Verklýðsblaðið - 06.04.1936, Page 3
V ERKLÝÐSBLAÐIÐ
Félag járnidnadarmanna og samfylkingin
Kpisfins A Eiríkssonap. — Skýpsla fpá sf|ópn félagsins
VEWCLÝOíBLAWfi
Ó4*«fandi:
KOMMÚNISTAFL. ÍSLANDS.
Ritatjóri:
EINAR OLGEISSSON.
Afgr.: Vatnastíg 8 (þriÐJu haO).
Sími: 218*. — Pósthólf 57.
PrantamlBjan Acta h-í.
KOMMtíNISTAFLOKKUR
ÍSLANDS
(Delld Ór Alþjóða-
wmtandl hcwnmBntota).
Formaöur:
BRYNJÖLFUR BJAHNASON.
Skrifstofa: Vatnssíig 8 (8. hmS).
ViBUlstlmi:
Daclega kl. 0—7, Tirha d*ga.
Víll AlþýðaftkiriiriaR
bepjasf með gegn Lands-
bankaklíkunni og Kveldúlfi
Kommúnistaflokkurinn hefir
lcngi verið einn um að benda á
hættuna af yfirdrotnun Lands-
bankaklíkunnar og Kveldúlfs.
* Þegar Kommúnistaflokkurinn
afhjúpaði alræði Landsbankaklík-
unnar í „Verklýðsblaðinu“ 5. júní
1935 og sýndi fram á hvernig
Magnús Sigui-ðsson hefði látið
Harald Guðmundsson breyta lög-
um um fisksöluna, sem samþykkt
voru á Alþingi, þannig að þau
tryggðu einræði Kveldúlfs, — þá
varði Alþýðublaðið þetta, sagði
að nú væri lýðræði komið á í
fiskmálunum, Haraldur Guð-
mundsson flutti síðan langa út-
varpsræðu um þetta og Alþýðu-
blaðið prentaði hana. Allt vörn
fyrir hið „ágæta“ nýja „lýðræði“
1 Sölusambandi, ísl. fiskframleið-
enda.
En í gær viðurkennir Alþýðu-
blaðið að við höfum sagt satt. —
Það spyr í þrídálka grein á for-
síðu: „Hverjir stjórna Sölusam-
bandinu?" — og svarar að það
sé Kveldúlfur og klíka hans, „ör-
fáir menn, sem hafa getað náð
sér í aðstöðu til lána úr bönltun-
um, eða borað sér inn, sem starfs-
menn hjá Sölusambandinu“.
Oss þykir vænt um viðurkenn-
ingu Alþýðublaðsins. Og við skor-
um nú á það að taka undii' með
ckkur um afhjúpunina og barátt-
una gegn Landsbankaklíkunni,
sem það viðurkennir að þarna
ráði á bak við.
Fpamkoma og málaflufningup
Vegna greinar í Alþýðublaðinu
í gær vill stjórn Félags járniðn-
aðarmanna gefa eftirfarandi
skýringu:
Þegar félaginu barst í hendur
bréf frá 1. maí nefnd Fulltrúa-
ráðs verklýðsfélaganna, með ósk
um það að félagið kysi 3ja manna
nefnd til þess að starfa með 1.
maí-nefndum Fulltrúaráðsins og
verklýðsfélaganna, útnefndi
stjórnin nefnd þessa til bráða-
birgða, þar eð ekki var hægt að
halda fund í félaginu fyrir þann
tíma er nefndirnar skyldu koma
saman.
Stjórnin var einhuga um það,
að tilnefna þá menn í þessa nefnd,
sem hún vissi að rnyndu berjast
fyrir sameiginlegri kröfugöngu Al-
þýðuflokksins, Kommúnistaflokks-
ins og verklýðsfélaganna 1. maí,
og voru þessir tilnefndir: Kristinn
Á. Eiríksson, Ingólfur Einarsson,
Iiinar Magnússon og til vara Fil-
ipus Ámundason. Á sameiginleg-
Sífellt vaxa rökþrot klofnings-
klíkunnar í Alþýðuflokknum. Síð-
asta ,,vörnin“ fyrir hennar lélega
málstað er nú sú, að Jafnaðar-
mannafélagið sé svo hógvært .og
lítillátt, að það setji engin skil-
yrði, — eins og ótætis kommún-
istamir, sem vilji fá að tala með,
ef samfylking sé 1. maí.
