Spegillinn - 01.10.1947, Qupperneq 9
SPEGILLINN
167
011 fangelsi Reykjavíkur yfirfull og dæmdir menn á biðlisfum
50-60 manns bíða eftir að taka út fangelsisdóma í Revkjavík.
Almælt tíðindi
Hér gerast nú margir hlutir í senn, ekki síður en í hinni
ágætu útgáfu af Sturlungu, sem vér höfum verið að lesa oss
til sálubótar. Samtímis því að Lárus Pálsson setur leikrit á
svið í Bergen, setur Sláturfélag Sugurlands hræbilleg svið
á markaðinn hér. Bandíttar austur í Indlandi hinu forna
drepa 7000 manns, og það Múhameðstrúarmenn, á einum
degi, með þeim árangri, að bændur milli Héraðsvatna og
Blöndu hætta við að hætta við að myrða fé sér til fjár.
Sumir vilja halda því fram, að hér sé um alls óleyfilega
fjárfestingu að ræða. Hekla vekur mjög mikla öfund hjá
borholum ríkisins í Krýsuvík og Hveragerði, svo að þær
taka sig bara til og gjósa nýtt íslandsmet, og þurfa meira að
segja ekki að fara til útlanda til þess, eins og Finnbjörn.
Vonandi er nú samt, að bæjarráð Reykjavíkur sjái sóma sinn
í því að víkja Rafmagnseftirliti Ríkisins tíu þúsund kalli
fyrir frammistöðuna — en taki bara aurana úr eigin vasa.
Ekki að skattþegnarnir þurfi að kvarta, þar eð nú hefur rík-
inu opnast ný tekjulind, þar sem farið er að taka óleyfilegan
gjaldeyri af ferðafólki, innlendu og erlendu, til mikillar gleði
og fagnaðar í Ríkinu, sem annars yrði einsamalt að standa
undir hverskyns menningarstarfsemi landsmanna. Yfirleitt
sannast það á oss um þessar mundir, að þegar neyðin er
stærst, er hjálpin næst. Á þessum tíma árs hríðminnkar
dropinn í kúnum, svo að til vandræða og mjólkurslags leiðir
í höfuðstaðnum. En í ár vill svo til, að einmitt á sama tíma
sem nytin dettur úr beljunum, kemur hin langþráða aukning
vatnsveitunnar, svo að í ár þarf ekki að verða neitt knífirí
með að þynna mjólkina — heldur ekki hundrað lítrana, sem
vér eigum að fá hjá Bæjarkollu, samkvæmt samningi, en
hún er einmitt þegar þetta er ritað að auglýsa eftir 20 úrvals-
kúm upp í ábyrgðina, þ. e. á tíu þúsund kall stykkið.
Eins og jafnan að haustnóttum, stendur óráðvendni jneð
allmiklum blóma í höfuðstaðnum um þessar mundir, og reynd-
ar til sveita líka. Er vert í því sambandi að athuga hina mis-;
munandi tækni, sem gerist á hinum ýmsu stöðum. I höfuð-
staðnum geta menn einróið að því og fara út af skrifstofun-
um með vasana fulla af rauðum, grænum og orlofsmerkjum
og með vindil í munninum, en til sveita fara menn margar
ferðir og taka lítið í hvert sinn, til þess að það komi léttar
niður, ennfremur gefa furtarnir sér jafnan tíma til að hita
kaffi og kókó, sér til hressingar, í hverri ferð. í sambandí
við nýafstaðið rán í Auraseli hefur beztu mönnum þjóðar-
innar dottið í hug, hvort ekki væri rétt að skipa nefnd, er'
taki laun úr ríkissjóði og athugi síðan, hvort tiltækilegt
mundi vera að breyta þeim bæjarnöfnum, sem bera of mjög1
vott um peningagorgeir. Þarna var byrjað á því nafninu,
sem hógværast er, en hvað verður þá síðar um bæi eins og
Skildinganes, Krónustaði, Stóra-Dal, Auðbrekku o. s. frvi
Eftir á að hyggja, væri þetta hæfilegt verkefni fyrir Fjár-
hagsráð.
Gleðiríkt má það telja í allri dýrtíðinni, að fyrir nokkru
lækkaði kartöfluverð stórlega. Það má í þessu sambandi telja
aukaatriði, að þegar framsýnar húsmæður fóru að hamstra,
var engin kartaflan til, en þetta hefur ekkert að segja, ef
það getur lækkað vísitöluna. -
Prestaskólinn er um þessar mundir að halda upp á aldar-
afmæli sitt. Að vísu sálaðist hann 64 ára gamall, árið 1911,