Spegillinn


Spegillinn - 27.09.1930, Side 3

Spegillinn - 27.09.1930, Side 3
17., V. S p e g i 11 i n n 147 IslEnskt met. Mjög er það farið að tíðkast á síð- ari tímum, að menn slái met í hinu og þessu, og hefir svo verið sagt, að Am- eríkumenn sjeu þar öðrum fremri. — Hjer heima höfum við nú reyndar til þessa varla heyrt talað um önnur met en íþróttamet, sem í raun og veru eru engin met, vegna þess, að annarsstað- ar eru yfirburðirnir meiri. En nú á síðustu tímum hefir verið slegið hjer met, sem enn sem komið er, má áreiðanlega telja heimsmet. og er það hin pólitíska starfsemi ís- lenskra smábarna. — Nú fyrir stuttu hjeldu ungir jafnaðarmenn þing norð- ur á Siglufirði, og mætti þar heill hópur kjörinna fulltrúa, og þar á meðal, að minsta kosti einn, sem var kosinn til þingsins af fjelagi íslenskra barna. Elcki hefir heyrst um aldur fulltrúans sjálfs, en gera má ráð fyr- ir, að hann hafi verið það stálpaður, ;;ð ekki væri bein hætta á að hann iræðist undir ef róstur yrðu á þing- 'nu. Þessi virðulegi þingmaður, sem I jörbrjefanefndin áleit rjett ltjörinn. var fulltrúi barna, sem ekki voru eldri en 14 ára, en um takmark niður á við, er alls ekki getið, og verður því að álykta að það nái niður að fæðing- arstundinni, enda höfum vjer heyrt, að svo muni hafa átt að vera. Eins og vjer tókum fram, mun á- reiðanlega vera hjer um met að ræða, og hvergi annarsstaðar, eftir því sem vjer framast vitum, hið fyrsta veika barnskvak skilið sem atkvæðagreiðsla til þings ungra jafnaðarmanna, það er að segja, þegar móðirin er Bolsi. — íhaldsungarnir eru víst ekki farnir að hugsa um stjórnmál svona ungir. En þar sem takmarkið nær ekki iengra, en til fæðingarinnar, viljum vjer benda ungum jafnaðarmönnum á það, að vel getur svo farið, að þetta iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiMiiiiliiiiiiiiliiiiit ..iiim.iliniliMimilllllllllllillllllii.nl met verði slegið, og vinir þeirra, Rússar, taki upp á því, að hafa full- trúa fyrir ófædd börn, sem líkur eru fyrir, að komist einhvern tíma inn í veröldina, eða jafnvel kannske fyrir þau börn, sem ekki hafa nokkurn minsta ,,chans“ til þess að líta þenn- an heim. Þetta mál er þannig vaxið, að oss finst full ástæða til að F. U. J. taki það til nákvæmlegrar yfirvegunar fyrir næsta þing. Siglufjarðarfrjettaritari Spegilsins. isins vegna, að skólastjórinn sje lika alvcg nýr og óreyndur. Það væri ofur hjáróma að fara að taka gamlan og slitinn fausk eins og Steingrím Ara- son og setja hann í þessa nýju bygg- ingu. Yfir höfuð á alstaðar að vera samræmi í lífinu og óviðfeldið, ef hjer ætti að vera að leika sjer að því ?.ð gera undantekningu. En um þetta atriði má ef til vill deila, og því hefi jeg talið það hina veigaminni ástæðu fyrir þessari skóla- stjóraskipun, og sný mjer því að annari, sem jeg hygg, að varla verði deilt um af nokkru viti. Eins og menn muna, var skipaður nýr rektor við Mentaskólann í fyrra- haust, Var mikið um það mál talað þá, og það að fundið, að gandir og reyndir menn hefðu orðið að víkja fyrir algjöxdega óreyndum manni. En Jónas sá þar líka, hvað í manninum bjó. Hann sá þá hæfileika, sem öðr- um voru duldir, og þó þeir sjeu ekki komnir í ljós ennþá, er það ekkert að marka; þeir birtast þegar þar að kemur. En fyrst maðurinn með inn-

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.