Jafnaðarmannafélagið er hinn
pólitíski félagsskapur sósíaldemó-
krata í Reykjavík. Verklýðsfélög-
in eru hinsvegar skipuð verkalýð
af ýmsum flokkum, en þó eru
áhrif ..sósíaldemókrata og komm-
únista mest í þeim. Og nú eru í
meirihluta þar kommúnistar og
þeir sósíaldemókratar, sem vilja
samfylkingu 1. maí.
Hvaða skilyrði setur nú hinn
pólitíski félagsskapur sósíaldemó-
krata verklýðsijélögunum ?
Hann setur þau skilyrði, að
engir aðrir hafa full réttindi í
verklýðsfélögunum, en yfirlýstir
SÓSÍaldemókratar, _ að engir aðr-
ir geti verið í fulltrúaráði verk-
lýðsfélaganna, en sannfærðir Al-
þýðuflokksmenn. Jafnaðarmanna-
félagið setur hvorki meiri né
um fundi l.-maí nefndanna brást
Kristinn þessu trausti stjórnarinn-
ar, þrátt fyrir það að hann hafði
áður gefið bæði munnlega og skrif-
lega yfirlýsingu um það að hann
væri fylgjandi sameiginlegri kröf-
ugöngu beggja áðurnefndra flokka
og verklýðsfélaganna.
Ki’istinn segir m. a.: „Áður en
á fundinn kom vissi enginn að
neinar úrslitaákvarðanir yrðu tekn
ar þar um afstöðu járniðnaðar-
rnannafélagsins 1. maí ....“ —
Þetta segir Krístinn þrátt fyrir
það að fyrsti liðurinn sem aug-
lýstur var á dagskrá fundarins
var 1. maí, og’ vita því allir fé-
lagsmenn að Kristinn fer hér með
vísvitandi ósannindi.
Þegar á fundinn kom lagði
stjómin undir úrskurð hans gjörð-
ir sínar í þessu máli, enda kom
álit félagsins í ljós í eftirfarandi
tillögu, sem ' samþykkt var með
ölium greiddum atkvæðum. „Fé-
lag járniðnaðarmanna skorar á Al-
minni skilyrði en það, að fulltrúar
verklýðsfélaganná beygi sig undir
þess stefnu, undirskrifi stefnu-
skrá þess, — og ef þeir vilja berj-
ast fyrir samfylkingu og vera
samt áfram Alþýðuflokksmenn, er
þeim hótað brottrekstri.
Jafnaðarmannafélagið gerir þar
með þær kröfur, — (eða réttara
sagt Alþýðubl. fyrir þess hönd,
því meðlimir félagsins munu vart
samþykkir yfirgangi þessum) —
að ræðumennírnir 1. maí hlýti
þess pólitísku stefnu, að kröfu-
gangan sé eingöngu undir þess
merkjum og um fram allt að
Kommúnistaflokkurinn sé útilok-
aður fi’á að taka þátt í henni.
Og „Jafnaðarmannafélagið“ —
eða réttara sagt lítil klíka ofstæk-
ismanna bak við það — vill ekki
einu sinni taka tillit til þess, sem
verklýðsfélögin ákveða, né til
meirihlutans af 1. maí nefndum
verklýðsfélaganna, — heldur fyr-
irskipar með strangasta flokks-
aga meðlimum sínum að brjóta í
bág við vilja félaganna og knýr
vilja sinn fram með ofbeldi.
Það er því ekkert eins fjarri
sanni, eins og að hinn pólitíski
lélagsskapur sósíaldemókrata setji
engin skilyrði. Hann gerir einmitt
kröfu til að drottna yfir kröfu-
göngunni, til að ráða verklýðsfé-
lögunum, til að beygja þau nauð-
ug undir forustu sína. Og það vilja
verklýðsfélögin ekki.
Ofstækisklíkan í Alþýðuflokkn-
um heimtar vald, yfirdrottnun og
einræði sitt, takmarkalausa flokks-
hlýðni við sig.
