Spegillinn


Spegillinn - 01.12.1932, Síða 16

Spegillinn - 01.12.1932, Síða 16
176 Spegilliníl 21.—22., VII. kemur út einu sinni í viku, 32 siður í senn og kostar 35 aura. Flytur útlendar skáldsögur í islenskri þýðingu. Aðeins úrvalssögur eru gefnar út, og Vikuritið kostar kapps um að hafa þær sem fjölbreyttastar að efni, svo þær sjeu við allra hæfi, enda hefir útgáfa þessi þegar hlotið almennar vinsældir. — Út er komið: 1. Hefnd eitír Rafael Sabatíní. (320 blaðsíður. Verð kr. 3.80). Söguhetjan er alin upp i Frakklandi og hefir fóstri hans fengið hann til að sverja að hefna sin á enskum aðalsmanni nokkum, er hefir táldregið móður hans. Segir sagan hvernig hann framkvæmir hefnd þessa, og er frá upphafi til enda skemtileg. Munu fáir geta hætt við hana fyr en hún er að fullu lesin, og örlög söguhetjunn- unnar til lykta leidd. 2. Ratíða husíð eftír Víctor Brídges. (297 blaðsíður. Verð kr. 3.00). Frægur prófessor nokkur býr einn i afskekktu húsi, sem nefnt er Rauða húsiö. Söguhetjan verður aðstoðarmaður hans. Kemur nú í ljós, að glæpamenn nokkrir fremja innbrot í húsi þessu hvað eftir annað og myrða að lokum prófessorinn. Söguhetjan, aðstóð- armaður prófessorsins tekur nú að sjer að vinna á glæpamönnum þessum, og er viðureign hans við þá afar »spennandi«. Inn í þetta er svo fljettað mjög hugðnæmri ástasögu. Þetta er saga, sem allir hafa gaman af. 3. Doktor Vívantí eftir Sydney Horler. (252 blaðsíður. Verð kr. 3.90). Þetta er lögreglu- og glæpamannasaga af rjettu tegundinni »spenn- andi« og fjörug frá upphafi til enda. Lesandinn fylgist með næst- um því án þess að draga andann, hvernig doktor Vivanti hvað eftir annað fremur allskonar fantastrik og sleppur að lokum fyrir hugvit sitt úr greipum lögreglunnar. Síðari sagan kemur væntan- lega út í vetur, og er engu síður skemmtileg. Hver saga fyrir sig er sjerstök heild. 4. Stroktímaðtír ettír Víctor Brídges. (370 blaðsíður. Verð kr. 4.00). Sagan hefst á því, að maður nokkur er að strjúka úr ensku fang- elsi. Lendir hann í ótal æfintýrum, áður en hann kemst undan, og fær að lokum sannað sakleysi sitt. Sagan er svo fram úr skarandi fjörug, að lesandinn getur ekki sleppt henni fyr en siðasta blað- sióan er lesin. 5. Hneyksíí eftír C. Hamílton (423 blaðsíður) Verð kr. 4.00. Ensk aðalsmær fær söguhetjuna til þess að láta sem þau sjeu gift. — Verður svo að halda leiknum áfram til þess að forðast hneyksli, en sambúð hjónaleysanna verður höfundinum efni í margt skringilegt. Vjer viljum ekki taka fram fyrir hendurnar á lesandan- um með því að segja á hvern hátt úr þessu greiðist, en ráðum öllum, sem gaman hafa af skemmtilegri sögu, til þess að lesa bókina. 6. Leynískjölín eftir Ph. Oppenheím. (272 blaðsíður. Verö kr. 3,00). Sagan fjallar um skjöl, er varða mjög stjórnina á ltallu. — Stjórnin notar ýmsa klæki, og skirrist jafnvel ekki við að fremja morð til þess að ná í skjöl þessi. Söguhetjan er enskur spæjari, sem af tilviljun komst yfir skjölin. Segir sagan af viðureign hans viö stjórn Ítalíu og hvernig honum að lokum tókst að koma skjöl- unum til rjettra hlutaðeigenda. »Spennandi« frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. 7. Ljóssporíð eftír Zane Grey. (392 blaðsiður. Verð kr. 4.00). Sagan segir frá hinu mikla mannvirki, járnbrautinni »frá hafi til hafs« eins og Ameríkumenn orða það. Söguhetjan er ungur verk- verkfræðingur, hann er einn hinna ötulustu og framsýnustu verk- fræðinga við þetta risafyrirtæki. Eigi aðeins þurftu járnbrautar- mennirnir að etja við ýmsa landslagsörðugleika, heldur þurftu þeir einnig að verjast æðisgengttum árásum Indiána. Söguhetjan og fylgisveinn hans lenda ýnisum ægilegum æfintýrum og hættum og inn i þeíta alt saman er fljettað framúrskarandi hugljúfu ástar- æfintýri. 8. Latmsontír eftír Raíael Safoatíní. Saga þessi er að koma út í heftum. Hún er ein af bestu sögum meistarans Sabatini, enda er þetta saga sú, er gerði hann heims- frægan. Þarf engum orðum um það að eyða, að þetta er einhver allra besta saga til skemtilesturs, sem hægt er að hugsa sjer. Auk þess er hún fróðleg, þar sem hún lýsir allnákvæmlega ástandinu í Frakklandi nokkru fyrir stjórnarbyltinguna miklu. Þetta er bók, sem allir þurfa að lesa. Þetta er aðeins byrjunin á því, sem Vikuritið hefir í hyggju að gefa lesendum sinum kost á að kynnast. Hjer eftir sem hingað til mun hver sagan koma annari skemtilegri. Og vonast Vikuritið til, að þeir sem ánægju hafi af skemmtilegum bókum, geri sitt til að styðja það með því að kaupa það. Verðið er svo lágt að ekki er hægt að halda úti svona ódýrri bókaútgáfu nema með fjölda kaupenda. — Vikuritið fæst hja öllum bóksölum á land- inu eða beint frá útgefendum. Vikuritið , Reykjavík. Pósthólf 726. Kaupið Vikuritið. Vikuritið inn á hvert einasta heimili.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.