Stúdentablaðið - 01.12.1987, Síða 22
Fréttir
Bóksalan mun heilsa
nýju ári í nýju húsnœöi
Bóksala stúdenta er þessa dagana
aö undirbúa sig undir að flytja í nýtt og
betra húsnæði, nefnilega í sallnn á 1.
hæð Stúdentaheimilisins, þar sem eitt
sinn var matsala. Stúdentar sem átt
hafa leið um Stúdentaheimilið hafa
veitt athygli þeim framkvæmdum sem
standa yfir í salnum. Raunar átti bók-
salan að vera búin að flytja miklu fyrr,
en að sögn Ólafar Eldjárn,
verslunarstjóra bóksölunnar, hefur
ýmislegt taflð framkvæmdir. Fyrst
gekk illa að fá iðnaðarmenn til að byija
á að innrétta nýja húsnæðið, þar sem
þeir oru uppteknir í Kringlunni. Þeir
byrjuðu því ekki íyrr en í september. Þá
var gert ráð fyrir að ljúka öllu í
nóvember og flytja um mánaðarmót
nóvember-desember, en það stóðst
ekki vegna tafa á afgreiðslu á hillum í
búðina, En nú er að rætast úr. Tíminn
milli jóla og nýárs verður notaður til að
flytja bækumar og með nýju ári verður
opnað á nýjum stað.
Að sögn Ólafar munu flutningamir
bæta mjög afla aðstöðu bóksölunnar
til að veita stúdentum og kennurum
Háskólans betri þjónustu. Það verður
greiðari aðgangur að öllum þeim
bókakosti sem bóksalan á, auk þess
sem úrvalið mun aukast. Verður t.d.
lögð áhersla á að auka úrval íslenskra
bóka, ritfanga, tölvuvamings og síðar
tímarita.
Stúdentablaðið mun fylgjast með
opnun bóksölunnar í nýju húsnæði og
flytja fréttir af þvi í næsta blaði.
Við flutning bóksölunnar flytur
Ferðaskrifstofa stúdenta í það
húsnæði sem bóksalan er í nú.
Háskólafjölritun mun flytja sig niður
af 2. hæðinni og yfirtaka Ferða-
skrifstofuplássið og "eldhúsið" inn af.
22
Stúdentablaðið