Stúdentablaðið - 01.12.1987, Síða 14
Tölvuvinna
borðs, fer eftir eðlí verkefnls
hveiju slnnl.
Þegar skrlfaðar eru töluraöir eða
miklð samfellt mál, er æskilegt að
notuð sé textagrind með línuíylgi
til að forða því að farið sé línuvillt.
Ef hæðarmismunur milli lykla-
borðs og borðsins sem það hvílir á,
gerir það að verkum að úlniliöimir
eru í skástöðu við áslátt, er
nauðsynlegt að úlnliðir fái stuðn-
ing frá handbrík sem komið er
fyrir framan við lyklaborðið. Hæð
handbríkur þarf að vera Jöfn hæð
lyklaborðs, lengd Jöfn lengd lykla-
borðs og breidd u.þ.b. 7 cm. Bríkin
má ekki vera óþægileg viðkomu.
Slíkur stuðningur er einnig til
hvíldar þegar beðið er eftir svari
frá tölvu.
Þegar unnið er samfellt allan
daginn við tölvuskjái er æskilegt
að höfð séu stutt hlé með sem
jöfnustu millibili. í slíkum hléum
er gagnlegt að gera léttar
líkamsæfingar.
STÚDENTAR!
ATAK FYRIR BYGGINGARSJOÐ
STÚDENTA!
Nú hafin herferð til söfnunar fjár í Byggingarsjóð stúdenta. Stúdentablaðið
stendur fyrir hluta þessa átaks í samstarfi við Stúdentaráð, Félagsstofnun stúdenta
og stjóm Byggingarsjóðsins. Markmið átaksins er að afla 20 millj, kr. hjá
sveitarfélögum í landinu og ýmsum fyrirtækjum.
Til að þetta takist verða allir að leggjast á eitt. Stúdentar utan af landi em hvattir
til að fylgja málum eftir gagnvart sveitarfélögum sínum og fyrirtækjum í sinni
heimabyggð. Hvemig væri að nota jólaleyfið til þess?
Ef þið teljið ykkur á einhvem hátt geta lagt málefni þessu lið hvetjum við ykkur
til að hafa samband við’ skrifstofu Stúdentablaðsins og Stúdentaráðs í s. 62 10 80.
STÚDENTABLAÐIÐ
14
Stúdentablaðið