Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.09.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans 7.11 13.22 19.29 6.55 13.06 19.13 Í dag er mánudagurinn 22. sept- ember 2009, 265. dagur ársins. H E I L S U R Ú M ÁTTU VON Á GESTUM? SVEFNSÓFAR Í Rekkjunni er að finna eitt mesta úrval landsins af svefnsófum í einum stærsta og glæsilegasta svefnsófasýningarsal landsins. Allt frá einföldustu og ódýrustu svefnsófum upp í hágæða svefnsófa sem veita þér og þínum endurnærandi svefn. Svefnsófi T160 Svefnsófi CLOVE Gestarúm OZI Svefnsófi COMODO Svefnsófi COUPLE 1 2 3 Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Ég heyri oft fólk á besta aldri, sem telur sig svolítið viturt og lífsreynt, segja söguna af því þegar það var ungt og vinstrisinnað. Yfir- leitt hljómar þetta einhvern veginn svona: „Einu sinni var ég mikill vinstrisinni, já maður minn, svei mér ef maður daðraði ekki bara við kommúnisma!“ og það hlær góðlát- lega yfir kjánaskap fortíðarinnar, hristir hausinn og segir svo söguna af því að svo hafi það fullorðnast og kosið Sjálfstæðisflokkinn síðan. Líkt og það sé eðlilegur hluti þroska þess. Um leið og þetta fólk trúir að allar stjórnmálaskoðanir sem það trúði einlæglega á séu eins vitlaus- ar og hugsast getur, trúir það að tónlistin sem það hlustaði á á sama tíma sé sú besta sem samin hefur verið MÉR hefur alltaf þótt þessi ályktun þroskaða hægri fólksins sem sagði skilið við vinstri villuna og ungæð- isháttinn ögn spaugileg og fátt eiga skilið við meðvitaða ákvörðun. Miklu frekar finnst mér þessi saga af unga vinstrimanninum sem snýst til hægrimennsku á fullorðinsárum bera vott um áhrifagirni. ÞETTA fólk var ungt og í mótmæla- hug þegar enn eimdi eftir af hug- sjónum svokallaðrar 68-kynslóðar; þegar öflugu heilbrigðis-, mennta- , og almannatryggingakerfi var komið á laggirnar, kvenfrelsi jókst og það dró úr kynþáttamis- rétti. Jafnaðarmennska var móð- ins og flest allt ungt fólk aðhylltist þá tísku. Svo varð þetta sama fólk fullorðið og Ronald Reagan og That- cher urðu helstu hetjur samtímans. Vinstrimennskan hætti að vera í tísku rétt eins og útvíðu gallabux- urnar. Í skólum voru það ekki ungir menn, sem höfðu andstyggð á stríð- inu í Víetnam, sem helst höfðu sig í frammi heldur ungir menn sem töluðu um mikilvægi frelsis í við- skiptum. Þessi umskipti tengjast tískunni miklu frekar en því að vera hluti af eðlilegu þroskaferli mannsins eins og svo margir mið- aldra halda fram. ÞETTA er í sjálfu sér ekkert und- arleg hegðun, fólk vill venjulega fylgja ríkjandi tískustraumum og alla ævi skiptum við ómeðvitað um skoðun. Eða alveg þar til við verðum of gömul til að játa að það komi fyrir að við höfum rangt fyrir okkur eða að ekki sé til neinn einn sannleikur þegar kemur að stjórn- málum. Sú ríkisstjórn sem nú er við völd er langt frá því gallalaus en á meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur engin mistök játað eða beð- ist afsökunar á nokkrum hlut sem hér fór úrskeiðis hljómar gagnrýni þeirra álíka taktlaust og manns sem öskrar Scooter á tónleikum með Jet- hro Tull. Tískan og Thatcher Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.