Spegillinn


Spegillinn - 01.12.1932, Blaðsíða 2

Spegillinn - 01.12.1932, Blaðsíða 2
ÍÖ2 S p e g í II í n n 21.—22., vn. •Spegiílitttt (Samviska þjóOarinncir, góð eða vond, eftlr ástœðum). Bltur tuisvar á mánuöi. — Áskrlftarueró kr. 10,00. Laususala 50 aura blaðið. Ritstjórn: Páll Skúlason, sími 2702 og 3955, Stg. Guðmundsson, slmi 4394, Tryggui Magnússon, slmi 2176. Afgrblðslumaður: Sig. Guðmundsson. Utanáskrift: S p e g i 11 i n n P. O. Box 594 — Reykjaolk. Prentaður I Ísafoldarprentsmiðju h.f. Til lesenda Spegilsins: Frá nýári næstkomanda verða æði miklar breytingar á niðurskipun efnis og mynda i blaðinu, og nýjar fastar deildir hefjast. Óbreytt verð- ur hinsvegar brot blaðsins, stærð árgangsins (192 bls. minnst); einnig áskriftar- og lausasöluverð. Áskrifendur i Reykjavík og hjá út- sölumönnum, greiði árgatiginn fyr- frfram í tvennu lagi (við útkomu 1. og 13 blaðs); áskrifenuur úti um land og erlendis, sem fá blaðið beint frá afgreiðslunni, greiói árganginn fyrirfram i einu. AV.: Núverandi áskrifendur, sem fá blaðið beint frá afgreiðslunni og staðið hafa i skilum, þurfa ekki að greiða fyrirfram, heldur á sama hátt og verið hefir. Tekið við áskrifendum í Reykjavik í sima 2102, SPEGILLINN, P. O. Box 594. Stjórnaihuörf. Höfðingjaskifti hafa enn orðið hjá okk- ur Lögbirtingi. Höfðumvjerþó vonað að verða aðnjótandi starfskrafta Magnúsar vors setn lengst, eða að minnsta kosti ljetum vjer svo. En það sannast, sem spekingurinn sagði, að »enginn ræður sínum næturstað« og »enginn dagur er til enda tryggur«, og fleiri spakmæli gætum vjer hæglega fundið, sem hjer ættu við, ef vjer nenntum að prenta þau. Magnús er sem sje spásseraður frá oss á dómnum hans Hermanns, og hafa íhaldsbiöðin í því tilefni sett dóminn á gæsalappir — því á lögreglustjórann sjálfan þurfti þeirra náttúrlega ekki með. Það er vitanlega leiðinlegt, þegar ung- ir menn verða að hverfa frá starfi sinu, áður en þeir hafa lokið við alla þá fjandafælu af framkvæmdum, sem þá kann að hafa dreymt um í bernsku sinni (barnaskap), en svo framarlega sem Hæstirjettur sjer sóma sinn i því að fara eitthvað eftir þvi, sem Moggi hefir verið að reyna að segja honum fyrir, verður þess ekki langt að bíða, að Magnús vor stígi aftur á sinn trón og slái botninum í framkvæmdir sínar og þá náttúrlega um leið á botninn á Hermanni. En hvað sem um það er, hefir Magnús ekki nema gott af að fá svolítið sumarfrí — þetta hefir Einar á Ægi fengið líka, og fleiri ættu það skilið að hvíla sig ofurlítið, ef eitthvað hægist til með annríkið. Þá er oss það bæði ljúft og skylt að bjóða velkominn hinn nýja handhívara laga, rjettar og siðgæðis SPEGILSINS. Ólafur Thors hefir þó að minnsta kosti þann höfuðkost að hafa ekki verið ráð- herrafyrr—auk þess sjálfsagt að vera undir sakamálskæru — og kemur það því alveg innan úr hjarta og neðan úr kútmaga er vjer segjum, að vjer hyggjum hið besta til samvinnunnar við hann í umbóta- starfi voru, hvar vjer jafnan höfum staðið sem klettur, þrátt fyrir öll þau pólítisku ofviðri, er um höfuð vort hafa geysað. Ólafur hefir þegar gert þá stjórnarráð- stöfun að hækka Erling uppí fulltrúa, og voru þá andstæðingar hans ekki lengi að halda þvi fram, að Hermann hefði verið búinn að því fyrir löngu. En þetta er þjer óhætt að láta eins og vind um eyrun þjóta, Ólafur sæll. Evrópumaður hefir enn í dag sómann af því að hafa h -..—.. ■—..... Géð b ó k RFRRm hin ágæta bók eftir 0. Swett Marden, sem Ólaf- ur heitinn Björnsson ritstjóri íslenskaði, er öilum bókum betri fyrir unglinga. Gefið börnum yðar bókina i afmcelisgjöf og við önnur tækifæri. SPEGILLINN veit að bólstruðu h ú s g ö g n i n úr r Verzl. Afram. Laugaveg 18. — Reykjavík. endast bezt. fundið upp púðrið, enda þótt einhver margulur Kínverji hefði fundið það upp nokkur hundruð árum fyrr. Eins fær þú sómann af því að hafa fundið upp Er- ling, þótt einhver halanegri hafi kannske bent á hann áður. Sem sagt: Velkominn í samvinnuna við oss — nú skulum við vera djöfull duglegirl

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.