Spegillinn - 27.09.1930, Page 6
150
Spegillinn
17., V.
Edgeworth
reyktóbak
pressað og ópressað.
Reynið þetta afbragðs
tóbak fæst í flestum
verslunum.
^Illllllllllllllllllllllllllllllllillll!llllllllllllllllllllllllllll!ll!ll!lllll!ll||||||||^
PEPPERWINI
SXIPA
STHONG
| Dr. lillers: j
| Ariosan,
Piparmyntur,
| Eukalyptus, |
og Menthol
eru ljúffengastar.
Heildsölubirgðir:
1 Sturlausur Iðnsson 8 Go. (
Íl!lllllll!!l|lll!llll|llllllllllllllllllllliii||llli>!lllllll||!l|l!|il||llllliliill!l|ll|ii
[Frh. af bls. 148].
vega, hvar heppilegast myndi verða,
að það stæði. Ekkert af því, sem til
þess máls hefir verið lagt í blöðunum,
líkar mjer algjörlega, ekki einu sinni
uppástunga Sveins, og þótt hann færi
tillögu sinni það til stuðnings, að
hann hafi sjeð fram í tímann með
kennaraskólann, þá má ekki láta slíkt
glepja sig, því að sjá fram í tímann,
er svo fátítt fyrirbrigði með þjóð vorri
að áreiðanlegt má teljast, að enginn
sjái fram í tímann oftar en einu sinni
á æfinni — jafnvel þó hann nái Sveins
aldri.
Nú er búist við, að þegar grunnin-
um sje lokið, verði hann látinn standa
þannig um nokkura ára skeið, og
bíða frekari framkvæmda. Mörgum
finst þetta gönuhlaup, en svo mun þó
ekki vera í rauninni, heldur hefi jeg
heyrt því fleygt, að á meðan önnur
eins rassaköst eigi sjer stað með lands
kassann, og nú er reyndin á, óttist að-
standendur þjóðleikhússins, að fje
það, er nú hefir fengist til grunns-
ins, kynni að fara meira eða minna
forgörðum, svo, að þegar loksins væn
búið að skrapa saman peningum í
aðalbygginguna, yrði ekkert til að
leggja í grunninn, og hvernig færi
þá?? Ennfremur mætti sýna útlend-
ingum grunninn fyrir sanngjarna
borgun, því áreiðanlega verður hann
h;ð furðulegasta tákn íslenskrar menn
ingar, sem völ verður á, og ætti hann
með þessu móti að renta sig sæmilega.
Þetta gæti nú alt saman verið gott
og blessað, ef leikhúsið ætti og mætti
standa þarna, en þarna má það ekkl
atsnda undir neinum kringumstæðum.
Þarf húsið yfirleitt að standa í
bænum? Jeg segi nei. Húsið á yfir-
leitt hvorki að standa í bænum nje
utanbæjar, heldur á það að standa
(eða liggja) fyrir ofan bæinn. Kenn-
ing hins góðkunna austurlenska húsa-
meistara um að byggja hús sitt á
bjargi er löngu úrelt orðin, og loft-
kastalar orðnir að veruleika. Fluglist
og loftsiglingar taka svo miklum fram
förum, að búast má við, að eftir 8—
10 ár verði hið góðkunna loftfar:
„Zeppelín Greifi“ komið út úr klassa,
og geti ekki staðist samkeppnina við
hin nýrri. Það ætti því tafarlaust að
hætt við grunninn, leggja fjeð á vöxtu
í Búnaðarbankann (því þar má helst
ætla, að það komist fyrir), og svo
verður leikhússnefndin að vera á varð
bergi og krækja í Seppa, þegar hann
fer á unpboðið, og fær hann eflaust
fyrir slikk. Auk þess, sem hann er á-
reiðanlega nógu stórt leikhús fyrir
oss, vrði hann þvílíkt prýði fyrir bæ-
inn. að á öðru betra yrði ekki völ.
Honum yrði lagt við mastur (og von-
andi verður lóðin undir það ekki að
þrætuepli), einhversstaðar í miðbæn-
um. í mastrinu yrði lyfta, og má bú-
ast við, að bæjarstjórn legði hana
til, gegn því, að bæjarbúar fengju
ókeypis aðgang að hinu óviðjafnan-
lega útsýni, sem verða mun þarna
uppi á ferlíkinu — áreiðanlega yrði
það eitt hið besta útsýni hjerlendis:
mun hærra en Landakotskirkjan, og
auk þess ram-lútersk. Mætti jafnvel
selja aðgang að því þá daga, sem ekki
er þoka. Annars eru margar tekju-
lindir, sem hægt er að ausa úr, stofn-
uninni til handa, með þessu fyrir-
komulagi. Þá yrðu leiksýningar ekki
einskorðaðar við Reykjavík — þótt
leikhúsið yrði auðvitað innregisterað
þar — því búast má við, að eftir 10
ár verði enn allmikill hluti þjóðarinn-
ar utan Reykjavíkur. Mætti þá til
dæmis hafa eftirmiddagssýningu hier
og kvöldsýningu á Akureyri, og jafn-
vel leigia salinn fyrir miðnæturkon-
sert með balli á Siglufirði. Einnig
mætti fyrir kosningar leigia salinn
til fundarhalda úti um land. Vínveit-
ingaleyfi yrði leikhúsið auðvitað að
hafa, ef þess er aðeins gætt, að láta
fallskerm fylgja þriðju flöskunni. —
Vonandi verða tsfirðingar orðnir svo
þreyttir á vínleysinu, þegar þar að
kemur, að þeir láti tilleiðast að af-
greiða leikhússkipið.
: ' Ex.
Með þessari grein er útrætt um
þjóðleikhússmálið hjer í blaðinu, með-
an engin fyrirtaks hneyksli verða í
málinu.
Ritstj.