Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2009, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 16.09.2009, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Eyjabúum sem búa við sóllitla daga rigninganna lungann úr árinu er vorkunn, ef þeir lifa mest innandyra, þótt þeir hangi útivið þegar sólarglenna sést. Það er alltaf gott að orna sér í hitan- um af blessaðri sólinni í skjóli, jafnvel fletta sig klæðum og leyfa skininu að hita brjóst, maga og bak. Hitt er alltaf furðulegra þegar það er gert að keppikefli að ná sem mestri brúnku á sig með látlitlum legum vakandi í sterkri sól, eins og segir í söngnum: Mad dogs and Englishmen sit out in the blistering sun. Þá draga suð- lægar þjóðir sig í skuggann. NÚTÍMINN hefur séð við þessu eins og mörgu öðru: hún er bæsuð þessi, segja stelpurnar þegar stallsystir þeirra kemur arkandi brún eins og nýáborinn sólpallur. Eða þegar vinkona hefur um ára- langa tíð skrökvað því ýmisttil að hún sé nýkomin frá sólarlöndum sem allir vita að er ekki satt, eða hafi verið á skíðum (og þá rennt sér niður brekkurnar í megin- landsfrosti allsber) sem er held- ur ekki satt, eru fá skjól fáanleg. Enginn vill lengur viðurkenna að hann liggi vikulega í nokkr- ar klukkustundir í sólbekk. Þá er ekkert eftir nema ljúga því til að brúnkan sé ættgeng og hafi ekk- ert með látlausa geislaneyslu að gera. Og það er rétt: þetta leggst í fjölskyldur. Pabbi, mamma, börn og bíll – allt dökkbrúnt eins og það vinni daglega við akuryrkju sunnan miðbaugs í skjóllitlum þvengjum. BRÚNKUFÍKN er eins og mörg heimskan í ofneyslu hættuleg. Vel steiktar kellingar og kúka brúnir kallar þeirra eru að safna sér í húðmein – lokapunkturinn á brún- kuástundun er svartur blettur – ekki einn heldur margir. Og það kallar á meðferðarúrræði eins og það kallast nú til dags. Lækningu. Sem er vissulega miklu dýrari en hugarfarsbreyting ef sú leið væri fær. Þess vegna er öllum hollt næst þegar þeir hitta einhvern af þessum brúnu að byrja á hrós- inu: Rosalega ert þú alltaf brún/ brúnn. Heyra lygina og svara: hvað liggur þú marga klukku- tíma í mánuði í bekknum? Hef- urðu leitað þér hjálpar? ER það ekki fulllangt gengið, segir þú. Er persónufrelsið ekki þannig: þú mátt éta á þig fitu þar- til þú drepst, reykja úr þér löng- un, svelta þig að beini, éta töflur þangaðtil þú ert búinn að rugla efnablöndu líkamans gersamlega? Því má til að svara að á endanum er rórill fólks á kostnað annarra. Líka brúnkan. Þá er bæsið betra. Brúna fólkið BAKÞANKAR Páls Baldvins Baldvinssonar Í dag er miðvikudagurinn 16. sept- ember 2009, 259. dagur ársins. 6.54 13.23 19.49 6.36 13.07 19.36 H E I L S U R Ú M ÁTTU VON Á GESTUM? SVEFNSÓFAR Í Rekkjunni er að finna eitt mesta úrval landsins af svefnsófum í einum stærsta og glæsilegasta svefnsófasýningarsal landsins. Allt frá einföldustu og ódýrustu svefnsófum upp í hágæða svefnsófa sem veita þér og þínum endurnærandi svefn. Svefnsófi T160 Svefnsófi CLOVE Gestarúm OZI Svefnsófi COMODO Svefnsófi COUPLE 1 2 3 Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! Jóhann Ólafsson & Co NÚNA! SKIPTU OSRAM SPARPER UR SPARAÐU með OSRAM SPARPERUM.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.