Spegillinn


Spegillinn - 01.12.1932, Blaðsíða 4

Spegillinn - 01.12.1932, Blaðsíða 4
Í64 §p egiíii nii 21.-22., VÍL Utvarpsstjórinn við hlið Himnaríkis. Knútur er farinn — Knútur lifi! Nú er Alþýðu- blaðið alveg í vandræðum með það, hvaða íhaldsmann það eigi að gera að borgarstjóra. Og Morgunblaðið segir, að Knútur hafi unnið margra manna verk, sem er alveg satt. Alþýðublaðið nefnir nokkur borgarstjóraefni af íhaldinu, en oss finnst vægast talað lítið um þau flest, nema kannske Magga Magnús, því hann hefir verið í kjöri áður og er því öllum hnútum kunnugur. En sannleikurinn er sá, að hjer dugar enginn einn maður. Vjer stingum uppá að deila embættinu, hjer um bil sem hjer segir. Einn skal passa fátækramálin, annar fara til London þegar þörf krefur, þriðji versla með píp- ur og eldatæki, fjórði passa Kristilegt Fum, fimmti vera á bæjarsijórnarfundum, sjötti í bæjarráði, sjöundi taka á móti flugmönnum, áttundi vera formaður allra nefnda í bæjarstjórninni, níundi vera forseti bæjarstjórnar og tíundi vera ráð- ríkur í smærri málum. Af þessari upp- talningu má sjá nokkuð glöggt, að vjer eigum fleiri tíkalla en Jónas sáluga (frið- ur sje forresten með beinum hans). Útvarpsstjórinn ætlar að sleppa vel, eftir því sem Mogga segist frá. Þaina fær hann afslátt á öll- um þessum glæpapóstum, sem Moggi var búinn að telja upp: 50°/0 á kven- manninum, 83‘/3°/0 á risnunni, o. s. frv. Oss finnst ekki nema sjálfsagt, að Moggi skaffi honum einhverjar skaðabætur fyrir það, sem fjármálaráðuneytið er búið að plokka af honum. Kiljan hefir bersýnilega logið að útvarpinu, eft- ir þvi sem Moggi hermir. Þóttist ekki ætla að minnast á pólitík og gerði það svo. Og nú er það sannað, að Helgi Hjörvar hefir verið til taks, svo það hlýtur að vera ófyrirgefanleg vanræksla frá útvarpsins hendi, að hafa þar ekki líka mann til að skrúfa hann fastan. Já, Helgi sæll! Þú hefir staðið þína pligt! Framsóknarbóndi fylgdi syni sínum úr garði og gaf honum eftirfarandi leiðbeiningar I veganesti: Þegar loks þú hjeðan hleypir heimdraganum, úr viskumalnum mun jeg minum miðla þjer ögn, svo hœkki í þinum. Varla mun þjer veita af að vera klókur og af góðum ráðum rikur fyrst ráðinn ertu beint til Vikur. Fylgdu jafnan Framsókninni, fastri í rásum, þar nœst Bolsum, þvi nœst Sósum, þrœlgáfuðum Stalins-bósum. Temdu þjer jafnan tó og dygðir Timamanna, en varastu alla auðvaldssinna, — — erkifjendur vina þinna.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.