Fréttablaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 16. september 2009 17
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Í kvöld hefst riðlakeppn-
in í riðlum E til H í Meistara-
deild Evrópu. Þar ber hæst
leik Inter og sigurvegara síð-
ustu keppni, Barcelona. Þá
verða ensku félögin Liver-
pool og Arsenal einnig í
eldlínunni.
Barcelona og Inter
skiptu á framherj-
unum Zlatan Ibra-
himovic og Samu-
el Eto‘o í sumar
og búast má við að
flestra augu verði á
frammistöðu þeirra í
leiknum.
Zlatan er ekki þekktur fyrir
að liggja á skoðunum sínum og
hann hefur heldur betur látið
gamminn geisa í fjölmiðlum
síðustu daga.
„Ég veit ekkert hvernig
móttökur ég fæ en ég
geri ráð fyrir að allir
alvöru stuðnings-
menn félagsins
geri sér grein
fyrir fram-
lagi mínu til
félagsins.
Ég var þarna í
þrjú tímabil og
við unnum þrjá
titla,“ segir
Zlatan.
Varnar-
maðurinn og
harðjaxlinn
Marco Materazzi var einn af þeim
leikmönnum Inter sem tjáðu sig
um ummæli Zlatans.
„Ibra, takk kærlega fyrir titl-
ana þrjá. Við sjáumst bara á vell-
inum,“ er haft eftir Materazzi.
- óþ
Barcelona hefur titilvörn sína í Meistaradeildinni gegn Inter í kvöld:
Zlatan snýr aftur á San Siro
ZLATAN Fellur vel inn í
lið Barca þrátt fyrir að
vera höfðinu hærri en
margir. NORDIC PHOTOS/AFP
LEIKIR KVÖLDSINS
E-riðill:
Liverpool-Debrecen
Lyon-Fiorentina
F-riðill:
Inter-Barcelona
Dynamo Kiev-Rubin Kazan
G-riðill:
Sevilla-Unirea Urziceni
Stuttgart-Rangers
H-riðill:
Olympiakos-AZ Alkmaar
Standard Liege-Arsenal
> Nær KR að viðhalda pressunni á FH?
KR dugir ekkert annað en sigur gegn Breiðabliki á
Kópavogsvelli í kvöld til þess að halda pressunni á FH í
toppbaráttu Pepsi-deildar karla. Allt annað en sigur KR
í kvöld þýðir að FH verður Íslandsmeistari í
fimmta sinn á sex árum. Fyrir leikinn í kvöld
hafa Hafnfirðingar átta stiga forskot á Vestur-
bæinga þegar FH á tvo leiki eftir en KR
þrjá leiki. Þá mætast Keflavík og Grindavík
í Suðurnesjaslag á Sparisjóðs-
vellinum í Keflavík en báðir leikir
kvöldsins hefjast kl. 17.30.
Meistaradeild Evrópu
A-riðill:
Juventus-Bordeaux 1-1
1-0 Vincenzo Laquinta (63.), 1-1 Jaroslav Plasil
(75.).
Maccabi Haifa-Bayern München 0-3
0-1 Daniel van Buyten (65.), 0-2 Thomas Muller
(85.), 0-3 Thomas Muller (88.).
B-riðill:
Wolfsburg-CSKA Moskva 3-1
1-0 Grafite (35.), 2-0 Grafite (41.), 2-1 Alan
Dzagoev (77.), 3-1 Grafite (87.).
Besiktas-Manchester United 0-1
0-1 Paul Scholes (77.).
C-riðill:
FC Zürich-Real Madrid 2-5
0-1 Cristiano Ronaldo (27.), 0-2 Raul (34.), 0-3
Gonzalo Higuain (45.), 1-3 Margairaz (64.), 2-3
Aegerter (65.), 2-4 Ronaldo (89.), 2-5 Guti (90.).
Marseille-AC Milan 1-2
0-1 Filippo Inzaghi (28.), 1-1 Gabriel Heinze (50.),
1-2 Filippo Inzaghi (76.).
D-riðill:
Chelsea-Porto 1-0
1-0 Nicolas Anelka (48.).
Atletico Madrid-APOEL FC 0-0
Pepsi-deild karla
Fram-Fjölnir 3-1
1-0 Paul McShane (19.), 2-0 Joseph Tillen (30.),
2-1 Gunnar Guðm. (61.), 3-1 Jón Fjóluson (85.).
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Fyrstu leikir riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu fóru
fram í gærkvöldi en þar bar hæst
að stjörnumprýtt lið Real Madr-
id stimplaði sig inn með 2-5 sigri
gegn FC Zürich þar sem Cristiano
Ronaldo skoraði tvennu fyrir
Madrídinga. Þá unnu ensku félög-
in Manchester United og Chelsea
einnig góða sigra.
