Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Ég reyni nú að borða og hugsa um hvað ég set ofan í mig, pæli í því hvort það sé lífrænt og vist- vænt. Ég fór eiginlega að velta þessu fyrir mér eftir að ég gerð- ist grænmetisæta,“ segir Hanna Guðmundsdóttur, starfsmaður í Heilsuhúsinu, beðin um að lýsa því hvernig hún hugar að heils- unni. Hanna segist hafa tekið ákvörð- un um að gerast grænmetisæta eftir að hafa horft á myndband um slæma meðferð á dýrum. „Í framhaldinu tók ég ákvörðun um að styrkja ekki þennan iðnað með neinu móti.“ Var ekki erfitt að hætta að borða kjöt? „Nei, alls ekki. Ég ákvað að gefa mér þrjá mánuði í þetta. Ætlaði að byrja á því að taka út svínakjöt og rautt kjöt, hafði reyndar aldrei verið hrifin af svínakjöti. Svo átti fuglakjöt og fiskur að vera næst á dagskrá. En þegar ég byrjaði að elda græn- metisrétti gerðist þetta rosalega hratt. Ætli það hafi ekki liðið fjór- ar vikur frá því ég tók ákvörðun þar til ég var alfarið hætt.“ Hanna segir þó ígrundaða ákvörðun frumforsendu þess að gerast grænmetisæta. „Ég próf- aði þetta til dæmis fyrst átján ára, en það var ekki endilega rétt ástæða. En svo gerði ég þetta af siðferðilegum ástæðum og það breytti öllu.“ Hún segist ekki hafa upplif- að næringarskort eða orkuleysi eftir að hafa hætt neyslu kjöts og fisks gagnstætt því sem stundum er haldið fram. „Ég hafði heyrt sagnir um það. En það er ekkert í kjöti og fiski sem ekki er hægt að fá úr jurtaríkinu, eins og til dæmis prótín.“ Þá segir hún til- tölulega auðvelt að versla í mat- inn. „Tofu fæst til dæmis hér um bil alls staðar. Svo er hægt að fá góða grænmetisrétti á mörgum veitingastöðum.“ Þannig að þú freistast aldrei til að bragða á kjöti? „Nei, enda lít ég ekki lengur á það sem mat,“ segir hún ákveðin. roald@frettabladid.is Ánægð með ákvörðunina Hanna Guðmundsdóttir hefur verið grænmetisæta í tæp sjö ár. Hún segist síður en svo sjá eftir að hafa breytt um lífsstíl. Ákvörðunin hafi verið af siðferðilegum toga og haft alls kyns jákvæð áhrif á heilsuna. Hanna segist hafa fengið misjöfn viðbrögð þegar hún gerðist grænmetisæta. „Flestir voru jákvæðir, enda voru margir í kringum mig í svipuðum hugleiðingum. Þar á meðal nánustu ættingjar mínir.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á RÁS FYRIR GRENSÁS er söfnunarátak fyrir endurhæfingardeild Landspítalans. Ríkissjónvarpið verður með dagskrá tileinkaða söfnuninni næsta föstudagskvöld klukkan 19.35. Fjöldi gesta kemur fram, tónlistar- menn og aðrir skemmtikraftar. Umsjónarmenn eru Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Dr Hauschka snyrtinámskeið fyrir konur 40+ Styrking á starfsemi húðarinnar með náttúrulegum jurtablöndum. Farið verður í umhirðu húðarinnar fyrir þroskaða húð (40+) og hvað gera skuli fyrir hverja árstíð og hvernig hægt sé að undirbúa húðina með sérstökum jurtum sem styrkja vefi hennar og stuðla þannig að heilbrigðu útliti. Meðan á námskeiðinu stendur verður veittur 15% afsláttur af Dr Hauschka snyrtivörum og 10% afsláttur af öðrum vörum. Leiðbeinandi: Jóhanna Benediktsdóttir Aðgangur er ókeypis. Námskeiðið verður haldið í Yggdrasil fimmtudaginn 24. september l. 20:00 – 21:30. Upplýsingar og skráning eru k á netfanginu yggdrasill@yggdrasill.is eða í síma 562 4082. Skólavörðustíg 16 . 101 Reykjavík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.