Spegillinn


Spegillinn - 29.11.1930, Síða 3

Spegillinn - 29.11.1930, Síða 3
21., V. S p e g i 11 i n n 179 „Eruð þjer ekki alveg hissa á hon- f um Barða?“ sagði Gunna frá Hvoli, þegar jeg rak’st á hana á götunni fyr- ir fáum dögum. Það var hún Gunna, sem jeg hafði kynst svolítið í sveit- inni fyrir löngu, en sem nú var vinnu- kona hjá einum af dómnefndarmönn- unum. „Já, eruð þjer ekki alveg hissa á, að hann Barði skuli vera að gera þessa rekistefnu? Jeg segi þetta nú reyndar ekki af því, að mjer sje ekki í rauninni alveg sama, hver verður prófessor. Hann má svo sem heita Þorkell og hann mætti meira að segja svo sem gjarnan heita Pílatus mín vegna. Jeg segi það bara vegna hans húsbónda míns. Þjer ættuð bara að sjá, aumingia manninn, hvernig hon- um líður síðan þetta kom fyrir. Hann sefur ekki, hann borðar ekki. það sem talist getur ærlegur hiti, og hann get- ur ekki upp á nokkurn mann HHð. Og ekki kvu hinir dómnefndarmennirnir vera beisnari. Já, þvílíkt! Það er líka annað en gaman fyrir mann, sem ekki vill vamm sitt vita, sem aldrei hefir gert upp á milli hjúa sinna, hvorki í einu nje neinu, að vera sakaður um hlutdjægni. Nei, jeg segi það bara, það er ekkert kennikefli að vera ein af þessu heldra fólki. Það getur logið unn á hvert annað og gert hverju öðru sitthvað til miska ekki síður, heldur miklu fremur en hitt. Þá er eins gott að vera bara sljett og rjett vinnukona. sem, ef hún gerir verkin sín eftir bestu getu, er ekki sökuð fyrir að gera eitt betur en annað. Já, jeg segi það bara“. „Látið þjer ekki svona, Gunna mín“, sagði jeg. „Það er ekki nema heiður fyrir dómnefndina, að hún skuli taka sjer betta svona nærri, sem revndar er aldeilis engin ástæða til. Því siáið þjer nú til: Dómnefndinni er borið barna á brýn, að hún hafi verið hlutdræg í valinu á viðfangsefni sögulegu rit- giörðarinnar, og veitt þar Þorkatli hlunnindi, með því að hann hefði áð- ur Iagt sierstaka stund á þetta efni. En hver er það, sem leggur á sig mest erfiðið, og sýnir sig vanfærastan? — Einmitt Þorkell Jóhannesson. Hann ? K'/a' / /,. W'T'/fit M v\ 7 # mw/fs v. _/.,/ #. ö, <£* Kcfð v lekvcí 'l'j’evniií^ oS orv q r ! Samviskubit dómnefndarinnar. •iiiiiiiiiiiiiiiii iiimtiimiimmiiiiiiitiiHHiiimitiimtimitiviiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiimiimMiiiimiimmmiiiiimmiiiiiiiiiiiiiitimiimiiiiiiiiimmiiiiiiiifiiirr einn fer utan til þess að leita stuðn- ings, en hinir bjarga sjer hjer heima. Og að því sleptu, þá sýnist þetta svo vandalítið, að ekki virðist þurfa neitt sjerlegt prófessorsefni til þess að skrifa um það greinarkorn. Var það ekki um vinnukonur á fyrri öldum, sem þeir áttu að skrifa? — Eins og vinnukonurnar hafi ekki verið alveg svona upp og ofan þá eins og á 20. öldinni. Sumar trúmenskan ein eins og þú, Gunna mín, en aðrar bölvuð skrapatól. Eða þá sambandið á milli húsmóðurinnar og vinnukonunnar! Eins og þær hafi ekki rifist og skamm- ast þá eins og nú, og sleikt sig svo saman á eftir. Og eitthvað þurftu þeir víst að skrifa um vinnubrögðin, fatn- aðinn og mataræðið, og það er heldur ekki svo erfitt. Þá voru engir þúfna- banar og enginn togari eða línubát- ur. Enginn annar munur. Þá gekk kvenfólkið í opnum buxum, en nú í lokuðum. Búið. Og þá var jetinn harð- fiskur, súrt smjör og hákall, en nú eintómar kássur, sem henni Björgu er svo bölvanlega við. Það sýnist ekki vera neitt sjerlegt þrekvirki þetta, og jeg held jafnvel, Gunna mín, ao við hefðum getað tekið þátt í samkepn- Inni. Og svo var nú ekki annar vand- inn, ef kandidatarnir vildu fylla citt- hvað út í eyðurnar, en að koma með einhverja klausu eftir Pál fróða eða Pjetur lærða og segja, að þeir hafi fundið þetta innan um eitthvert forn- brjefarusl. Ekki nokkur maður, sem gat um það sagt, hvort það var sann- leikur eða lygi. Sem sagt dómnefndin á enga sök á því, þó að höfuðin á keppendunum sjeu ekki í lagi. Segðu húsbóndanum þetta, Gunna mín, og vittu hvort hann hressist ekki.“ „Jeg skil þetta nú reyndar ekki al- minnilega, Gvendur minn,“ sagði Gunna, „en það getur vel verið, að húsbóndinn skilji það, og vertu nú blessaður og sæll“. Þetta er nú skoðunin hennar Gunnu, en hitt er skoðun mín. Gvendur.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.