Stúdentablaðið - 01.12.1987, Side 19
Fréttir
Vantar þig
styrk?
Út er komið 1. tbl. 1. árg. af nýju
fréttabréfl, Fréttabréfl um styrki, sem
geflð er út af Alþjóðasamskiptanefnd
Háskóla íslands, sem stofnuð var
haustið 1986. Fréttabréfið mun koma
út tvisvar á ári. í því er greint ffá
íslenskum og erlendum styrkjum sem
stúdentar og fræðimenn geta sótt um.
Upplýsingamar eru flokkaðar eftir
löndum. Efnisyfirlit fréttabréfsins
gefur ágætt yflrlit jdlr þá styrki sem í
boði eru.
Ástæða er til að fagna útkomu þessa
rits. Á því hefur lengi verið þörf að
slíkar upplýsingar væru tiltækar. í
Alþjóðasamskiptanefnd eiga sæti
Þórólfur Þórlundsson formaður, Ingvar
Ámason, Guðmundur Þorgeirsson og
Guðný Björk Eydal. Starfsmaður
nefndarinnar og umsjónarmaður
fréttabréfsins er Þóra Magnúsdóttir.
HVAÐ VEISTU UM NORRÆNAN
ALÞÝÐUSKÁLDSKAP?
FRÉTTABRÉF UM STYRKI
Norrænu sendikennaramir munu á
vormisseri 1988 halda sameiginlegt
námskeiö um norrænan alþýðuskáld-
skap. Námskeiðið fer fram I Norræna
húsinu á mánudögum (17.15 - 19.00) og
þriðjudögum (15.15 - 17.00) frá og með
25. janúar n. k.
Norrænn alþýðuskáldskapur verður
skýrður í ljósi mál- og menningarsögu-
legra stefna á 19. og 20. öld; mannlegra
hvata sem vitnis um þrár og drauma;
hugmyndasögu og gildls fyrir nýjan
skáldskap og hugmyndaheims alþýðu-
skáldskapar og hlutverks hans í sam-
tíðinni.
Námskeiðið gefur 5 einingar og er
sérstaklega hentugt þeim sem ber að
taka valnámskeið i öðm Norður-
landamáli en aðalnámi. Þar sem nám-
skeiðið gefur einnig innsýn i söguleg,
samfélagsleg, heimsspekileg, þjóð-
fræðileg og sálfræðileg viðhorf, geta
nemendur í þessu greinum ennfremur
hagnýtt sér námskeiðið, sem annars er
öllum opið.
Kennslan fer fram á Norðurlanda-
málum og íslensku. Auk fyrirlestra og
æflnga verður norrænn alþýðuskáld-
skapur kynntur í kvikmyndum.
Hákan Jansson, Lisa von
Schmalensee, Oskar Vistdal, Timo
Karlsson
Samband íslenskra
námsmanna erlendis
sendir námsmönnum á íslandi sínar
bestu jóla- og nýársóskir.
Samherjar! Með lögum skal land byggja
... eða hvað?
Ensk- íslensk
ORÐABÓK
Verð bókarinnar í dag er kr. 12.975, en hún hækkar
verulega í verði strax eftir áramót. Með námsmanna-
afslætti kostar hún kr. 11.975. Sé hún staðgreidd fæst hún
fyrir kr. 11.000. Auk þessa afsláttar er boðin sérstök
afborgunarkjör. Útborgun er kr. 1.000, en eftirstöðvar
greiðast á allt að 13 mánuðum, eða kr. 844 á mánuði, auk
vaxta. Einnig er hægt að kaupa bókina á raögreiðslum
VISA, en þá er hámarks lánstími 12 mánuðir. Tilboð þetta
er tímabundið og gildir aöeins til áramóta.
Fæst gegn aðeins eitt þúsund króna útborgun
á þrettán mánaða afborgunartíma.
tiynntu þér þessi einstæðu kjör.
Öm og Örlygur
Pantanasími 84866
Stúdentablaðið
19