Verklýðsblaðið - 24.02.1936, Qupperneq 1
LYÐSBIAÐH)
ÚTGEFANDI: KOMMÚNISTAFLOKKUR ÍSLANDS DEILD ÚR ALÞJÖÐASAMBANDI KOMMÚNISTA
Reykjavík, mánud. 24. febr. 1936.
T
ÖREIGAR ALLRA LANDA SAMEINIST
VII. árg., 16. tbl.
Blekkingar íhaldsins, Jóns Bald.
Héðins og Co. bera árangur:
Fellt í Dag'sbrún að stytta vínnu-
dagfínn með 513 atkv. gegn 322
Dagsbrún ákveður jafnframt að veita verkamönnum í Hafn-
arfirði fullan stuðníng til að ná fram kröfum sinum.
Eftir 5 ára baráttu róttæka
armsins í Dagsbrún, var nú loks
ekki annað sjáanlegt en að Dags-
brún stæði svo að segja einhuga
um að láta nú til sltarar skríða um
að stytta vinnudaginn með ó-
skertu dagkaupi. — Á tveim
mjög fjölmennum fundum félags-
ins var samþykkt einróma að láta
þessa ákvörðun koma til fram-
kvæmda í vetur. — Var nú svo
komið, að hinir afturhaldssömu
foringjar þorðu ekki í móti að
mæla, svo ákveðinn var vilji
■'ærkamannanna. Enda erfitt um
vik, þar sem síðasta þing Alþýðu-
sambandsins hafði samþykkt að
beita til þess afli flokksins, að
sannfæra verkamenn um nauðsyn
8 stunda vinnudags.
Þegar hér var komið, tók aftur-
lialdið í Sjálfstæðisflokknum og
Alþýðuflokknum ráð sín saman.
Morgunblaðið lýsti því yfir, að
það væri hið mesta óráð, að stytta
vinnutímann á svona „erfiðum
tímum“, annars var það „hlut-
laust“(!). Hinir ráðandi hægri
foringjar Alþýðuflokksins, létu nú
kalla saman flokkslið sitt í Dags-
brún. — Jón Baldvinsson málar
fjandann á vegginn og segir að
nú verði að standa sig, setja allt
í gang til að fá styttingu vinnu-
dagsins fellda. Með því að láta
fara fram allsherjar atkvæða-
greiðslu, þótti vinnast nægilegt
ráðrúm til að hræða „karlana“.
öll flokksvél Alþýðuflokksins er
sett í gang og ekkert til sparað.
Nú var tónninn einhver annar en
þegar Alþýðublaðið var að
segja frá því, samkvæmt
skýrslum launamálanefndar, að
sumir þræluðu baki brotnu og
nefðu 54 kr. á mánuði, en aðrir
gerðu ekki nokkum skapaðan hlut
og hefðu 1000—8000 kr. á mán.
og þess vegna yrði alþýðan að
grípa til þeirra ráða, sem duga, þó
þau kæmu hart við suma. — Nú
voru verkamenn hræddir með
sömu grýlunum og Morgunblaðið
hefir notað frá því fyrsta við öll
tækifæri, að „atvinnutækin yrðu
stöðvuð“ o. s. frv. — Og Alþýðu-
blaðið og Dagsbrúnarstjómin
lýstu sig ,,hlutlausa“(!!). Rétt
eins og það sé hlutverk stjóma í
verkalýðsfélögum að vera „hlut-
laus“, þegar allt lið Ihaldsins er í
gangi til að ljúga og blekkja! —
Framh. á 4. síðu.
Danskír verkamenn svara
árás auðvaldsíns með verkföllum
En Stauning1 „siftur hjá'
EINKASKEYTI TIL
VERKLÝÐSBLAÐSINS.
Kaupm.höfn 22. febr.
Stauning forsætisráðherra hefir
lýst því yfir, að stjórnin muni
ekki skifta sér af eða gera sér-
stakar ráðstafanir út af verk-
banninu, sem byrjar í kvöld.