En Kommúnistaflokkurinn vill
samfylkingu verklýðsfélaganna,
Alþýðuflokksins og Kommúnista-
flokksins á grundvelli jafnréttis
og lýðræðis, í baráttu gegn íhaldi
og fasisma. Það er munurinn.
þýðuflokkinn, Kommúnistaflokk-
inn og öll verklýðsfélög að hafa
sameiginlega kröfugöngu 1. maí
og felur fulltrúum sínum í full-
trúaráði verklýðsfélaganna og 1.
rnaí nefnd að berjast fyrir því.“
Eftir að þessi tillaga hafði ver-
ið samþykkt voru fulltrúamir 1 1.
maí nefnd spurðir að því hvort
þeir mundu starfa í anda þessarar
tillögu innan nefndanna og svör-
uðu tveir þeirra játandi en sá
þriðji (K. Á. E.) skírskotaði til
afstöðu sinnar á sameiginlegum
íundi 1. maí nefndanna. Þar með
var sýnilegt að hann ætlaði sér
ekki að framkvæma vilja félags-
iris og var honurn af þeim ástæð-
uni vikið úr nefndinni og samþ.
að vararn., Filippus Ámunda-
son tæki sæti hans, og fer Krist-
inn enn með ósannindi þar sem
hann segir, að Filippus hafi neitað
því. Vegna þess að Kristinn bland-
ar saman í eina, tveim tillögum,
sem samþykktar voru hvor í sínu
lagi, og þar að auki rangfærir til-
lögurnar, þykir rétt að birta
einnig síðari tilöguna orðrétta:
„Takist ekki sameiginleg kröfu-
ganga ákveður félagið að taka
þátt í samfylkingarkröfugöngu
þeirri, sem Kommúnistaflokkur-
inn þá mun boða til 1. maí, ásamt
þeim verklýðsfélögum, sem þar
skipa sér.“
Eins og tillaga þessi ber með sér
er það álit félagsins, að ef ekki
næst sameiginleg kröfuganga þá
er það á ábyrgð Alþýðuflokksins.
Ofanrituð tillaga var samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum
gegn einu (K.Á.E.).
Ki’istinn segir að 23 félagar hafi
mætt á fundinum, en samkvæmt
viðveruskrá fjármálaritara voru
30 mættir og má það telja sæmi-
lega fundarsókn þegar þess er
gætt að marg’ir félagar eru þegar
farnir úr bænum í atvinnu og vit-
anlegt er að trúmálaumræður í
útvarpinu urðu þess valdandi að
nokkrir félagar sátu heima.
Ýmislegt fleira segir Kristinn
um félagið og einstaka menn inn-
an þess, sem við sjáum ekki á-
stæðu til að svara, vegna þess að
við lítum svo á að gera eigi út
um persónuleg deiluatriði á félags-
fundum, en ekki á opinberum vett-
vangi og einnig vegna þess að of- 1
anrituð grein skýrir í aðalatriðum
allt það sem máli skiftir.
Og leggjum við hér með undir
dóm almennings framkomu og
málflutning Kristinns Á. Eiríks-
sonar.
Reykjavík 6. apríl 1936
Loftur Þorsteinsson
formaður
Ingólfur Einarsson
ritari
Filippus Ámundason
varafomiaður
Marel Halldórsson
vararitari
Dagur Hannesson
fjármálaritari
KaupSéiag Reykjavikur
AÐALFUNDUR
Kaupfélags Reykjavíkur verður haldinn mánudaginn 6. apríl n.k.
kl. 8,30 í Kaupþingssalnum í Eimskipafélagshúsinu.
Fundarefní:
L Stjórn félagsins skýrir frá starfsemi þess á síðastliðnu ári,
leggur fram efnahagsreikning pr. 31. des. 1935 og reksturs-
reikning fyrir árið 1935.
2. Kosnir 1 aðalmaður og 1 varamaður í stjórn félagsins í stað
þeirra, sem úr ganga samkv. 19. gr. félagslaganna.
3. Kosning eins endurskoðanda og eins til vara samkv. 24. gr.
félagslaga.
4. Önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Stjórnín.
„Jafnaðarmaimafélagið
aetar engin skilyrði“?!