómir verða að veita því hina mestu athygli. 1 hverri sellu verður að gera einn félaga ábyrgan fyrir Verklýðsblaðinu að öllu leyti í stað prentsmiðjuleið- toganna. Það verður að fá verka- lýðinn sjálfann til að skrifa í Verklýðsblaðið. Á vinnustöðvun- um og á fundum verkalýðsins þarf að ræða um Verklýðsblaðið. Það þarf að nota sósíalistisku samkeppnina í þágu baráttunn- ar fyrir Verklýðsblaðinu tvisvar í viku. Flokks- og SUK-félagar! Sameinist um að gera þetta kjörorð, að veruleika! Verkamenn og verkakonur! Vinnandi fólk! Fylkið ykkur utan um Verklýðshlaðið! Svarið fasistiskum árásum á lífskjör ykkar og svikum kráta- foringjanna m. a. með því að koma Verklýðsblaðinu út tvisvar í viku! Blekkíngar Alþýðubl. um deilumar norðanlands. Alþýðublaðið er heldur en ekki í illu skapi eftir afhjúpanimar í fregnmiðanum frá samfylkingar- samtökunum. Lýgi! Lýgi! hróp- ar það augliti til auglitis við stað- reyndimar, eins og alltaf, þegar þeir finna ekkert fíkjublað til að hylja nekt sína. „Glæsilegur sig- «r“ æpir það, eftir svikin á Blönduósi. Alþýðublaðið neitar því, sem hvert mannsbam á Blönduósi veit, að sýslunefnd háfi gengið á milli verkamánna og reynt að þröngva þeim m!eð hungurhótunum til að ganga að nauðungarkostum Al- þýðusambandsins og ríkisstjórnar- innar. Alþýðublaðið tekur upp hanskann fyrir sýslunefndina og játar þar með alveg ótvírætt að ■sýslunefnd hafi framið sví virð- ingar sínar í umboði Alþýðusam- handsins. ......— Jíveðja frá Sovétsendinefndinni Sovétvinafélaginu barst eftirfar- indi skeyti frá Sovét-sendinefnd- inni: ^Moskva 9./5. Fórum í dag til Odessa. Rauðar kveðjur. Áður en „Dettifoss“ kom, var dreift út flug-miða, um bæinn undirskrifuðum af bæjarfulltrú- um Alþýðuflokksins, Framsóknar- flokksins og íhaldsflokksins öllum í sameiningu. í þessum miða var skorað á alla borgara bæjarins að slá verkalýðinn niður með öllum meðölum, og sagt að þar sem Al- þýðusambandið réði, þar væri vinnufriður(!!) eins og til að undirstrika enn betur það, að AI- þýðusambandið stæði að baki þessum fasistisku ofbeldisverkum gegn verkamönnum. Þegar „Dettifoss“ kom, tók sér stöðu á brvggjunni 150 manna fasistasveit, þar af 50 manna hvítliðalögregla vopnuð með gúmmíkylfum og ebenholtskylf- Föstudaginn 4. marz s. 1. tók hæstíréttur fyrir mál „réttvís- innar“ gegn verkamönnunum frá 9. nóvember í fyrra. Samkvæmt úrskurði réttarins skal málið sækjast og verjast skriflega, svo að sem hljóðast verði um það, og að hinir ákærðu fái ekki að verja sig, eins og hefir þó gilt í öllum málum undanfarið. Málið var ekki auglýst í anddyri réttarsalsins Lævísleg árás á hafnarverkamenn (Verkamannabréf). Síðastliðinn föstudag var tals- verð vinna við höfnina, en ekki þó svo mikil að hópur manna fekk ekkert handtak og mikill fjöldi var „skrifaður af“ á hádegi. En hvað gerir verkstjóri Jóns í AIli- ance (Guðmundur Jóelsson) í um- boði valdhafa bæjarins? Hann sendir eftir ellefu mönnum í bæj- arvinnuna til að vinna í „Tryggva gamla“ meðan hópur hafnarverka- manna gekk vinnulaus um bryggj- urnar. Þetta er tvennskonar árás á verkamenn. 1 fyrsta lagi tekin vinnan frá hafnarverkamönnum og í öðru lagi blekking fyrir Morg- unblaðið og Co„ að flytja hvað vinnan hafi verið mikil við höfn- ina og því ekki ástæða til at- vinnubóta í náinni framtíð og þannig um leið árás á alla þá, sem njóta atvinnubótavinnunnar. Þess má geta að varaformaður Dagsbrúnar var að vinna á sömu bryggju og Tryggvi gamli lá við, þegar þetta var, en það heyrði enginn hann minnast á það! Fyrir samtök bæjarverkamanna fengu þeir full daglaun, annars ætlaði verkstjórinn fyrir hönd Jóns í Alliance, að stela af þeim einum klukkutíma. Hafnarverkamaður. um, og ennfremur höfðu nokkrir þeirra skotvopn. Auk þess höfðu þeir búið sig með grjóti. Með þessum vopnum réðust þeir sem hamstola væru á verkalýðinn, köstuðu grjóti og slöngvuðu vatni úr slökkvitækjunum. Eftir bardagana var haldinn gífurlega fjölmennur múgfundur. Reiði verkalýðsfjöldans og bar- attuvilji er meiri en dæmi eru til áður. Hatrið og andstyggðin á kratabroddunum er að verðleik- um. Verkalýður Siglufjarðar er reiðubúinn til að brjóta fasistana á bak aftur með öllum ráðum og berjast til þrautar, þar til sigur > er unninn. eins og önnur mál, og hinir á- kærðu ekki neitt aðvaraðir af hin- um svonefnda verjanda, enda al- drei til þess ætlast af „réttvís- inni“. Verkalýðnum skal þó eftir mætti gefinn kostur á upplýsing- um um‘ málið í meðferð réttarins, því málið er ekki neitt einkamál hiima ákærðu, heldur er það dóms ofsókn yfirstéttarinnar á hendur verkalýðsstéttinni. ,Ré!tlsti faríseanna1 (Verkamannabréf). I gær átti ég tal við menn, sem vinna í bæjarvinnunni hjá Vatns- geyminum, og sögðu þeir mér þær fréttir, að ennþá væru þeir ekki famir að fá borgaðann tím- ann fyrir að ganga til vinnunnar, sem þó var samþykkt að gjöra á bæjarstjómarfundi fyrir nokkru Aftur á móti er mér sagt, að þeir, sem vinna í vatnsveitunni, fái borgaðan hálftíma á dag fyrir að ganga til vinnunnar, eins og sjálf- sagt er. En hvað meinar borgarstjóri með þvi, að stela þessu af mönn- unum, sem vinna upphjá geymi? Það nemur fyrir einn mann á viku 4 krónum og 80 aurum, en það eru peningar, sem fátækt verka- fólk munar um. Máske borgarstjóri ætíi sér að skáka í því hróksvaldi að þessir menn viti ekki hvað þeim ber að fá? Eða heldur hann að þeir séu svo hræddir við atvinnumissi ? Vafalaust ætlar borgarstjóri að hafa þetta stolna fé upp í laun ríkislögreglunnar. En allir vita að stjórn Dagsbrúnar sefur, þegar verkamenn eiga í hlut. 1 því skjóli skákar borgarstjóri fyrst og fremst. Verkamenn við vatnsgeymirinn! Skákið á móti, með ykkar eigin samtökum. Kaupkúgunin í vegavinnunni Nauðsyn stéttarfélagsskapar sveitarverkamanna. Á hverju sumri vinnur fjöldi manna að nýjum vega_ síma- eða brúalagningum í hinum ýmsu héruðum landsins. Þessir menn eru ýmist félagsbundnir verka- menn úr kaupstöðum og kauptún- um eða ófélagsbundnir sveita- verkamenn, fátækir bændur og bændasynir, sem eru að leita sér atvinnu þann eina tíma úr árinu, er þeir geta verið að heiman. Þar sem sveitamennimir eru samtakalausir, er kaupkúgunin gífurleg. Algengt kaupgjald við þessa vinnu undanfarin ár hefir verið 50—65 aurar um kl.st. og er það alvarlegt umhugsunarefni, að ungir og hraustir menn skuli þurfa að selja vinnuafl sitt fyrir slíkt hungurkaup um hábjargræð- istímann. Venjulega er ekki nema um tvennt að velja fyrir hina ófé- lagsbundnu sveitaverkamenn: að vinna fyrir hið tilsetta kaup eða verða af vinnunni. Þetta gæti vitanlega ekki átt sér stað ef samtök væru fyrir hendi. Stofnun stéttarfélagsskap- ar vegavinnumanna hlýtur því að verða eitt aðalverkefni verklýðs- sinna. Kúgunin og ranglætið í opinveru vinnunni er orðið óþol- andi fyrir löngu. Enginn efi er á því, að megin- þorri þeirra manna, er hefir unn- ið að vega- eða brúalagningu fyrir þetta kaup, hefir gert það sámauðugur og þeir hafa fundið þörfina á samtökum, er ynnu að hækkun og samræmingu kaup- gjaldsins. Og hafi nú einhver orðið svo bíræfinn, að mögla eða láta í Ijósi hina minnstu óánægju, hefir svarið verið næsta undan- tekningarlaust: Þú mátt fara. Það fást nógir menn fyrir þetta kaup. Þetta geta verkstjórar ríkisins sagt við verkamennina svo lengi sem samtökin vantar til sóknar og vamar, en lengur ekki. Enginn þyrfti að óttast, að stofnun stéttarfélaga sveitaverka- manna ylli bændum neinna örð- ugleika, þótt auðvaldssinnar láti svo í veðri vaka. Meginþorri bænda á Islandi notar ekki að- keypt vinnuafl. Hin öra fjölgun einyrkja og smábænda, en fækk- un efnabænda í seinni tíð, hefir algjörlega kippt í burtu þeirri röksemd. Bændurnir vinna með skilduliði sínu að búunum og reyna að fá sér vegavinnu á vor- in ef þess er nokkur kostur. Þama eru því engar hagsmuna- andstæður, heldur þvert á móti. Smábóndinn og vegavinnumaður- inn er oft sama persónan. Efnalitlir bændur, sem vinna baki brotnu allt árið um kring, hefðu áreiðanlega ekkert á móti því að kaupgjald við opinbera vinnu yrði hærra en það hefir verið undanfarin ár. Sveitamenn! Takið höndum saman og stofnið baráttusamtök í hverri sveit á I slandi, til að hindra áframhaldandi kaupkúgun rikisvaldsins. G. B. V. 9. nóvember-málin fyrir Hæstarétti Leyndardómur „réttvisinnar“

x

Verklýðsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verklýðsblaðið
https://timarit.is/publication/345

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.