Á miðvikudaginn byrja fyrstu
verkföllin til að svara verkbann-
inu.
125000 verkamenn verða fyrir
verkbanninu nú strax í byrjun.
Flutningar verða ekki stöðvað-
ir með verkbanni atvinnurekenda,
en kyndarar hafa nú kallað sam-
bandsstjórn sína saman til að til-
kynna samúðarbaráttu.
NORDPRESS.
Hvernig hafa foringj-
arnir iramkvæmt það,
sem flokkur peirra fól
peim?
„Við alla iðju og iðnað, hverju
nafni sem nefnist, verði 8
stunda vinnudagur lögskipaður,
þó án skerðingar dagkaups“.
Samþ. á 12. þingi Alþ.-
samb. ísl. 23. nóv. 1934.
„12. þing Alþýðusambands ís-
lands leggur fyrir sambands-
stjóm að hlutast til um, að
hafinn verði, allsherjarróður í
sambandsfélögunum til þess, að
fræða almenning um nauðsyn-
ina á styttingu vinnudagsins,
án þess að kauplækkun fari
fram“.
Samþ. á þingfundi 24.
nóv. 1934.
„Hinsvegar telur sambandsþing-
ið það rangt, að hækka frá því
sem nú er, skatta á nauðsynja-
vörum, eins og benzíni, og telur
því rétt, að frumvarp það um
hækkun á benzínskatti, sem ligg
ur fyrir Alþingi, verði fellt“.
Stauning.
Atvmnubótavínua.n
Á fundi í verkamannafélaginu
Dagsbrún í gær var rætt um at-
vinnuleysið og skýrði stjómin frá
því, að bæjarráð hefði ákveðið að
fresta fækkun í atvinnubótavinn-
unni um hálfan mánuð. En eins
og menn muna, var krafa Dags-
brúnar að fjölgað yrði í -vinnunni
upp í 350 manns, en síðasti bæj-
arstjórnarfundur vísaði því til
bæjarráðs. Hér er um talsverðan
árangur fyrir atvinnuleysingjana
að ræða, en nú er um að gera að
skipuleggja áframhaldandi bar-
áttu til fullnaðarsigurs fyrir
kröfum Dagsbrúnar.
Nýjasta utanríkismálahneykslið:
Vöruskifti vid Italíu
Aljjjódlcg-ta áliftí og hagsmunum íslands fteflft í voda
Islenzk yfirvöld hafa gert samn-
ing þess efnis við Italíu að selja
þangað saltfisk og sé andvirði
fisksins lagt inn á ítalska banka
og síðan notað til að greiða með
ítalskar vörur, er teknar séu í
stað fiskjarins.
Með þessum samníngum skerst
ísland opinberlega úr leik, þegar
um það er að ræða að hjálpa fá-
tækri, varnarlítilli þjóð, sem ít-
alski fasisminn ræðst á með ó-
friði. Þegar flestar þjóðir heims-
ins eru knúðar til að taka af-
stöðu gegn þessum svívirðilegu á-
rásum Italíu á frelsi smáþjóðar,
— þá skerst minnsta þjóð Ev-
rópu, sem mest þarf á alþjóð-
legri hjálp og samúð að halda,
úr leik og gerir samning við blóði
drifinn ræningjann um að lána
honum vörur.
Þessi ítalski samningur er svo
ábyrgðarlaus og samvizkulaus
gagnvart framtíðarhagsmunum
og alþjóðlegu áliti íslands, að ís-
lenzki verkalýðurinn og Kom-
múnistaflokk'ur hans verður al-
þjóðlega að lýsa yfir fyllstu and-
úð sinni gegn þessu athæfi.
Það eina, sem hugsanlegt væri
sem afsökun íslenzkra valdhafa,
er þeir ættu að fara að verja
þessa ráðstöfun á alþjóða vett-
vangi, væri sú, — að íslendingar
væru slikir aumingjar og ræflar
efnahagslega, að þeir væru ekki
færir um að taka tillit til neins
annars en lélegustu augnabliks-