Stúdentablaðið - 01.12.1987, Page 20
Fréttir
Lónasjóöurinn:
Lögbrot að telja
barnsmeðlag sem
tekjur
Stúdentaráð sendl Lagastofnun
Háskó'a Islands bréf þann 5. okt. sl. og
bað stofnunlna að segja állt sltt á
þelrrl nýju reglu í úthlutunarreglum
Lánasjóðs íslenskra námsmanna að
telja bamsmeðlag tll tekna. Niður-
staða Lagastofnunar var í stuttu máli
sú að þetta væri ólöglegt athæíl.
Rök Stúdentaráðs
í álitsgerðinni segir m.a.:
“í áðurgreindu bréfl Stúdentaráðs
frá 5. október s.l. kemur fram, að við
meðferð lánsumsókna einstæðra for-
eldra hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna, séu bamsmeðlög, sem láns-
umsækjendur fá með bömum sínum,
reiknuð þeim, sem hveijar aðrar
tekjur. Skerðist lán einstæðra foreldra
sem þeim tekjuauka nemur.
Að mati Stúdentaráðs stenst það
ekki ákvæði íslenskra laga, að lita á
barnsmeðlög sem tekjur í þessu sam-
bandi. Færir Stúdentaráð fram þau
rök til stuðnings skoðun sinnl, að skv.
23. gr. bamalaga nr. 9/1981 tilheyri
bamsmeðlag bami sjálfu en ekki
foreldri sbr. ogHrd. 1954: 433. Skv. 14.
gr. sðmu laga beri foreldrum að fram-
færa böm sin saman. Hafl móðir t.d.
forsjá bams og fái meölag með því frá
bamsfðður, beri henni að leggja fram
sambærilega upphæð og faðirinn til
framfærslu bamsins. Með hliðsjón af
þessu og með vísan til ákvæða laga nr.
75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt,
þar sem bamsmeölög em ekki talin til
skattskyldra tekna, telur Stúdentaráð
fráleitt, að þau séu reiknuð sem ígildi
tekna forsjárforeldris við lánaútreikn-
inga Lánasjóðs Islenskra náms-
manna.”
Bamið á meölaglð
Síðar I álitsgerðinni segir:
“Hvorki í lögum nr. 72/1982 né
reglugerð nr. 578/1982 em reglur né
leiðbeiningar um það, hvaöa fjárafli
teljist tll tekna námsmanns og hafl
áhrif á ákvöröun lánsfjárhæðar tll
skerðingar. Úrlausn þess, hvort það sé
I samræmi við íslenskar réttarreglur
að telja meðlög greidd með bami til
tekna einstæðs foreldris veltur á okkar
áliti á því, hvort stjóm Lánasjóðs
islenskra námsmanna sé skv. gild-
andi lögum heimilt að setja ákvæði í
þá vem um úthlutunarreglumar.
Samkvæmt fortakslausu
ákvæði 23. gr. bamalaga nr. 9/1981, og
dómi Hæstaréttar frá 23. júní 1954,
sbr. Hrd 1954: 433 á bamtð sjálft
réttinn til meðlags. Samkvæmt 2 tl. A.
liðar 7 gr. laga nr. 75/1981 um tekju-
skatt og eignarskatt teljast barns-
meðlög ekki til tekna foreldris að því
leyti sem meðlagið takmarkast af fjár-
hæð bamalífeyris skv. 14. gr. laga nr.
67/1971 um almannatiyggingar.
Þegar litið er til framangreindra
ákvæða bama- og skattalaga og að því
gættu, aö bamsmeðlag gegnir skv. eðll
sínu því hlutverki að standa straum af
útlögðum kostnaði við uppeldi bams,
er það álit okkar, að umrætt skerð-
ingarákvæði úthlutunarreglna stjórn-
ar Lánasjóðs islenskra námsmanna
eigi sér hvorki beina stoð í lögum nr.
72/1982 né fái samiýmst þvi viðmið-
unarsjónarmiði 3. gr. laganna að taka
beri eðlllegt tillit til fjölskyldustæðrar,
framfærslukostnaðar og tekna náms-
manns. Samkvæmt þessu teljum við,
að stjóm Lánasjóðs íslenskra náms-
manna skorti að óbreyttum lögum
heimild til þess að setja slíkt skerð-
ingarákvæði í úthlutunarreglur sjóðs-
ins."
Álitið er dagsett 30. nóvember 1987
og undirritað af Sigurði Líndal og
Þorgeiri örlygssyni.
NOM-þing í
Reykjavík í
febrúar
NOM, Nordisk ordfarende mote, er
óformlegur samstarfsvettvangur
stúdentaráðanna á Norðurlöndum.
NOM hélt þing í Hróarskeldu í haust,
nánar tiltekið dagana 16. - 18. október.
Þar mættu fyrir hðnd SHÍ þau Þóra
Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson.
Aðalefnl þingsins var “Opinber
fjármögnun og einkafjármögnun
háskólanáms”.
Meðal þess sem ákveðið var á þessu
þingi var að næsta þing skyldi haldið
á íslandi. Hefur það nú verlð ákveðið,
og verður þingið haldiö dagana 5.-7.
febrúar 1988.
K?Ösí i
// /
Undirrit.... óskar hér með að gerast félagsmaður í Kaupfélagi Reykjavíkur og I
nágrennis (KRON)
Nafn: ________________________________________— |
Heimili: |
Fd. og ár - nnr.: i
| Dags. Undirskrift
(Umsókn sendist KRON eóa SHl) J
I___________________________________________________________________________________________I
20
Stúdentablaöið