Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 18

Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 18
 16. SEPTEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa Nýtt tölvusneiðmyndatæki hefur verið tekið í notkun á Landspítala. Tækið þjónar starfseminni í Foss- vogi. Þær myndgreiningarrannsóknir sem gera mestar kröfur til tækisins eru rannsóknir á hjarta og æðakerfi en Landspítalinn hefur ekki haft yfir að ráða tæki til þess þar til nú. Tækið er af gerðinni Brilliance 64 frá Philips Medical Systems, búið stafrænum skynjara og tölvu- búnaði sem getur skilað 64 tölvu- sneiðmyndum samtímis af sjúkl- ingnum. Með því má meta bráða brjóst- verki þar sem unnt er að útiloka kransæðasjúkdóm og fækka inn- lögnum. Samtímis má greina segarek til lungna sem er bráða- dánarorsök. Bætt og hraðari myndgerð er einnig mikilvæg við rannsóknir fjöláverkasjúklinga og greiningu á heilablóðfalli og kransæðasjúkdómi. Þess má geta að tækni í nýjustu gerðum TS- tækja, meðal annars í þessu tæki, hefur leitt til geislasparnaðar við tölvusneiðmyndarannsóknir. Hraðari og betri sjúkdómsgreining Íslenskum kylfingum gefst færi á að leika ótakmarkað golf í ferðum sem GB Ferðir bjóða upp á í haust. MYND/ÚR EINKASAFNI GB Ferðir bjóða upp á ótakmarkað golf á Foxhills Club & Resort í Surrey það sem eftir lifir árs. Foxhills hefur átt vinsældum að fagna meðal íslenskra kylf- inga síðustu ár. Aðstaðan, sem er í tuttugu mínútna akstursfjarlægð frá Heathrow, er búin hóteli, tveim- ur átján holu völlum og einum níu holu velli. Báðir átján holu vellirnir eru skógarvellir sem þykja gefa Went- worth og Sunningdale lítið eftir. Þeir eru að mörgu leyti ólíkir hvað hönnun varðar sem gefur kylfing- um þann möguleika að leika á mjög frábrugðnum völlum innan sama svæðis. Þess má geta að nýrri álmu með þrjátíu herbergjum var bætt við hótelið og hún tekin í notkun í mars árið 2006. Stendur hún viðskipta- vinum GB Ferða til boða. Nánari upplýsingar eru á heima- síðu GB Ferða, www.gbferdir.is. Ótakmarkað golf á Foxhills ● NÝR KÖRFUBOLTAVEFUR Nýr íslenskur vefur helgaður körfubolta hefur verið settur á laggirnar. Þar verð- ur fjallað um NBA-deildina ásamt því að fjalla um íslensku deildina í samstarfi við KKÍ. Síðar er stefnt að því að gera yngri flokkum Íslands í körfu- bolta góð skil. Sem stendur er hægt að skrá sig inn á vefinn, setja inn myndbönd, spjalla, blogga og lesa nýjustu fréttir af NBA-deildinni og þeirri íslensku, svo dæmi séu tekin. Nýja vefsíðan er á slóðinni www. korfubolti.is. ● MÆLT HVERJIR GANGA LENGST Sjúkraþjálfarar fylgdust með hreyfingu nokkurra starfsstétta Landspítalans á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar 8. september síðastliðinn. Frá þessu er sagt á vef Landspítala, www.lsh.is. Settur var skrefmælir á deildarlækni, sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðing, sjúkraliða og starfsmann í flutningum. Allir báru þeir mælinn á dagvinnutíma. Ef miðað er við að hvert skref sé sjötíu sentimetrar að meðaltali voru niðurstöðurnar þær að starfsmaður í flutningum var ótvíræður sigurvegari enda gekk hann rúma tólf kílómetra yfir daginn. Deildarlæknir gekk um 10,5 kílómetra, sjúkraþjálfar- inn 5,2 kílómetra og hjúkrunarfræðingurinn og sjúkraliðinn gengu jafn langt, um 4,3 kílómetra. Þess skal getið að þessi tilraun var ekki vísindaleg heldur aðeins til gamans gerð. Nýja tækið verður í Fossvogi. MEISTARADEILDIN ÞAÐ ER ÓDÝRA RA AÐ HOR FA Á SPOR TIÐ HEIMA Í KVÖLD Í KVÖLD 18:30 INTER MILAN – BARCELONA 18:30 LIVERPOOL – DEBRECEN 18:40 STANDARD LIEGE – ARSENAL 20:40 MEISTARAMÖRKIN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.