Stúdentablaðið - 01.12.1987, Page 21
Fréttir
Islensk
þjóðmenning
- níu binda ritverk
Á undanförnum árum hefur á vegum
bókaútgáfunnar Þjóðsögu verið í
undirbúningi útgáfa á 9 blnda
bókallokki um íslenska þjóðmenn-
ingu. Bókailokkurinn spannar yflr
tímabilið frá landnámi fram á upphaf
þessarar aldar eða rúm þúsund ár í
menningarsögu íslensku þjóðarinnar.
Nú er svo komið að ritröðin hefur i
öllum atriðum verið skipulögð,
efnisilokkum verið skipað niður í
einstök bindi og að sögn Frosta F.
Jóhannssonar, ritstjóra bókaflokks-
ins, er búið að fá höfunda að vel-
ílestum köflum bókaflokksins, um 40
kunna fræðimenn með sérþekkingu
hver á sínu sviði.
1. bindi ritverksins, sem ber
yllrskriftina Uppruni og umhverfl er
komið út. Það er inngangur að verkinu
og Qallar um uppruna fólksins og
menningarinnar og umhverflð. Unnið
er að því að búa næsta bindi til
prentunar. Stefnt er að því að gefa 1-2
bindi út á ári hveiju.
í þessu bindi er m. a. leitast við að
svara þvi hvers vegna íslendingar
virðast samkvæmt rannsóknum á
ABO-blóðflokkunum skyldari írum en
Norðmönnum og hvemig og hvers
vegna torfbærinn þróaðist í aldanna
rás úr tiltölulega rúmgóðum og vist-
legum hýbýlum í þröngar dimmar
vistarverur. Á þriðja hundrað myndir
Frosti Jóhannsson, ritstjóri
eru í 1. bindinu, þar af 60 litmyndir.
Itarleg atriðisorða- og nafnaskrá
fylgir.
Frosti kveður bókaflokkinn
íslenska þjóðmenningu hugsaðan
sem yflrlitsverk þar sem dregnir verði
saman á einn stað helstu þættir
þjóðmenningar okkar. Megináhersla
verði lögð á hversdagslega lifnaðar-
hætti og það sem almennt tíðkaðist
meðal fólksins í landinu.
Utvarp ROT hefur
úsendingar 10. janúar
Menntamálaráöherra
vill nýjar
framfœrslutölur!
Menntamálaráðherra hefur sent
stjórn Lánasjóðs ísl. námsmanna
bréf, þar sem hann fer þess á leit
við hana - þvert ofan í samþykkt
hennar um að framfærslutölur
hennar séu í samræmi við þarflr
námsmanna - að hún leiti leiða til
að endurskoða framfærslutölur
sjóðsins í samráði við Hagstofu
Islands (einni treystir hann
stjórninni auðvitað ekki).
I umræðum á ALþingi kom fram
að ráðherra telur ekki ólíklegt að
framfærslutölumar séu úr takti
við nútímann, enda byggist þær á
gamalli könnun.
Það hefur nú verið ákveðið að
Útvarp RÓT hefji útsendingar þann
10. janúar n.k. Að sögn Kristjáns Ara
Arasonar, formanns stjórnar RÓTAR,
hefur undirbúningur gengið
þokkalega og undirtektir verið góðar.
Kristján Ari kvaðst þó vilja beina
þeirri málaleitan til stúdenta - t.d.
deildarfélaga og pólitískra félaga í
Háskólanum - að þau færu að huga að
væntanlegri þátttöku sinni í
útsendingum. Stúdentablaðið tekur
undir þessa hvatningu. Stúdentaráð á
hlutabréf í útvarpsstöðinni. Þótt menn
kunni að hafa greint á um kaup þeirra
á sínum tíma verða allir að leggjast á
eitt við að nýta sér þau sem best nú.
FRAMFÆRSLAN HÆKKAR!
Lánasjóður íslenskra námsmanna
hefur ákveðið nýjar framfærslutölur,
en þeim er breytt ársíjórðungslega
með hliðsjón af verölagsbreytingum
og gengi, fyrir námsmenn á íslandi og
erlendis. Þessi útreikningur gildir frá
desember 1987 til febrúar 1988. Sem
dæmi má nefna að námsmaður á
Islandi fær nú 27.530 kr., í Englandi
28.358 kr., í V-Þýskalandi 24.153 kr., í
Bandaríkjunum frá 23.489 kr. upp í
30.497 kr. Hæstu lánin fá nemendur í
Sviss eða 38.026 kr.
Þessi hækkun framfærslutalna
kemur þó ekki fram á reiknimiðum frá
sjóðnum fyrr en í apríl.
Stúdentablaðið
21