Fréttablaðið - 16.09.2009, Side 16
16. SEPTEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● heilsa
Námskeið fyrir bráðger og námfús börn á aldrin-
um ellefu til sextán ára verður haldið í Háskólan-
um í Reykjavík í haust á vegum Ad Astra. Nítján
greinar verða í boði og sem dæmi má nefna mat-
væla- og næringarfræði, kvikmyndagerð, java-
forritun, spænsku, tölvuleikjagerð, rafmagns-
verkfræði, lögfræði, latínu og margt fleira.
Kynning á námskeiðunum verður næsta laugar-
dag, 19. september milli klukkan eitt og þrjú í Há-
skólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, en námskeiðin
sjálf hefjast 3. október og verða á laugardögum til
7. nóvember. Hver og einn nemandi getur valið sér
eitt til tvö námskeið.
Þetta er þriðja haustið sem Ad Astra býður upp
á krefjandi námskeið fyrir krakka sem vilja þróa
hæfileika sína og færni á ýmsum sviðum. Nám-
skeiðin eru haldin í samstarfi við Opna háskólann
í Reykjavík í HR. og skráning fer fram gegnum
www.adastra.is. - gun
Einkenni fæðuofnæmis og
fæðuóþols geta verið keimlík
en orsakirnar eru ekki þær
sömu, segir Guðrún Linda
Guðmundsdóttir, næringar-
fræðingur hjá Næringarsetr-
inu.
„Í almennri umræðu ruglar fólk
þessum hugtökum oft saman en
staðreyndin er sú að fæðuofnæmi
tengist ónæmiskerfinu sem fæðu-
óþol gerir ekki. Einkennin eru oft
svipuð en eru yfirleitt vægari hjá
þeim sem glíma við fæðuóþol.“
Að sögn Lindu eru það oftast al-
gengar fæðutegundir eins og mjólk,
egg, hnetur, fiskur, skel-
fiskur, hveiti og soja-
baunir sem valda fæðu-
ofnæmi, en dæmi um
fæðuóþol er til dæmis
mjólkursykuróþol.
Húðpróf og blóðpróf
eru yfirleitt notuð til
þess að greina hvort um
fæðuofnæmi sé að ræða og gefa þau
oft góða vísbendingu um það. „Ef
þau próf eru jákvæð er í kjölfarið
yfirleitt gerð áreitipróf því til stað-
festingar,“ segir Linda.
„Til að kanna hvort vísbending-
in um fæðuóþol standist er sú fæðu-
tegund, sem talin er valda óþolinu,
útilokuð úr fæðunni. Eftir ákveðinn
tíma er henni síðan bætt aftur við til
að sjá hvort einkennin koma fram að
nýju,“ segir hún.
Hefur fæðuóþol og -ofnæmi verið
að aukast eða höfum við aðeins meiri
vitneskju um það? „Okkur vantar í
raun rannsóknir til að svara þeirri
spurningu. Það er þó álit margra að
fjöldi þeirra sem greinast með fæðu-
ofnæmi sé að aukast og að
bæði aldur og menningar-
svæði hafi eitthvað með
það að gera. Til dæmis er
ofnæmi fyrir fiski algeng-
ara í löndum eins og Noregi,
Japan og Portúgal þar sem
neysla á þessari
fæðutegund
er meiri.
Varð-
andi
t íðnina þá
telja miklu fleiri sig
vera með fæðuofnæmi en eru síðan
greindir. Staðfest ofnæmistilfelli
eru yfirleitt hjá 1-5 prósentum íbúa
hverrar þjóðar.“
Á fólk sem glímir við fæðuóþol og
-ofnæmi auðveldara með að fá vörur
sem hentar því en fyrir til dæmis
áratug? „Já, alveg tvímælalaust.
Matvælaframleiðendur hafa bætt
mjög framboð á vörum fyrir fólk
með fæðuofnæmi. Reglur um merk-
ingar á matvælum eru líka orðnar
strangari sem gerir það að verkum
að auðveldara er fyrir fólk að finna
fæði við sitt hæfi. Mörgum finnst
þetta í upphafi vera algjör frum-
skógur þar sem sömu efni geta haft
mörg nöfn, en eftir fyrstu skrefin þá
verður eftirleikurinn auðveldari.“
Linda segir marga leita til nær-
ingarfræðings til þess að fá ráð-
gjöf, án tillits til hvort sem þeir eru
með fæðuofnæmi eða ekki. „Sumir
vilja eða þurfa að breyta um lífsstíl
samkvæmt læknisráði og svo eru
bara margir sem eru orðnir með-
vitaðri um heilsuna en þar skiptir
mataræðið miklu máli,“ segir hún
og bendir á að á vefsíðunni www.
naeringasetrid.is sé að finna bæði
fróðleik og tengla sem tengist þessu
efni. - uhj
Fæðuofnæmi og
-óþol er tvennt ólíkt
Guðrún Linda segir að matvælaframleiðendur hafi aukið verulega framboð á vörum sem henti sérstaklega þeim sem eru með
fæðuofnæmi eða fæðuóþol. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sum grunnskólabörn vilja gjarnan bæta við sig verkefnum.
Fyrir námfús börn
Algengar fæðuteg-
undir eins og fiskur,
mjólk og egg geta
valdið fæðuofnæmi.
● GÓÐ RÁÐ VIÐ VÖÐVABÓLGU Vöðvabólga einkennist af
verkjum í einum eða fleiri vöðum og getur einnig tekið til sina og fest-
inga sem tengja vöðva, bein og önnur líffæri saman. Oftast fær fólk
bólgu í herðar og háls en hún getur þó einnig komið fram í öðrum
vöðvum.
Algengustu ástæður verkja eða bólgu í vöðvum eru álag og streita,
og slys og áverkar eins og tognun. Ofálag verður þegar vöðvi er notaður
mikið, lengi og of oft.
■ Hvíld og bólgueyðandi lyf eru góð við vöðvabólgu
sem hlýst af ofálagi eða áverkum. Einnig getur
verið gott að setja ísbakstur við vöðva fyrsta
sólarhringinn eða tvo eftir áverka. En eftir
það getur hiti reynst vel til að draga úr
verkjum.
■ Nudd og slökun eru góð við verkjum
vegna spennu og ofálags. Einnig er
gott að gera teygjur eftir hvíld. Hreyfing
og góðar æfingar geta einnig aukið vöðva-
styrk sem minnkar hættu á bólgum.
■ Annar mikilvægur þáttur er að sofa vel og draga
úr því sem veldur streitu. Þá gæti verið gott að
stunda jóga eða íhugun.
■ Breyttar vinnustellingar geta einnig orðið til
þess að létta fólki lífið og fá margir vöðvabólgu
út frá slæmum vinnuvenjum.
Skráning og uppl. í síma 5551727 og á skraning@heilunarskolinn.is
www.heilunarskolinn.is
Geymið auglýsinguna
Heilunarskólinn
Næstu námskeið:
Hugleiðslunámskeið
22. og 23. sept. nk. Nýr þróunarhringur stofnaður 28. sept.
Reiki I 12. og 13. október
Kyrrðardagar 22. til 26. Október
Gunnnámskeið í miðlun 11. - 13. nóvember
Heilun í handverki 25., 26., og 29. nóvember
Kyrrðarbæn á fi mmtudögum kl. 5.30 í Brautarholti 4a,
2.h., kynningarfundur 5.nóv. frá 7.30 – 9.0
Heilunarstund kl. 8, annan hvern sunnudag í
Brautarholti 4a, 2h. fyrst 1. nóvember nk.
karto.is
A
R
G
U
S
/
0
8
-0
4
4
8