Það gerðist ekki mikið framan
af í leikjunum átta í gærkvöldi en
fyrsta mark riðlakeppninnar skor-
aði Portúgalinn Cristiano Ron-
aldo beint úr aukaspyrnu fyrir
Real Madrid gegn FC Zürich á 27.
mínútu leiksins. Raul og Gonzalo
Higuain bættu við tveimur mörk-
um til viðbótar í fyrri hálfleik
og allt benti til markaveislu hjá
Madrídingum. Svisslendingarnir
svöruðu hins vegar með tveimur
mörkum um miðbik síðari hálf-
leiks og minnkuðu muninn í 2-3.
Ronaldo gerði hins vegar út um
leikinn með öðru marki sínu beint
úr aukaspyrnu á 89. mínútu og
Guti innsiglaði svo 2-5 sigur með
marki í uppbótartíma.
Paul Scholes skoraði eina mark-
ið fyrir Manchester United í frem-
ur bragðdaufum sigurleik gegn
Besiktas í Tyrklandi en engu að
síður komu góð þrjú stig í hús hjá
Sir Alex Ferguson og lærisveinum
hans á erfiðum útivelli.
„Það er alltaf gaman að skora
og allir sigrar á útivelli í Meistara-
deildinni eru mikilvægir, sérstak-
lega á jafn sterkum útivelli og í
Tyrklandi. Þetta var ekki okkar
besti leikur en sigur er alltaf
sigur,“ sagði Scholes í leikslok.
Chelsea lét sér að sama skapi
nægja eitt mark til þess að hirða
stigin þrjú gegn Porto á Brúnni en
það var Nicolas Anelka sem skor-
aði sigurmarkið.
„Nicolas er frábær leikmaður
og hann spjarar sig vel hvort sem
hann er með Didier Drogba eða
ekki,“ segir Carlo Ancelotti, knatt-
spyrnustjóri Chelsea.
Þá skoraði gamli refurinn Fil-
ippo Inzaghi bæði mörk AC Milan í
1-2 sigri gegn Marseille en Gabriel
Heinze skoraði mark Frakkanna.
omar@frettabladid.is
Ronaldo með tvö
Cristiano Ronaldo var í stuði í stórsigri Real Madrid
í gær en Man. United og Chelsea unnu sína leiki.
FYRSTA MARKIÐ Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid fagnar hér fyrsta markinu sem
skorað var í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þessu tímabili en markið skoraði
Ronaldo beint úr aukaspyrnu á 27. mínútu sigurleiks gegn FC Zürich. NORDIC PHOTOS/AFP
Fjölnir féll í gærkvöld úr Pepsi-deild karla eftir, 3-1, ósigur gegn Fram á
Laugardalsvelli þrátt fyrir hetjulega baráttu í seinni hálfleik.
Fram var mikið betri aðilinn í fyrri hálfeik og skoraði
tvö mörk gegn engu í hálfleiknum. Munurinn var
síst of stór í hálfleik og virtust Fjölnismenn hrein-
lega búnir að gefast upp áður en í leikinn kom
en liðið þurfti að vinna þrjá síðustu leiki sína í
deildinni til að eygja von um sæti í henni að ári.
„Við vorum slakir í fyrri hálfleik og virkuðum
yfir spenntir. Þó að menn hafi ætlað sér sigur þá
tókst það ekki. Við komum okkur í vonda stöðu
og þó að menn hafi sýnt smá líf í síðari hálfleik
þá vantaði eins og oft áður herslumuninn á
að komast almennilega inn í leikinn,“ sagði
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir
leikinn.
Fjölnismenn voru mun sterkari í síð-
ari hálfleik og náðu að minnka muninn
úr vítaspyrnu en nær komst liðið ekki og
Fram gerði út um leikinn með glæsilegu marki Jóns Guðna Fjólusonar
beint úr aukaspyrnu fimm mínútum fyrir leikslok.
„Þetta eru mikil vonbrigði og svekkelsi. Við vissum að við værum
í vondri stöðu fyrir leikinn en þetta var síðasta hálmstráið. Við sáum
möguleika og vissum að hann væri fyrir hendi. Við trúðum á hann og
menn ætluðu sér að gera eitthvað í leiknum,“ sagði Ásmundur.
„Þetta er búið að blasa við í svolítinn tíma. Það var annars staðar
sem við töpuðum mótinu. Við eigum heimaleiki gegn liðum í kringum
okkur sem fóru illa. Heimaleikur gegn ÍBV, heimaleikur gegn Þrótti. Það
eru leikir sem við horfum í og erum svekktir með niðurstöðuna úr.“
„Ég er með samning út næsta tímabil þótt það séu hefð-
bundin uppsagnarákvæði af beggja hálfu. Við
förum yfir hlutina að móti loknu og skoðum
hlutina í rólegheitum, hvað borgar sig að gera.
Ég sé ekkert á móti því að halda áfram. Það er
spennandi framtíð í Grafarvogi og mikill efniviður
að koma upp. Það er margt vitlausara en að halda
áfram og reyna að koma liðinu upp,“ sagði Ásmundur
að lokum. - gmi
PEPSI-DEILD KARLA: FJÖLNIR FALLINN NIÐUR Í FYRSTU DEILD EFTIR 3-1 TAP GEGN STERKU LIÐI FRAM Í GÆRKVÖLDI
Hetjuleg barátta dugði skammt gegn Frömurum