Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Page 20

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Page 20
14 STÚDENTABLAÐ 1925 embættispróf (Staatsexamen) og doktors- gráðu ýmist fyrir eða eftir embættispróf- ið. peir fá venjulegast ekki leyfi til að ger- ast háskólakennarar fyr en eftir 3 ár eftir doktorspróf; semja þeir þá enn aðra rit- gerð (Habilitationsschrift) og halda reynslufyrirlestra. Síðan gerast þeir einka- kennarar, venjulegast í 6 ár og að þeim tíma loknum verða þeir prófessorar, launa- lausir aukaprófessorar, en hækka smám- saman í tigninni og verða að lokum leynd- arráð (Geheimer Hofrat, Regierungsrat) eða fá hágöfgititil (Exzellenz). Eftir ófriðinn hefir þó nokkur breyting orðið á þessu og fá einkakennarar nú alloft ríkis- styrk til fyrirlestra sinna og fræðiiðkana. lllt!llinil!1llllllltltl1llllllllllNIII1llllltlll!!lll!lllltllllllllllll|illll!li|l||HIII1llllllll1l||||illlllll|t||l|linilill(|llill|||||!ll|||liniiilllllllll|l|||!ll|||t|ini||||||iiui fimmtíukall; eg — — Jú, það get eg — — þakka þér kærlega fyrir. Eg þarf þá ekki að leita til annara. — En mér dettur ekki í hug að gera það. þýskur háskólakennari á fyrst og fremst að vera vísindamaður og er því vant að spyrja um fræga þýska vísindamenn, við hvem háskóla þeir kenni. öðruvísi er þessu varið á Englandi og Frakklandi. Margir frægustu vísindamenn Englands (Darwin, Carlyle, Stuart Mill, Spencer, Ilume, Locke, Shaftesbury, Bacon, Gibbon) liafa aldrei verið háskólakennarar, en kenslan er í höndum tutors og fellows. Margir frægustu vísindamenn Frakka eru félagar í Academie eða Institut de France. og teljast ef til vill til College de France eða Sorbonne og halda þar opinbera fyrir- lestra, er öllum er heimill aðgangur að, en deildakennararnir annast alla kenslu undir embættispróf. Raunar hafa verið til fræg- ir vísindamenn á pýskalandi, er hafa ekki verið háskólakennarar, eins og t. d. bræð- urnir Humboldt, en frægustu vísinda- mannanöfnin þýsku eru tengd við háskól- ana (eins og t. d. Fichte, Schelling, Hegel, Schleiermacher, Kant, Luther og Melanch- thon, Treitschke, Ranke o. fl.). Mörg frægustu skáld þýskalands hafa og verið háskólakennarar, eins og t. d. Uhland, Riickert, Gellert, Haller, Búrger, Schiller. Algert kenningafrelsi ríkir við þýska há- skóla: hverjum kennara er heimilt að flytja þær skoðanir, er hann hefir, ef hann gerir það á vísindalegan hátt, jafnvel þó að skoðanir hans brjóti í bág við ákvæði kirkjunnar. þróunarkenning Darwins og kenningin um óskeikulleika páfans geta átt sér griðastað við sama háskóla. Á Eng- landi kemur það fyrir, að erkibiskup sletti sér fram í, ef guðfræðiprófessor víkur hársbreidd frá trúarjátningum ensku kirkjunnar. Lítum þessu næst á líf s t ú d e n t- a n n a. Háskólarnir á þýskalandi munu nú vera 23 og voru þeir síðustu í Frankfurt og Hamborg stofnsettir fyrir örfáum ár- um. Elstur háskóli er í Wúrzburg í Bayern (1402), en Berlínarháskólinn (1810) er

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.