Spegillinn - 01.10.1947, Síða 10
i6a
SPEGILLINN
FISKFLUTNINGAR
í lofti áttu að hefjast fyrir nokkru, frá íslandi til Prag, og var allt flugfiskur veiðist ekki hér við land. Heyrt höfum vér, að nokkrir
til reiðu, bæði flugvél og annað, er til þurfti — nema fiskurinn. Er þorskhausabaggar hafi verið sendir með vélinni heldur en ekki neitt,
það ekki annað en náttúrufræðingar hafa jafnan haldið fram, að og séu Tékkar nú sem óðast að rífa hausana.
en hvað um það; Fjárhagsráð ætlar að minnast dagsins með
veizlu að Hótel Borg.
Mest er talað manna milli um skömmtunina, sem alltaf á
að Vera yfirvofandi og á öllum sköpuðum hlutum nema áfengi,
tóbaki og kristalsvörum. Jafnvel skáldin hafa ekki farið var-
hluta af skömmtunarhræðslunni, eins og eftirfarandi vísa
ber með sér:
Alltaf dynur yfir mann
einhver skömmtunin.
Skammti þeir allan andskotann,
nema ekki SPEGILINN.
Með þessum gullfögru ljóðlínum hefur skáldið sagt hug sinn
allan gagnvart skömmtunarfarganinu. Ennþá hef ég ekki
heyrt nema í útvarpinu, hvað skammta skal, en ískyggilega
margt er það, og sumt í ljóðum, t. d. endar ein upptalningin
þannig:
Pönnur,
Önnur.
Hvað sem um fyrra liðinn kann að mega deila er ekki vafi
á, að sá síðari veldur hróplegasta ranglæti í þjóðfélaginu.
Að maður nú ekki tali um, hvernig Önnurnar verða á svip-
inn.
Talið er að ísland muni ef til vill gerast þátttakandi í
„rannsókn á tollabandalagi". Er tilefnið talið stórfellt smygl
á nælonsokkum, sem hér hefur átt sér stað og valdið ókyrrð
■meðal kvenþjóðarinnar. í sambandi við þetta má þess geta,
að hér í landinu liggur állmikið af óleyfilega innfluttum
vörum, sem Viðskiptanefnd er nú sem óðast að biðja menn
um að biðja um leyfi fyrir. Ekki verða þó allar vörurnar
leyfðar, heldur verður það, sem vér teljumst ekki hafa þörf
fyrir, selt Færeyingum, en þeir eru nú mestir kapítalistar í
Norðurálfu, enda þrífst þar enginn hagfræðingur.
Tíðindamaður vor.
orn
um útsýni á loftleiðum itie'8 „Loftlei8um“.
Við fljúgum upp í háloftin
fram úr skýja kafi
og sjáum ótal eyjar
úti á miðju hafi.
Allar þessar eyjar
eru bara ský,
sem koma og hverfa
og koma í Ijós á ný.
Hafið er eins og ljósmynd,
ef í loftinu þið svífið,
og húið að framkalla
bara negatívið.
SVB.