Stúdentablaðið - 01.12.1987, Qupperneq 5
Byggingarsjóður
Byggingarsjóöur stúdenta:
"Þaðveröur
seintnóg byggt
afstúdenta-
húsnœör
- segir Helgi Lárusson,
fjármálastjóri
Féiagsstofnunar
stúdenta
Byggingcisjóður stúdenta og
átakið við söfnun f)ár til byggingar
nýrra hjónagaröa eru mál mála nú.
í síðasta tbl. Stúdentablaðsins var
ítarlegt viðtal við formann
Stúdentaráðs um Byggingasjóð-
inn og fjármál hans. Nú birtum viö
annað ítarlegt viðtal, nefnilega við
hinn manninn á bak við Bygg-
ingasjóðinn, Helga Lárusson,
fjármálastjóra Félagsstofnunar.
Með viðtalinu birtast einnig ýmsar
tölulegar upplýsingar.
- Er það rétt að Félagsstofnun
stefni í greiðsluerfiöleika eða
greiðsluþrot vegna nýju
stúdentagaröanna.?
- Nei, nei. Félagstofnun stendur
mjög vel að vígi í dag, er mjög sterk
fjárhagslega og hefur mjög traust
veð og traustar bankaábyrgðir.
Vanti fé í þessa byggingu þá er
ekkert vandamál fyrir Félags-
stofnun að sækja þá í banka, sem
skammtímalán. En slík lán eru
mjög dýr og þess vegna höfum við
viljað fara aðrar leiðir.
- Saga stúdentagarðanna býður
upp á ýmsar leiöir. Hvemig hefur
íjármðgnun þeirra fariö fram?
- Gamli og Nýi Garður voru
byggðir vegna mikils velvilja allrar
þjóöarinnar. Sveitarfélög gáfu
peninga í hvert herbergi, þannig
að það var hægt að koma þeim upp,
og stúdentar lögðu af mörkum
mikla sjálfboðavinnu. Það eru
meira að segja til myndir af stúd-
entum þar sem þeir eru að grafa
skurði hér fram og aftur á Há-
skólasvæðinu, í sjálfboðavinnu.
Síðan var ekkert gert lengi vel þó
að vandinn væri mikill fyrr en
byijað var á byggingu HJónagaröa
á Grímsstaöarholti nálægt 1973.
Þeir voru teknir í notkun 1976. Það
gekk mjög erfiðlega að íjármagna
þá, og um tíma var búið að ákveða
það hjá Félagstofnun að selja
Hjónagarðana, vegna þess að
f) ármagnskostnaður var að sliga
stofnunina. En það var ekki fyrr en
í fyrir velvilja nokkurra manna að
komist var hjá því. Eftir það hefur
ekkert verið gert fyrr en ákveðið
var núna árið 1985 að leggja í
byggingu enn einna hjónagarða,
hina svokölluðu Nýju Hjónagarða.
- Áður en þú heldur áfram -
hvemig var Q ármögnun eldri
Hj ónagaröanna?
- Já, ég skal fara ofan í það lið
fyrir lið hvemig hún átti sér stað.
Langtímalán frá Húsnæöis-
stofnun, Byggingasjóði, og Fram-
kvæmdastofnun rikisins voru um
helmingur af byggingarkostnaði.
önnur framlög vom mestmegnis
frá Háskóla og Alþingi. Sveitar-
félög lögðu að vísu til nokkra
upphæð, þ.e. Akureyri, Reykjavík
og Vestmannaeyjar. Akureyri lagði
til nálega verð tveggja íbúöa, Vest-
manneyjabær einnar íbúðar og
Reykjavík flmm íbúða. Reykja-
víkurborg var reyndar líka búin að
lofa því líka að malbika á bíla-
stæðunum, en úr því varð ekki,
þannig að framlag Reykjavikur-
borgar varö minna en upphaflega
var reiknaö með.
En það má eiginlega segja að það
hafl verið tvennt sem bjargaði
þessarri byggingu. í fyrsta lagi var
stofnaður minningarsjóður um
BJama Benediktsson. Hann aflaði
um 20% byggingarkostnaðar. í
þennan minningasjóð rann fé frá
Alþingi og Seölabanka, auk
Stúdentablaöiö
5