Spegillinn - 01.08.1926, Qupperneq 3
S P EXj I l l I n n
3
[?inguallanefnðin.
7. grein (Frh,)
10. Kastala all-ramgjörfan skal reisa norð-
ur af Meyjarsæti. Skulu þar geymdar
og í glerkistum til sýningar hafðar þær
þingmeyjar, er þá kunna enn fyrir að finn-
ast. Skemman skal umlukt ábyggilegri
gaddavirsgirðingu. Skal gegn um tjeð-
an gaddavír leiddur 5559 volta raf-
magnsstraumur, til frekari varnar.
11. Konungsgarður skal og reistur á þeim
stað, er vjer gefum samþykki vort til,
og skulu þar hýstir fjallkongar, glhnu-
kongar, skákkongar, og aukatigulkong-
ar, svo og konungur íslands, er hann
lystir. Gæta skal þess vandlega, að höll
þessi standi í hæfilegri fjarlægð frá næst-
ofangreindri skemmu, sem og frá öðr-
um húsum.
12. Þinghöll, þar sem haldin skulu öll þau
hin mörgu þing, er nú verða nauðsynleg
að teljast með þjóð vorri, svo sem: fiski-
þing, síldarþing, söluþing, búnaðarþing,
manntalsþing, hreppaskilaþíng, hrafna-
þing, húsmæðraþing, hestaþing, húsþing,
milliþing (þ. e. fundir milliþinganefnda),
stórstúkuþing og staupaþing. Ennfremur í
hjáskotum löggjafarþingþjóðarinnar, svo
fremi þingmenn sje ekki haldnir gin- og
klaufaveiki, sem frændur vorir Danir,
enda sje ekkkert þarfara við húsið að
gera. Auk þess skal í húsi þessu hald-
inn lýðskóli Suðurlands, og erríkisstjórn-
inni skylt að sjá honum fyrir jarðhita,
er nemi minst 120 stigum á selshaus.
13. Hospítál skal reisa á staðnum, og skulu
við það starfa tveir af ríkinu launaðir
bartskerar. Skulu þangað á ríkisins kost-
nað færðir sjúkir menn og lemstraðir,
svo og reiðhestar Laufæsingagoða, ef
þeim er lífs von. Nú er þeim dauða von
en einkis lífs, og skulu þeir þá tafar-
laust höggnir, að þeir eigi við örkuml
lifi, og skulu bein þeirra og það skinn
er fyrir kann að finnast lagt til mötu-
neytisins, er nærstödd grein, 7. liður um
getur.
14. Knattspyrnuvöllur skal gerður á staðn-
um, þar eð búast má við, að frændur
vorir Austmenn muni fjölmenna til lands
vors til þess að gera upp gamla reikn-
inga. Skal völlurinn lagður eggjagrjóti,
með fallgryfjum hjer og hvar.
15. Norður af Lögrjettu hinni fornu skal
reisa safngryfju eigi all-litla. Skal í hana
safna öllum þeim, er til feðra sinna safn-
ast kunna í tilefni af hátíðahöldunum
en einkum og sjer í lagi þeim, er norsk-
ir þorgarðar og aðrir timburmenn (sbr.
Þorleifs þátt Jarlaskálds) fyrir ætternis-
stapa steypa. Skulu gryfju þessa múra
þjóðhollir fríinúrarar i þegnskylduvinnu,
undir tilbærilegu eftirliti ríkismúrara.
Þar eð þessi grein er orðin nokkuð löng,
en margar eftir, víkjum vje oss að
8. grein.
Þar eð ekki er óhugsandi, að bánkar
vorir muni sýna tregðu nokkra á fjelán til
fyrirtækis þess alls, er að framan getur, ger-
um vjer það að varatillögu vorri að stífla
Sogið á þeim stað, er áveitu og rafstöðva-
útreiknarar vorir ákveða tilkippilegastan.
Mun þá Þingvallavatn hækka svo, að taki
15 álnum dönskum yfir eldhússtrompinn á
Valhöll — sem þá verður orðin ríkisins
eign með góðum kjörum. Munu þá ofan-
greindar byggingar með öllu óþarfar verða,
og þannig reynast mesta stórgróðafyrirtæki
rikissjóðs, í stað þess að verða honum —
þrátt fyrir allar tilraunir vorar — all-mikill
útgjalda- samvisku- og ólukku-póstur.
9. grein.
í því falli, að fræðingum þeirn, er að
frainan eru nefndir, kunni að fipast í form-
úlunum — sem þó mun ekki mikil hætta
á — gerum vjer það að þrautavaratillögu
vorri, að reisa aðeins áletraða hornsteina
að byggingum þessum. Nú reynast þeir
samt sem áður of kostnaðarsamir, að áliti
fornmenjavarðar og ríkismúrara, og má þá
notast við Bautasteina einvörðungu (sem
hafa kostað 11 krónur út i hönd og minna
í heildsölu) — enda sje þeir enn óuppseldir.
10. grein.
í því falli, að alt ofanskráð reynist ógjör-
legt, að áliti þeirra, er með völdin hafa og
vitið í þverbakstöskum reiða, gerum vjer
það að örþrautavaratillögu, vorri, að fresta
öllu hátíðahaldi, með tilheyrandi tilstandi
og veseni á Þingvöllum, til þúsund ára
afmælis sjálfstæðis vors, en það mun ákveð-
ið árið 2264.
NIÐURLAGSORÐ.
Nefndin hefir að sjálfsögðu lesið »Nefnd-
arálit Þingvallanefndarinnar frá 1925«, dags.
14. jan. 1926, og ekkert í því nýtilegt fund-
nema niðurlagsorðin, sem vjer gerum hjer-
með að vorum, þótt ekki eigi þau við áður-
Hinn ný-endurbætti
grammófónn frá
er einasti grammófónn, sem
gefur jafn eðlilega hæstu
sem lægstu tóna.
50% meiri tónstyrkleiki en i
öðrum grammófónum.
Einkaumboð fyrir ísland
Tage Möller.
leysir fljótt og vel af hendi
alla prentvinnu og bókband.
Miklar birgðir af pappír og
umslögum ávalt
fyrirliggjandi.
Dansk-islenska
orðabókín
kemur út um nwnaðamótin
nóveinber og desember. “
Nauðsynleg bók fyrir alla skóla-
og námsmenn.